Morgunblaðið - 25.07.2022, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 25.07.2022, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2022 E60 Íslensk hönnun og framleiðsla frá 1960 Mikið úrval lita bæði á áklæði og grind. Sérsmíðum allt eftir pöntunum. Stóll E60 orginal kr. 44.100 Retro borð 90 cm kr. 156.200 (eins og á mynd) Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is Japanska eldfjallið Sakurajima á eynni Kyushu tók að gjósa í gær- kvöldi og var tugum manna í ná- grenni fjallsins skipað að yfirgefa heimili sín þegar í stað og þorp í ná- grenninu sett á varúðarstig. Það eru þó hófleg viðbrögð miðað við að ekki eru nema fjórir dagar síðan ríflega 200 þúsund manns þurftu að yfirgefa heimili sín þar á eynni vegna flóða í kjölfar ákafra rigninga enda er regntíminn hafinn þar eystra. Veðurstofa Japans gaf þrátt fyrir það út allsherjarviðvörun vegna eld- gossins, enda gæti það reynst hættulegt þó fáir búi á eða upp við fjallið enda er Sakurajima lifandi eldfjall þó það móki oftast. Ekki hafa enn borist neinar fregn- ir af eignatjóni, en Fumio Kishida forsætisráðherra hefur fyrirskipað varúðarráðstafanir ríkisins í sam- starfi við héraðsstjórnina, sem miða að því að geta flutt fólk í skyndingu burt af svæðinu, að hjálpargögn séu tiltæk á svæðinu ef á þurfi að halda og þar fram eftir götum. Sem fyrr segir er Sakurajima virk eldstöð og upp af fjallinu stígur ein- att strókur og aska, en sem slíkt er það vinsæll áfangastaður ferða- manna. Gosið í gær þeytti ösku, eld- glæringum og hraunslettum í allt að 2,5 km fjarlægð frá gígnum og strókurinn náði í meira en km hæð upp í loft, þar sem hann hvarf í ský. Veðurstofa Japans fylgist vel með eldfjallinu alla daga, en varúðarráð- stafanirnar nú má m.a. rekja til þess að landris hefur orðið við fjallið, sem bendir til þess að þar sé farið að safnast duglega í kvikuhólf og meiri eldshræringa hugsanlega að vænta en endranær. Tugir virkra eldfjalla eru á Japanseyjum og mikil jarð- skjálftavirkni. AFP/JMA/Jiji Press Kyushu Sakurajima-eldfjall í Japan séð um sjálfvirka myndavél. Eldfjall rumskar af svefni syðst í Japan - Rýmingaráætlun tekin í gagnið Olof Scholz Þýskalands- kanslari hefur sjálfsagt talið vandræði sín ærin fyrir þegar refur í Potsdam í útjaðri Berlínar gerði sér lítið fyrir og afhjúp- aði margvísleg trúnaðarskjöl, sem kanslarinn og eiginkona hans höfðu sett út í ruslapoka kvöldið fyrir sorphirðu. Rebbi hefur sjálf- sagt leitað einhvers ætilegs, en skjölin fuku út um veg. Eftir því sem næst verður komist vörðuðu skjölin einkum eiginkonu hans, Brittu Ernst, en hún verður gestgjafi maka á leiðtogafundi G7 og í skjölum mátti lesa eitt og ann- að um þá. Meðal skjalanna munu þó hafa verið ýmis önnur og viðkvæmari skjöl, sem aldrei áttu að fara úr stjórnarráðinu. ÞÝSKALAND Rebbi afhjúpar ríkisleyndarmál Olof Scholz Frans páfi kom til Kanada í gær, en þangað er hann kominn í „pílagrímsferð iðrunar og yfir- bótar“ eins og það var orðað af talsmönnum í Páfagarði. Forsætisráð- herra Kanada og fleiri embætt- ismenn tóku á móti páfa á flug- vellinum í Edmonton í Alberta-fylki. Páfi mun samt fyrst og fremst hitta fulltrúa þjóða frumbyggja í Kanada í því skyni að hlýða á frásagnir þeirra og um- kvartanir vegna meðferðar þjóna kaþólsku kirkjunnar á þeim, eink- um börnum sem sættu harðræði og ofbeldi í skólum á hennar veg- um. Páfi hyggst biðjast fyrirgefn- ingar á misgjörðum, sem unnar voru í nafni eða undir merkjum kirkjunnar. KANADA Páfi biður frum- byggja fyrirgefningar Frans páfi Úkraínsk