Morgunblaðið - 25.07.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2022
PORSCHE NOTAÐIR BÍLAR
Skoðaðu úrvalið á benni.is
Krókhálsi 9
Sími: 590 2000
Virka daga: 9 - 17
Laugardaga: Lokað
Upplifðu sanna ökugleði...
IDT87 UEU40 UYK55
LNA66 UJL00 BJR47
Porsche Cayenne S E-Hybrid Tesla S70D Range RoverVogue SDV8
BMWX4 XDRIVE35D Porsche Cayenne Porsche Cayenne S E-Hybrid
Elegant, sportlegur, fallegur og vel búinn - stillanleg
loftpúðafjöðrun, hiti í framsætum og stýri, panorama
sóllúga, skyggðar rúður, lyklalaust aðgengi, íslenskt
leiðsögukerfi, BOSE hljómtæki og margt fleira.
B
irt
m
eð
fyrirvara
um
m
ynd
-
og
textab
reng
l
Skráður: 03.’18 | Ekinn: 57.000 km. Skráður: 08.’15 | Ekinn: 98.000 km. Skráður: 02.’15 | Ekinn: 149.000 km.
Skráður: 12.’17 | Ekinn:n 77.000 km. Skráður: 10.’10| Ekinn: 178.000 km. Skráður: 07.’16 | Ekinn: 98.000 km.
8.990.000 kr.
Einstaklega vel með farinn BMWX4. 314 hestöfl.
Svartar álfelgur. Velbúinn, fjórhjóladrifinn jeppi.
Glertopplúga, hiti í framsætum og margt fleira.
Sjón er sögu ríkari. 6.990.000 kr.
Ljómandi frábær DIESEL Cayenne hér á ferð! Allt í
senn, eyðslugrannur sportari og jeppi. Til í flest.
Loftpúðafjöðrun, 240 hestöfl og allskonar.
4.490.000 kr.
Fallegur og vel útbúinn Cayenne S E-Hybrid. Helsti
útbúnaður: Loftpúðafjöðrun, rafmagns dráttarkrókur,
hiti í framsætum, litað gler, fjarlægðarskynjarar
lyklalaust aðgengi svo eitthvað sé nefnt. 8.490.000 kr.
Vandaður rafmagnsbíll. Loftpúðafjöðrun, fjórhjóladrif,
LED ljósabúnaður, glertopplúga, glerþak, litað gler,
leðuráklæði, hiti í sætum, ofl.
6.490.000 kr.
Hér er á ferðinni V8 DIESEL Range Rover, eins og
Range Rover á að vera. Mjög vel búinn bíll, lítið ekinn
og vel farinn. Tilbúinn í hvað sem er
12.490.000 kr.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Framboð á markaði hefur senni-
lega aldrei verið jafn lítið og nú. Í
dag eru 330 eignir í fjölbýli til sölu
á öllu höfuðborgarsvæðinu, frá
Mosfellsbæ, suður í Hafnarfjörð,
og út á Seltjarnarnes. Sérbýlis-
eignir til sölu
eru enn færri.
Þetta er víta-
hringur sem
þarf að rjúfa
með því að
byggja meira,“
segir Hannes
Steindórsson,
framkvæmda-
stjóri hjá Lind
fasteignasölu og
bæjarfulltrúi í
Kópavogi. Starfa sinna vegna
þekkir hann vel til mála á húsnæð-
ismarkaði þar sem mikil þröng er
nú. Fullur skilningur er á stöðu
mála og vilji til úrbóta.
Nú í júlí var undirritað sam-
komulag ríkis og sveitarfélaga um
byggingu 35 þúsund íbúða á næstu
10 árum. Markmiðið er að tilbúnar
verði minnst 4.000 íbúðir á ári
fyrstu fimm árin og 3.500 íbúðir
hin fimm síðari.
Vinna upp misvægið
„Verkefnið sem sam-
komulagið er um er afar verðugt
og vel framkvæmanlegt. Útfærsl-
an þarf hins vegar að vera góð og
vel skipulögð. Úthluta þarf veru-
lega fleiri lóðum en undanfarin ár.
Nú þarf að vinna upp misvæg-
ið sem myndast hefur á undan-
förnum árum, milli fólksfjölgunar
og þess að ekki hefur verið byggð-
ur sá fjöldi íbúða sem þarf því til
samræmis,“ segir Hannes Stein-
dórsson.
„Kópavogur hefur á síðustu
árum staðið framar öðrum sveit-
arfélögum í uppbyggingu íbúðar-
húsnæðis,“ segir bæjarfulltrúinn
Hannes. „Við getum þó gert enn
betur og erum að setja ný verkefni
af stað. Kópavogur hefur þó tak-
markað landrými en getur byggt
um 5.000 íbúðir á næstu sex til tíu
árum. Í Reykjavík þarf mesta
átakið, þrefalda þarf bygging-
armagn þar innan 6-10 mánaða ef
vel skal vera.“
Brjóta lönd og stytta ferla
Lítið framboð á fasteignum á
höfuðborgarsvæðinu síðustu árin
á afgerandi þátt í því hve hátt
verð þeirra er nú. Á síðasta ári
var hækkunin um 20% og verður í
ár allt að 10%. Hve tilfinnanlega
vantar margar fasteignir á mark-
að nú segir Hannes að megi rekja
til efnahagshrunsins haustið 2008.
