Morgunblaðið - 25.07.2022, Side 8

Morgunblaðið - 25.07.2022, Side 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2022 ÞÚ FÆRÐ BOSCH BÍLAVARAHLUTI HJÁ KEMI Kemi | Tunguhálsi 10 | Sími 415 4000 | www.kemi.is Kaup almenningshlutafélagsins Síldarvinnslunnar hf. í Nes- kaupstað á fjölskyldufyrirtækinu Vísi hf. í Grindavík varð tilefni tölu- verðrar fjölmiðlaumfjöllunar og um- ræðna. Sumir fjöl- miðlar virtust sjá þessum kaupum allt til foráttu, en kaupin eru raunar frekar samruni þar sem megnið af kaupverð- inu, 14 milljarðar af 20, er greitt með hlutabréfum í Síldar- vinnslunni. - - - Afgangurinn, 6 milljarðar, er greiddur með peningum, en eins og greint var frá í frétt Morg- unblaðsins á laugardag fer stærstur hluti þeirrar fjárhæðar í skatt- greiðslu, eða vel á fimmta milljarð króna. - - - Þeir fjölmiðlar sem mestar áhyggjur virtust hafa af þess- um viðskiptum hafa ekki sýnt upp- lýsingum um þessar skattgreiðslur áhuga. - - - Þetta kemur nokkuð á óvart, ekki síst í ljósi þess að gagnrýn- endur viðskiptanna fundu meðal annars að því að ríkið fengi ekkert út úr þeim. Fyrrverandi ríkisskatt- stjóri, sem hefur jafnan miklar áhyggjur ef einhvers staðar liggur óskattlögð króna, sagði til að mynda að viðskiptin færu fram „án þess að þjóðin fengi krónu í sinn hlut“. - - - Þjóðin hefur notið þess ríkulega, bæði beint og óbeint, að hér á landi er sjávarútvegur rekinn með hagkvæmum hætti en er ekki niður- greiddur eins og almennt tíðkast í nágrannalöndum okkar. Eigi hann áfram að skila miklu í þjóðarbúið þarf hann að búa við viðunandi rekstrarumhverfi, ekki síst stöðug- leika í regluverki. Skyndilegt áhuga- leysi um skatta STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ „Þetta skiptir öll sjávarsamfélög um allt land máli, það eru þó nokkrir strandveiðibátar hérna á Höfn og margar fjölskyldur hafa tekjur af þessu, þannig að við myndum vilja að menn gætu stundað þetta líka í ágúst eins og planið var,“ segir Gauti Árnason, forseti bæjarstjórnar Hornafjarðar og aðalmaður í bæjar- ráði. Á fundi bæjarráðs Hornafjarðar 21. júlí, á síðasta degi strandveiða, var samþykkt að taka undir ályktun smábátafélagsins Hrollaugs þar sem skorað er á Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra að tryggja 48 daga til strandveiða í sumar. „Við erum að taka undir með smábátafélaginu að þetta standi, þessir 48 dagar.“ Spurður hvort fulltrúar bæjarráðs séu bjartsýnir á að ráðherra taki áskoruninni, segir Gauti að þeir verði að vera það. „Við viljum styðja smábátasjó- menn sem og aðrar útgerðir og fyrir- tæki á svæðinu. Þess vegna tekur bæjarráð undir þessa ályktun þeirra, að hvetja ráðherrann til þess að halda þessu kerfi út ágústmánuð. Þetta skiptir miklu máli fyrir sveit- arfélagið og samfélag eins og okkar sem byggir mikið á útgerð. Þó það sé allt brjálað í ferðaþjónustunni eins og er þá hafa ekki allir tekjur af því.“ Mikilvægt fyrir öll sjávarsamfélög - Skora á matvælaráðherra að tryggja 48 daga til strandveiða í sumar Morgunblaðið/Golli Strandveiðar Bæjarráð tekur undir ályktun smábátafélagsins Hrollaugs. Á fimmtudaginn nk., 28. júlí, mun Flugademía Íslands heiðra Ernu Hjaltalín, frumkvöðul í íslenskri flugsögu, sem talin er ein merkasta kona íslenskrar flugsögu. Mun þar ein af kennsluvélum skólans vera nefnd eftir Ernu og verður haldin athöfn í verklegri aðstöðu Flug- akademíunnar á Reykjavíkur- flugvelli. „Erna smitaðist ung af flugdell- unni og vildi ólm kanna háloftin. Erna var fyrsta konan til að taka einkaflugmannspróf, atvinnuflug- mannspróf og að öðlast réttindi loft- siglingafræðings,“ segir í tilkynn- ingu frá Flugakademíunni. Þar segir að Erna hafi „því miður ekki fengið sömu tækifæri og samnem- endur sínir í flugskólanum“, sem allir voru karlmenn og fengu fast- ráðningu hjá Loftleiðum að loknu atvinnuflugmannsprófi. Hún hafi því hvorki verið fastráðin sem at- vinnuflugmaður né loftsiglingafræð- ingur á sinni ævi, þó eigi hún að baki 217 klukkustundir sem flug- maður og 462 klukkustundir sem loftsiglingafræðingur. Sem flug- freyja hafi hún síðan flogið í tugi þúsunda klukkustunda. „Þrátt fyrir að Erna hafi ekki fengið sömu tækifæri og samnem- endur sínir þá ruddi hún svo sann- arlega farveginn til framtíðar fyrir konur í flugi. Í dag er Ísland meðal fremstu þjóða hvað varðar kynja- hlutföll flugmanna þrátt fyrir að enn sé rými til bætingar.“ Erna lést 14. maí á síðasta ári og hafa afkomendur hennar þann heið- ur að fara í fyrstu flugferðina á ný- nefndri Ernu Hjaltalín í lok athafn- ar. Athöfnin er opin öllum og er fólk hvatt til að mæta á svæðið og heiðra Ernu kl. 16:30 á fimmtudag. Erna Hjaltalín verður heiðruð - Ruddi brautina - Ein mikilvægasta kona flugsögunnar Flogið Gömul mynd af Ernu við störf. Erna lést 14. maí 2021.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.