Morgunblaðið - 25.07.2022, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 25.07.2022, Qupperneq 16
Frelsarinn okkar Jesús Kristur lifir. Hann er upprisinn og er kirkja hans merkið sem hann setur okkur fólkinu um tilvist sína. Sem fyrr er hann með fólk á jörðinni sem hann sjálfur hefur tek- ið frá fyrir sig til að boða trú, biðja fyrir fólki og hvetja til sam- félags við sig. Að þessu leyti hefur ekkert breyst og margur maðurinn tekið við Jesú og veit því um hvað hér er verið að tala. Kristur er í dag hinn sami og hann hefur verið frá upphafi og hefur ekkert breytt sér. Í slíkum upplýsingum býr styrkur á tímum endalausra breytinga og kúvendinga sem oft eru til þess eins gerðar að rugla menn í ríminu. Á öllum tímum hefur Kristur mætt andstöðu. Hún er skiljanleg. Erfitt er fyrir okkur að aðhyllast eitthvað sem við þekkjum ekki og heyrum gegnum lífsins gang alls konar frá öðru fólki sem okkur finnst ekki beint þægilegt að hug- leiða og lítt spennandi að und- irgangast líkt og vill verða þegar ekki er rétt greint frá. Ekki er allt alltaf merkt sannleikanum. Á meðan við enn erum á þessum stað er stutt í að við tök- um undir með fólki sem talar um trú á Krist sem annað orð yfir bindingu, bein höft og um eitthvað sem ekki má, ekki skal á tekið og ekki snert. Einnig þetta breyt- ist er Jesús snertir manneskju og hún fær að sjá hann eins og hann er og um leið að kynnast eðli hans. Birtist þá kærleikur hans og alltumlykjandi elska hans sem við hvergi annars staðar fáum fundið en við strangt til tekið leituðum að og birting- armyndin þetta endalausa flandur og að vera hvergi nokkurs staðar kyrr nema stutta stund. Við þekkjum ekki hinn sanna frið né neina sanna kyrrð sem hjartað eitt gefur og gerir. Fái það rétt skilyrði til að sýna fólki þetta. Enn sjáum við yfirburði Jesú í okkar lífi og að hann veit best hverju manneskja leitar eftir og hvað hún raunverulega þarf til að höndla frið sem segja má um að sé sannur friður. Á þessum stað kemur fram hvar fólk er á vegi statt og að styttra sé í friðinn en menn hyggja og geti útbúið sjálf- um sér hvar sem þeir eru staddir. Eina sem þarf er að gefa svona löguðu tækifæri. Fyrst þarf að vita. Hér kemur ys og þys við sögu sem reynir að kefja. Þau öfl eru og til sem gera sitt til að ekki verði af neinu slíku. Birting- armyndin er allt í kring af alls konar sem við gerum til að njóta og láta okkur líða vel af. Allt er þetta harla nærri og þarf æ sterk- ari bein til að standast og láta ekki sogast með af því sem í kring gerist og lifir og hrærist í deg- inum. Sumir básúna þetta og eiga ekki til nógu öflug lýsingarorð yf- ir verkið. Enginn efast um skemmtanagildið. Einnig við- urkenna allir frelsi fólks til að gera hvaðeina sem huga þess hugnast og vita einnig að er skammvinn sæla. Eftir fáeina daga er annað hljóð komið í strokkinn með lönguninni sem vaknaði í eitthvað nýtt sem fer að toga í. Fólk veit ekki að Kristur er harla nálægt að kalla til þess orðin um að koma til sín og að hann einn geti veitt hjartanu ró og manninum hvíld sem hann er tilbúinn til að eyða stórfé til að Kristur er fyrir mig Eftir Konráð Rúnar Friðfinnsson » Allt þetta og margt annað einnig upp- lýkst á fyrsta andartaki samfundanna við Jesú. Ég boða: Drottins er að gefa gjöfina og sýna fólki dýrð sína. Konráð Rúnar Friðfinnsson Höfundur er á eftirlaunum og hefur frá 1999 verið starfsmaður kirkj- unnar. eignast