Morgunblaðið - 20.07.2022, Side 24

Morgunblaðið - 20.07.2022, Side 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 2022 Árni Matthíasson arnim@mbl.is Hljómsveitin Moses Hightower kom með nýjan hljóm í íslenskan tónlist- arheim undir lok tíunda áratugarins með smáskífum og sinni fyrstu plötu, Búum til börn, sem kom út 2010. Í upphafi var sveitin skipuð þeim Andra Ólafssyni, bassaleikara og söngvara, Daníel Friðriki Böðvars- syni gítarleikara, Magnúsi Trygva- syni Eliassen trommuleikara og Steingrími Karli Teague, hljóm- borðsleikara og söngvara. Enn eru þeir að vinna saman sem Moses Hightower, Andri, Magnús og Steingrímur, sendu frá sér plötu á þarsíðasta ári og halda tónleika í Gamla bíói með Svavari Pétri Ey- steinssyni, Prins Póló, næstkomandi föstudag. Þeir eru líka að iðja hver í sínu lagi, eins og til að mynda Stein- grímur sem gaf út plötuna More Than You Know með söngkonunni Silvu Þórðardóttur fyrir stuttu. Úr nýbylgjurokki í djass Áður en Moses Hightower-ævin- týrið hófst hafði Steingrímur komið víða við í íslenskum tónlistarheimi, til að mynda spilað nýbylgjurokk með hljómsveitinni Ókind sem náði öðru sæti í Músíktilraunum 2002 og gaf út plöturnar Heimsenda 18 og Hvar í hvergilandi, en einnig hafði hann leikið jazz með ýmsum tónlist- armönnum og söngkonum, stundum sem íhlaupamaður, og ferðast um heiminn með Of Monsters and Men eins og hann rekur í Dagmálum. Steingrímur segir að Andra Ólafs- son, bassaleikara og söngvara, kór- félaga hans úr MH, sem var mjög áhugasamur um djass hafi langað að setja saman hljómsveit til að spila þannig músík. Þeir voru þó ekki að stofna djasshljómsveit, heldur frek- ar sveit sem myndi spila djassskotna tónlist áþekka því sem vinsælt var vestan hafs á sjöunda og áttunda áratugnum, rytmablús Bill Withers, Sly and the Family Stone, Stevie Wonder. „Í dag eru margir að spila þannig tónlist en okkur leið þá eins og það væru ekki það margir að spila þannig dót, eins og okkur fannst al- mennilegt. Svo gátum við það eig- inlega ekki heldur en það kom eitt- hvað annað í staðinn.“ Segja má að hljómurinn sem ein- kennir sveitina hafi orðið til á fyrstu æfingunni, eins og Steingrímur rek- ur söguna: „Fyrsti hittingurinn var í kjallara foreldra minna, eftir eitt- hvert FÍH-sprell, djammsession eða eitthvað, fórum við heim til mín og þurftum að hafa svakalega lágt, því það voru allir sofandi heima, höfðum kertaljós og Zoom-upptökuæki í gangi og þar kom hljómagangurinn að titillagi fyrstu plötunnar, Búum til börn. Það var bókstaflega í fyrsta sinn sem við byrjuðum að spila sam- an.“ Morgunblaðið/Ágúst Söngvari Steingrímur Karl Teague hljómborðsleikari og söngvari. Þurftum að hafa svakalega lágt - Lágstemmdur hljómur Moses Hightower varð til á fyrstu æfingunni Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Mér hafa alltaf þótt þetta svo ótrú- lega falleg verðlaun, en hafði ekki hugmyndaflug til að láta mér detta í hug að þau myndu falla mér í skaut. Þessi viðurkenning kemur mér því ánægjulega á óvart,“ segir Ingibjörg Sigurjónsdóttir sem í gær hlaut styrk úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur. Viðurkenningin var veitt við hátíðlega athöfn í Hafnar- húsinu á 90 ára afmælisdegi Errós. Var þetta í 23. sinn sem styrkurinn er veittur. Listamaðurinn Erró stofnaði sjóðinn árið 1997 til minn- ingar um móðursystur sína Guð- mundu S. Kristinsdóttur frá Mið- engi. „Markmið sjóðsins er að styrkja myndlistarkonur með því að veita þeim sérstök framlög til viður- kenningar og eflingar á listsköpun þeirra. Að jafnaði er veitt árlega úr sjóðunum en í tilefni 90 ára afmælis Errós ákvað stjórn sjóðsins að veita sérstaka aukaúthlutun,“ segir í til- kynningu frá Listasafni Reykjavík- ur. Síðast var veitt úr sjóðnum í apríl í tengslum við opnun yfirlitssýn- ingar Errós í Hafnarhúsinu. „Það felst dýrmæt hvatning í því að hljóta þessa viðurkenningu. Þetta er