stjórnvöld vinna að því hörðum höndum að hefja kornút- flutning um hafnir sínar í Svartahafi á ný. Þær hafa verið lokaðar frá því að innrás Rússa hófst í febrúar og rússneskur floti úti fyrir ströndum Úkraínu hefur séð til þess að engin skipaumferð hefur verið um þær. Árásir Rússa á skotmörk í höfninni í Ódessa, helstu hafnarborg við Svartahaf, nú um helgina voru hins vegar ekki til þess fallnar að auka trú manna á að samkomulagið héldi. Rússar fullyrtu hins vegar að árásir sínar hefðu verið hárnákvæmar og einungis beinst að hernaðarlegum skotmörkum við og í höfninni. Þær hefðu í engu beinst að matvæla- útflutningi. Úkraínuher staðfesti fyr- ir sitt leyti að rússnesk flugskeyti hefðu ekki hæft korngeymslur við höfnina. Hafnbannið hefur haft alvarlegar efnahagsafleiðingar fyrir Úkraínu, sem er eitt mesta landbúnaðarland heims. Á meðan korngeymslur þar í landi hafa fyllst og ekkert af korninu komist á markað hefur heimsmark- aðsverð á korni hækkað enn meira og ýtt undir verðbólgu á heimsvísu, en um leið grafið undan fæðuöryggi, ekki síst í fátækari löndum heims. Til þess að lina þær þrautir náðist sam- komulag milli Rússa og Úkraínu- manna fyrir tilstilli Sameinuðu þjóð- anna og Tyrklands. Fylgjast þjóðir heims því grannt með hverju fram vindur og hvernig gengur að koma um 20 milljónum tonna af korni frá Úkraínu og á markað. Slær í baksegl Rússa Liðin vika markaði þau tímamót í stríðinu, sem nú hefur staðið í fimm mánuði, að Rússum mistókst að leggja meira land undir sig í fyrsta sinn. Þrátt fyrir að þeim hafi gengið upp og ofan við innrásina hefur þeim þó hingað til tekist að vinna land í hverri viku þar til nú. Ekki er þó óhætt að lesa of mikið í það eða að halda að stríðsgæfan sé að snúast, þó Rússar virðist vera að vinda ofan af stórsókn sinni í Donbas. Flestir hernaðarsérfræðingar telja að með því vilji þeir einfaldlega veita hermönnum sínum smáhvíld og taka til við nýjan liðssöfnuð fyrir næstu sókn að Sloviansk og Kramatorsk eftir sleitulausan hernað í Luhansk undanfarna tvo mánuði, sem sagður er hafa reynt mjög á baráttuþrek Rússa. Það var ekki heldur eins og Rússar væru að hopa og víða bárust fregnir af smáskærum og bardögum án þess að mikið mannfall eða aðrar stórvægilegar afleiðingar hlytust af. Ekki er ljóst hve langt hléið verð- ur, en rétt er að minnast þess að eftir að Vladímír Pútín hætti við sóknina að Kænugarði liðu sex vikur áður en hernaðurinn hófst af alvöru á ný. Rússar ráðast á Ódessa-höfn - Samkomulag um kornútflutning í hættu - Rússar segja hernaðarskotmörk gild - Hernaður Rússa heldur áfram en landvinningar eru farnir að láta á sér standa AFP/Borgarstjórn Ódessa Ódessa Slökkvibátur reynir að ráða niðurlögum elds í höfninni. Þrátt fyrir að hitabylgja í Evrópu sé í rénun velgir hún íbúum vestan- hafs enn hressilega undir uggum. Eins og önnur sumur hafa skógar- eldar kviknað víða líkt og sjá má hér til hægri, þar sem skóglendi skammt norðaustur af Mariposa í Kaliforníu stendur í ljósum logum. Hitametin hafa fallið víða, þar á meðal í borgum eins og Boston á Nýja-Englandi og Newark í New Jersey á austurströndinni. Mestir hafa hitarnir þó verið í suðvestur- ríkjunum og víðar syðst í Banda- ríkjunum, í Flórída, Texas og upp með Mississippi-ánni frá Mexíkó- flóa, en þar er fólk hins vegar van- ara öfgakenndum sumarhitum, rétt eins og í Mexíkó þar sem hitarnir eru gríðarlegir og velflestir íbúar án loftkælingar. Bandaríkin Hitabylgja og eldar vestanhafs AFP/David McNew

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.