Morgunblaðið - 20.07.2022, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 0. J Ú L Í 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 168. tölublað . 110. árgangur .
SYNDIR FRÁ
EYJUM FYRIR
BARNAHEILL ÞÆR UNGU BLÓMSTRUÐU
MATVÆLA-
KREPPA VOFIR
YFIR HEIMINUM
UPPGJÖR EM 23 VIÐSKIPTAMOGGINNSIGURGEIR SVANBERGS 4
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði við
Háskóla Íslands og nefndarmaður í
peningastefnunefnd Seðlabankans,
segir nokkra þætti milda áhrif verð-
hækkana í helstu viðskiptalöndum á
fjárhag íslenskra heimila. Krónan sé
að styrkjast gagnvart Evrópumynt-
um og laun hér hafi hækkað meira en
víðast erlendis. Þá hafi orkukostnað-
ur ekki aukist jafn mikið og í Evrópu
og í Bandaríkjunum en þar vegi
þyngst að kostnaður við húshitun hafi
ekki aukist eins og ytra. Síðastnefndi
þátturinn, kynding með hitaveitu,
vegi hér þungt.
„Mikilvægt er að auka orkufram-
leiðslu á Íslandi á næstu árum og ára-
tugum til að þjóðin verði sjálfri sér
næg um orku,“ segir Gylfi.
Samandregið hafi niðursveiflan í
hagkerfum heimsins, í kjölfar innrás-
ar Rússa í Úkraínu, minni áhrif á ís-
lenskan almenning en á íbúa í mörg-
um helstu viðskiptalöndum okkar.
Tilefnið er sú mikla ólga sem
kraumar undir í mörgum ríkjum Evr-
ópu vegna hækkandi verðlags og
raunar í Bandaríkjunum líka.
Óvíst um kyndingu í vetur
Íslendingar búsettir í Evrópu finna
vel fyrir hækkandi verðlagi.
Hallgrímur Árnason, listmálari í
Vín, segir marga borgarbúa kvíða
vetrinum. Kostnaður við kyndingu
hafi aukist mikið eftir að jarðgas
hækkaði í verði í kjölfar stríðsins og
jafnvel óvíst um framboðið í vetur.
Annar Íslendingur í Vínarborg,
sem Morgunblaðið ræddi við, áætlaði
að sitt heimili myndi greiða um 120
þúsund krónum meira í kyndingu í ár
en í fyrra. Hins vegar myndu opin-
berir mótvægisstyrkir gera gott bet-
ur en að vega það upp en þann kostn-
að muni skattgreiðendur bera að
lokum. Fjölskyldan hafi sparað kynd-
ingu undanfarið en nú sé rætt um að
skammta þurfi gasið í vetur.
Maximo Torero, yfirhagfræðingur
Matvæla- og landbúnaðarstofnunar
Sameinuðu þjóðanna (FAO), segir
miklu máli skipta að koma birgðum af
kornmeti út úr Úkraínu. Það sé enda
farið að ganga á heimsbirgðirnar og
það geti með tímanum þrýst á verð.
Blikur á lofti um fæðuframboð
„Fæðuframboð er ekki vandamál í
ár en gæti orðið það á næstu tveimur
árum,“ segir Torero en Viðskipta-
Mogginn hitti hann að máli í Róm.
Torero segir aðgerðir til að örva
hagkerfin í kórónukreppunni hafa ýtt
undir verðhækkanir á hrávöru og
matvöru. Matarverð hafi því verið á
uppleið fyrir innrás Rússa í Úkraínu.
Nú sé röskun á framleiðslu áburðar
líka áhyggjuefni en áburðarverð sé
hátt og því verði matvælaframleiðsla
að óbreyttu ekki aukin jafn mikið á
næstunni og vonast var til.
Staða Íslands mildar áhrif
niðursveiflunnar á heimili
- Prófessor bendir á orkuverð - Yfirhagfræðingur FAO segir fæðuöryggi ógnað
MViðskiptaMogginn
Matvælaverðsvísitala
FAO frá ársbyrjun 2020
160
145
130
115
100
85
2020 2021 2022
154,2
102,5
Heimild: FAO.org
Meðaltal 2014-2016 = 100
Óvenju margir Íslendingar heimsóttu Hafnarhúsið í gær, en
frítt var inn á listasafnið vegna níræðisafmælis listamannsins
Errós. Boðið var upp á leiðsagnir um sýninguna Erró:
Sprengikraftur mynda.
„Það komu gríðarlega margir og var mjög góð stemning.
Einnig komu óvenju margir Íslendingar í safnið í dag miðað
við hásumar“ segir Ólöf Kristín Sigurðardóttir, safnstjóri
Listasafnsins í Reykjavík, í samtali við Morgunblaðið.
Alls var boðið upp á þrjár leiðsagnir, bæði á ensku og ís-
lensku, um sýninguna en það voru þær Halla Margrét Jóhann-
esdóttir og Becky Forsythe sem sáum um leiðsagnirnar. Sýn-
ingin er sú stærsta hingað til á verkum hans hér á landi.
Morgunblaðið/Hákon
Óvenju margir Íslendingar nutu listarinnar í Hafnarhúsinu í gær
Meðal fjölda
álitaefna, sem
komu til kasta
úrskurðarnefndar
í vátrygging-
armálum á síð-
asta ári, var
hvort tjón sem
varð á hleðslu-
kapli fyrir raf-
magnsbíl þegar tengill í vegg brann
yfir skyldi bætt úr innbúshluta eða
innbúskaskóhluta fjölskyldutrygg-
ingar. Úrskurðarnefndin segir í nið-
urstöðu sinni að þeir innbúsmunir
sem teljast til almenns innbús verði
að vera nokkuð algengir í heim-
ilishaldi.
„Þótt útbreiðsla rafmagnsbifreiða
hér á landi sé einhver þá telst hún
ekki vera það útbreidd að hægt sé
að flokka hleðslukapal sem notaður
er til að hlaða slíkar bifreiðar sem
hluta af almennu heimilishaldi enn
sem komið er,“ segir í niðurstöðu
nefndarinnar sem úrskurðaði trygg-
ingafélaginu í vil. »6
Hleðslu-
kapall ekki
bættur