en gerir ekki. Nema þá um stundarsakir. Hér og nú býður Kristur hvíld. Lengra þarf ekki að fara. Allt samt hégómi og eftirsókn eftir vindi og við komumst að eftir að sannleikurinn Jesús blasti við og við orðin sannfærð um að vera ekki orðin tóm heldur orð sem veita hjarta okkar fyllingu þá sem við sóttumst alltaf eftir og leit- uðum að hér og hvar og töldum okkur finna á þessum stað og hin- um en upplifðum á ný þennan sama æpandi tómleika, sem við þekkjum orðið svo vel. En svo kom Kristur og allt sem við áðum vorum sólgin í hvarf og/ eða verulega breyttist um eitt og annað sem gaman væri að gera. Nú segjum við „ef Guð lofar“ – hann er orðinn allt í öllu og við söknum æ sjaldnar margs sem áð- ur var og erum æ spenntari fyrir vilja Guðs í okkar lífi og hvað hann hyggist fyrir með okkur í dag. Orðin „í dag“ eru orðin kost- ur. Hér sjáum við gríðarlega breyt- ingu á hugsun fólks. Kristur vill kenna okkur að lifa hvern dag fyrir sig í gleði og segir and- artakið okkur gefið til þess arna. Góð býtti. Svona líka upplifum við Krist með réttum hætti. Sama saga er sögð hjá öllum eftirfylgjendum Jesú. Þeir taka ekki lengur undir hrópin um höft, um bindingar né um beinar þvinganir hjá fólki sem leiti ásjár lifandi Guðs. Og við skiljum að sumt sem sagt var er ekki rétt lýsing á verkum frelsarans okkar og höfum komist að því að sé blekkingin stóra. Við sjálf höfum nefnilega upplifað stórkostleik Drottins og hans umfaðmandi kærleika og hversu miskunn- samur hann er og fús að fyrirgefa. Allt þetta og margt annað einnig upplýkst á fyrsta andartaki sam- fundanna við Jesú. Ég boða: Drottins er að gefa gjöfina og sýna fólki dýrð sína. Lifum í sátt við Jesú. Amen. 16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2022 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is Lagagreinin: „Með lögum skal land vort byggja, en ei með ólögum eyða“ kemur fram þegar á 13. öld í lögbókinni Járnsíðu og eru einkunnarorð lögreglunnar okkar í dag. Ekki er laust við að mér finnist á stund- um þekking íslenskra stjórnmálamanna á skoðunum og vilja kjósenda ekki með öllu ólíkur skilningi Marie Antoinette, eiginkonu Lúðvíks XVI., á að- stæðunum í Par- ísarborg á 18. öld. Mikill órói var í borg- inni og fór lýðurinn mikinn, sem ekki fór framhjá dömunni, sem fékk þá skýringu, að fólkið væri svangt og heimtaði brauð. Marie Antoinette spurði þá: „Af hverju borðar fólkið ekki bara kök- ur?“ Í seinustu alþingis- kosningum urðu menn lítið varir við að flokkarnir væru með vanda- mál þjóðfélagsins ofarlega á dag- skrá eða gæfu færi á því að um slík málefni væri rætt og hvað þá kosið. Því er spurt: „Hvernig vita þingmenn hvað þjóðin vill?“ Voru gerðar skoðanakannanir um hvort þjóðin vill afglæpavæðingu fíkni- efna, hertar reglur gagnvart að- komufólki eða áframhaldandi og þrengri aðild að Schengen? Í miðri covid-kreppunni ákvað Alþingi að byggja upp arðbæra innviði til styrkingar hagvext- inum. Forgangsröðunin var ákveð- in af Alþingi og var samhljóða ákvörðun þess, enginn andmælti. Hvað var valið? Jú, Hús íslensk- unnar, þjónustuhús fyrir Alþingi, viðbótarbygging fyrir stjórn- arráðið og höll fyrir Landsbank- ann, sem klædd er að utan með tilsniðnu stuðlabergi. Gaman væri að vita, hvað fermetrinn af því kostar niðursagaður og ákominn. Á sama tíma bjó Landspítalinn við mikinn fráflæðisvanda vegna 90 gamalmenna sem auk covid- pestarinnar neyddi