Alltof lítið hafi verið byggt í um
áratug þar á eftir. Frá 2009-2015
hafi verið byggðar alls 5.765 íbúð-
ir á öllu landinu, það eru 823 á ári.
Þörfin samkvæmt öllum grein-
ingum sé hins vegar 3.000 nýjar
íbúðir árlega.
„Í hruninu byrjuðu vanda-
málin sem nú þarf að leysa. Nú
þarf að brjóta ný lönd undir nýjar
lóðir og þétta byggð þar sem slíkt
er hægt. Stytta þarf alla ferla við
leyfisveitingar og fjárstofnanir
verða að lána til húsbygginga í
kreppu. Einnig að slaka á íþyngj-
andi byggingarreglugerðum – eða
almennt sagt ryðja úr vegi hindr-
unum sem tefja uppbyggingu. Upp
á sveitarfélögin á höfuðborgar-
svæðinu stendur að lækka lóða-
verð, sem í dag er 14 milljónir kr.
fyrir 100 fermetra íbúð. Þegar
þetta er allt komið í gegn þarf síð-
an aðföng og mannskap – mikinn
fjölda fólks frá útlöndum – til að
byggja. Eins og staðan er núna er
ekki geta til að byggja nema
2.500-3.000 íbúðir á ári. Afleið-
ingar þessa koma víða fram og
sérstaklega bítur staðan ungt fólk
með börn. Samkeppni þess við sér
eldra fólk, sem hefur eigið fé og
getur boðið vel í eignir á söluskrá,
er ójöfn. Síðustu aðgerðir Seðla-
bankans með breytingum á
greiðslumati, þar sem skilyrði eru
þrengd, gera stöðu til dæmis
þeirra sem eru að kaupa sína
fyrstu eign enn erfiðari en verið
hefur.“
Í því samkomulagi sem
fulltrúar ríkis og sveitarfélaga
undirrituðu á dögunum er kveðið
á um að þriðjungur þeirra íbúða
sem byggðar verði á næstu árum
skuli vera á „viðráðanlegu verði“
eins og komist er að orði. Orðalag-
ið er óljóst og kvarðinn mats-
kenndur. Hvað er viðráðanlegt
verð? Sagt er að þar sem takmörk-
uð framlegð sé af byggingu lítilla
og ódýrra íbúða hafi verktakar lít-
inn áhuga á slíkum verkefnum.
Hannes segir að svo kunni að
vera, en þá þurfi að breyta for-
sendum.
Jafnvægi eftir tvö ár
„Framlegðin getur verið til
staðar, en þá þurfa sveitarfélög að
lækka lóðaverð verulega. Einnig
þarf öðruvísu regluverk svo
byggja megi einföld og ódýr fjöl-
býlishús. Það er erfitt að segja
hvað sé viðráðanlegt verð; en með
einföldun reglna og ódýrari lóðum
má væntanlega koma á markaðinn
með eignir sem eru 5-8 milljónum
króna ódýrari en nú. Að slíkt
gangi eftir er mikilvægt fyrir
unga fólkið en samkvæmt nýleg-
um fréttum eru hér landi um 25
þúsund manns á þrítugsaldri enn í
foreldrahúsum,“ segir Hannes og
að síðustu:
„Ég er nokkuð viss um að fólk
sem er þrítugt og þaðan af eldra
langar ekki að búa í foreldra-
húsum mikið lengur. Annars er
staðan mjög snúin í dag. Verð-
bólgan er komin í 10% og því hef-
ur Seðlabankinn hækkað vexti,
sem m.a. eiga að kæla fasteigna-
markaðinn. Ef til vill skilar slíkt
árangri: ég tel að nú fari framboð
eigna á söluskrá að aukast og yf-
irboð að lækka. Hins vegar er mis-
vægið á markaðnum mikið. Fram-
boð eigna í samræmi við þörf mun
að mínu mati ekki ná jafnvægi
fyrr en í fyrsta lagi eftir tvö ár.“
Fátt um fasteignir á söluskrá og rjúfa þarf vítahring með inngjöf í framkvæmdum, segir formaður Félags fasteignasala
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Reykjavík Framboð eigna á söluskrá er langt frá því að fylgja þörf.
Rjúfa þarf vítahring
- Hannes Steindórsson er
fæddur 1978 á Dalvík, en hefur
búið í Kópavogi frá 1990.
Þriggja barna faðir og virkur í
félagsstarfi í bænum. Hefur
um dagana einkum og helst
starfað við sölu og markaðs-
mál ýmiskonar. Löggiltur fast-
eignasali að mennt og hefur
starfað á þeim vettvangi frá
2005. Framkvæmdastjóri á
Lind fasteignasölu síðan 2013.
- Hannes var nú í vor kjörinn
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks
í Kópavogi. Formaður Félags
fasteignasala frá sl. hausti.
Hver er hann?
Hannes
Steindórsson