stuðningur og hvati til að halda áfram og gera meira,“ segir Ingi- björg. Mikilvægur fjársjóður Ingibjörg, sem fædd er í Reykja- vík árið 1985, lauk BA-gráðu frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2010 og hefur tekið þátt í sýningum, gjörningum og öðrum verkefnum bæði á Íslandi og erlend- is. Aðspurð segist Ingibjörg vinna fjölbreytt myndlistarverk, jafnt þrí- víða skúlptúra, lágmyndir og rýmis- verk sem teikningar og málaðar myndir. „Verk mín eiga það til að láta lítið yfir sér. Þau gefa ekki alveg allt upp við fyrstu sýn. Þau eru oft afar viðkvæm og þurfa mikla aðstoð frá áhorfendum til að fá að vera til, því sum þeirra má bókstaflega ekki anda á án þess að þau hrynji,“ segir Ingibjörg og tekur fram að verk hennar einkennist þannig af hverful- leika sem endurspeglist bæði í efnis- valinu og framsetningu. „Mér finnst spennandi að ögra lögmálum stöðug- leika og þyngdar þannig að áhorf- andinn skynjar að ekkert er gefið. Fábrotin fundin efni sem bera í sér dulda merkingu verða svo oft mestu verðmætin,“ segir Ingibjörg og bæt- ir við að í einhverjum skilningi sé hún ávallt að vinna með verk sem séu á mörkum þess að vera til. Styrkupphæðin sem Ingibjörg hlýtur úr Listasjóði Guðmundu nemur einni milljón króna, sem er ein hæsta viðurkenning sem veitt er á sviði myndlistar á Íslandi. „Svona peningar verða smá heilagir og þeir þurfa að fara í myndlistina sjálfa. Þetta má ekki fara í rafmagnsreikn- inginn,“ segir Ingibjörg ákveðin og tekur fram að styrkupphæðin sé sér því mikilvægur fjársjóður sem hún geti gripið í þegar á þurfi að halda í hennar listsköpun. Morgunblaðið/Hákon Þakklæti Ingibjörg Sigurjónsdóttir flutti þakkarorð í Hafnarhúsinu. Í bakgrunni sjást verk eftir Erró. „Dýrmæt hvatning“ - Ingibjörg Sigurjónsdóttir hlaut í gær viðurkenningu úr Listasjóði Guðmundu á 90 ára afmælisdegi Errós Danski tónlistarmaðurinn Povl Dissing er látinn, 84 ára að aldri. Ritzau hefur eftir eiginkonu Diss- ings, Piu Jacobæus, að hann hafi látist í faðmi fjölskyldunar á mánu- dag eftir langvarandi veikindi. Dissing hóf feril sinn sem korn- ettleikari og hafði sérstakan áhuga á djassi og blús áður en hann fann sinn eigin stíl sem var meira í ætt við þjóðlagatónlist. Árið 1973 sló hann í gegn í samstarfi við ljóð- skáldið Benny Andersen þegar þeir sendu frá sér plötuna Svantes viser sem er heilmikill óður til hvers- dagsins. Meðal laga á plötunni er „Svantes lykkelige dag“ þar sem ljóðmælandinn syngur um ágæti lífsins meðan hann bíður eftir því að kaffið verði tilbúið. Á löngum og farsælum ferli sendi Dissing frá sér yfir 25 plötur og geisladiska. Hljómsveitin Dissing, Dissing, Las og Dissing, sem hann stofnaði ásamt sonum sínum tveim- ur, Rasmusi og Jonasi, naut mik- illar hylli í Danmörku og kom víða fram. Árið 2017 fékk Dissing heila- blæðingu eftir slæmt höfuðhögg sem batt skyndilegan enda á feril hans. Fjórum árum síðar var hann fyrstur Dana tekinn inn í frægðar- höll fyrir þjóðlagatónlist sem Tøn- der Festival Fond stendur að. Af því tilefni var Dissing lýst sem þjóð- areign og sagður mikilvægur inn- blástur fyrir danskt tónlistarlíf. Povl Dissing látinn 84 ára að aldri Wikimedia/Eirik Newth Tónlistarmaðurinn Povl Dissing. Fornleifarannsóknin Fornar rætur Árbæjar, sem stendur yfir á bæjarstæði Árbæjar, verður kynnt í kvöld kl. 20. Sólrún Inga Traustadóttir, stjórnandi rannsóknarinnar, mun leiða gesti og gangandi um uppgraftarsvæðin á bæjarstæðinu og segja frá forn- leifum og -gripum sem hafa komið í ljós. „Leiðsögninni lýkur á sýningu um rannsóknina í einu safnhúsanna þar sem gestum gefst kostur á að móta nýjar rannsóknarspurningar með því að taka þátt í könnun og þiggja kaffi og kleinur,“ segir í til- kynningu. Viðburðurinn er ókeypis. Kynning á fornleifarannsókn í kvöld Kaffibolli Einn þeirra muna sem fundist hafa í fornleifarannsókninni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.