Morgunblaðið - 25.07.2022, Side 6

Morgunblaðið - 25.07.2022, Side 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2022 Hjelle www.vest.is • Ármúli 17 • Sími: 620 7200 Vönduð norsk hönnunartákn sem standast tímans tönn. Starfsmenn Colas Ísland unnu í síðustu viku við að leggja malbik á Breiðholtsbraut í Reykjavík og á Hafnarfjarðarveg á milli Vífilsstaðavegar og Arnarnesvegar. Segja má að malbikunarvertíðin standi nú sem hæst, enda ekki vanþörf á að endurnýja slitlag gatnanna. Colas Ísland vinnur fyrir Vegagerðina en Breiðholtsbraut er skilgreind sem þjóð- vegur í þéttbýli. Að sögn Hafsteins Elíassonar verkefnastjóra hefur fyrir- tækið þegar lagt um 13-14 þúsund tonn af malbiki á götur í sumar. Áætlað er að 100 til 200 þúsund tonn af malbiki verði lögð á götur og vegi á þessu ári, þar á meðal á kafla á hringveginum, á vegum fyrirtækisins. Malbikað bæði dag og nótt á höfuðborgarsvæðinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ríkissjóður hefur niðurgreitt flug- fargjöld innanlands fyrir tæpar 700 milljónir króna síðan svokölluð Loftbrú var tekin upp í september 2020. Þetta kemur fram í skriflegu svari Vegagerðarinnar við fyrir- spurn Morgunblaðsins. Vegagerðin hefur umsjón með Lofbrú fyrir hönd ríkisins og sinnir öllu eftirliti og um- sýslu henni tengdri. Í svari Vegagerðarinnar kemur fram hve háar upphæðir stofnunin hefur greitt til notenda Loftbrúar- innar vegna afsláttarins, skipt eftir mánuðum. Þar má sjá að Loftbrúin fór frekar hægt af stað. Í september 2020 voru greiddar 13.531.141 kr. og í október 6.294.343 kr. Árið 2021 eykst notkun Loftbrúar og hæsta greiðsla það ár var í október, 47.124.496 kr. Það sem af er árinu 2022 hafa verið greiddar út yfir 40 milljónir alla mánuði nema einn, þ.e. janúar. Hæsta greiðslan var í mars 2022 eða 57.107.031 kr. Heildargreiðslan vegna Loftbrúar, til og með júní síðastliðnum, er 683.921.686 krónur. Bætt aðgengi landsbyggð- arinnar Loftbrú var hleypt af stokkunum 9. september 2020 með það að markmiði að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að miðlægri þjón- ustu og efla byggðir með því að gera innanlandsflug að hagkvæm- ari samgöngukosti. Loftbrú veitir afsláttarkjör til þeirra sem eiga lögheimili á landsbyggðinni fjarri höfuðborgarsvæðinu og á eyjum án vegasambands. Rúmlega 60 þúsund íbúar eiga rétt á Loftbrú en hver einstaklingur getur fengið lægri fargjöld fyrir allt að sex flugleggi til og frá Reykjavík á ári. Fram kom á heimasíðu Vega- gerðarinnar fyrir skömmu að Loftbrú hefur verið notuð til nið- urgreiðslu á yfir 100 þúsund flug- leggjum á þeim tæpu tveim árum sem hún hefur verið aðgengileg. Það sem af er árinu 2022 hafa 50% fleiri flugferðir verið pantaðar í gegnum Loftbú í samanburði við allt árið 2021. Fjölmennasti hópur notenda er á aldrinum 20-24 ára, eða um 9%, og fleiri konur en karlar nýta sér af- sláttarkjörin. Morgunblaðið/Árni Sæberg Innanlandsflugið Loftbrúin hefur verið mikið notuð af landsmönnum frá því hún var tekin í notkun árið 2020. Loftbrúin hefur kostað tæpar 700 milljónir kr. - Loftbrú hefur verið notuð til niðurgreiðslu á yfir 100 þús- und flugferðum - Hæst greiddar 57 milljónir í einum mánuði Landeigandi í Rangárþingi ytra seg- ir fjarskiptafyrirtækið Ljósleið- arann hafa sýnt af sér frekju við plægingu ljósleiðarastrengs um Þykkvabæ. Telur hann meðal ann- ars að fyrirtækið hafi átt að ræða við landeigendur við gerð samnings sem þeim var sendur vegna lagningar ljósleiðarans. „Fyrir það fyrsta er þetta svo ein- hliða. Þarna er fyrirtæki að fá að fara í gegnum land hjá fólki en það var ekki boðið upp á neitt fyrir land- eigendur heldur var bara einhliða upptalning þeirra á því sem þeir ætl- uðu að gera. Svo hét þetta samn- ingur og ég átti bara að skrifa undir allt sem þeir fóru fram á. Ég held að fólk hér hafi ekki séð neinn tilgang í því að skrifa undir,“ segir Þórólfur Már Antonsson, líffræðingur og lóðareigandi í Rangárþingi ytra. Í skriflegu svari til Morgunblaðs- segir Elísabet Guðbjörnsdóttir, verkefnastjóri hjá Ljósleiðaranum, að áhersla hafi verið á góð samskipti við landeigendur. „Landeigendur þarna í Þykkvabænum eru tæplega 70 talsins og við höfum verið í sam- skiptum við þá frá því í fyrrahaust, haft samband við hvern og einn per- sónulega og sent þeim öllum formleg bréf um réttindi og skyldur aðila.“ Þá sé samningurinn sem sendur var landeigendum staðlaður. „Slíkt samkomulag er staðlað og byggist á lagalegum réttindum og skyldum, fjarskiptafélagsins og landeigenda. Ljósleiðarinn, og vafalaust flest inn- viðafyrirtæki, gera aragrúa slíkra samninga þegar þörf er á.“ ingathora@mbl.is Gagnrýnir verk- ferla Ljósleiðarans - Hafi ekki séð tilgang í að skrifa undir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.