spítalann til þess að fækka fjölda lífs- nauðsynlegra aðgerða, sem mynd- aði langa biðlista. Sjúklingar þjáð- ust, óvinnufærni lék margan manninn grátt og sumir hreinlega dóu. Ég efast um að þjóðin hefði val- ið sömu forgangsröðunina, hefði hún átt þess kost. Nefna má sáran skort á húsnæðisúrræðum fyrir fatlaða, hjúkrunarheimili fyrir aldraða sárvantar, en þau hefðu sennilega getað bætt úr fráflæð- isvanda Landspítalans, sem virðist enn við lýði. Er ekki bygging bankahallar á dýrustu lóð borgarinnar tíma- skekkja nú þegar þjónustan við viðskiptavinina fer að mestu fram rafrænt? Ekki segja okkur að bankastjórnin ráði ein hvernig eignum bankans er ráðstafað. Eigandinn, þjóðin, eða réttara sagt kjörnir fulltrúar hennar, hljóta að eiga að ráða. Lög um áfengisbann voru sett í Bandaríkjunum 1919 og voru í gildi til ársins 1933. Efalaust var þetta nauðsynleg aðgerð á sínum tíma, en afleiðingarnar urðu skelfilegar. Upphófst mikil glæpa- öld með ránum, morðum og í raun stríði og fram komu afstyrmi eins og t.d. Al Capone. Glæpasamtökin urðu æ voldugri og útvíkkuðu starfsemina þannig að þegar áfengisbanninu var aflétt voru þau klár í slaginn með nýrri tekjuafl- andi glæpastarfsemi. Áfengisbann var lögfest hér á landi þegar árið 1915 og það sennilega ekki að ástæðulausu. Brennivín fékkst í krambúðunum og óregla og drykkjuskapur mik- ill. Fréttir sögðu frá kaupstaðar- förum sem dýrkuðu Bakkus um of þannig að þeir týndu bæði varn- ingi og hestum. Bannið var að sjálfsögðu á allan hátt nauðsyn- legt lýðheilsumál, en samt reyndu margir að sniðganga það með landabruggun, enda arðbært lög- brot. ÁTVR var stofnað árið 1922 til þess að reyna að draga úr neyslu með háu verði og takmörkun að- gengis. Tekjurnar voru drjúgar og sanngjarnt að ríkissjóður fengi þær, hann bar jú og ber enn þungann af kostnaðinum vegna þess tjóns sem drykkjuskapurinn veldur. Kvartað er undan ónógu aðgengi og virðist það helst vera vegna þess að ekki er hægt að komast í vínbúð hvar sem er og hvenær sem er. Skert aðgengi er vænleg leið til þess að draga úr neyslu en græðgin pípir á alla skynsemi og réttur til áfengissölu settur ofar öllu, í nafni frelsis. Og nú eru ný og enn skaðlegri fíkniefni komin til sögunnar og baráttan við þau virðist byggð á gömlum hugmyndum um áfengis- bönnin sem engum árangri skil- uðu til útrýmingar áfengisneyslu. Refsvert er að framleiða dóp, dreifa því, eiga það og neyta þess, en ekkert virðist geta minnkað neysluna, nema síður sé. Og mynstrið er svipað, alltaf nægir kaupendur og nóg framboð. Nýj- asta hugmyndin frá Alþingi er af- glæpavæðing neysluskammta. Í fljótu bragði virðist það aðeins auðvelda sölumönnum dópsins starfið. Einn neysluskammtur í vasanum og fleiri vel geymdir, ekki langt frá sölusvæðinu. Baráttan við sprúttið endaði með því, að hver einstaklingur þarf nú að bera ábyrgð á sjálfum sér og sinni neyslu en ofsagróði glæpamanna af ólöglegri áfengis- sölu er liðin tíð. Dópið er bannað og glæpahópar um víða veröld hirða offjár af ólánsömum fíklum, sem lítið virðist vera hægt að hjálpa. Boð og bönn gagnast lítt gegn fíknivanda einstaklingsins. Fíkniefnaheimurinn er óvæginn, stór og gróðinn eftir því. Hvernig á að vinna bug á hon- um? Venjuleg samfélög manna eru alveg varnarlaus, því lagaleg bönn og refsingar skila engum árangri. Hvað er það sem gæti eyðilagt svo öflugan markað? Jú, aðili sem býður lægra verð löglega. Finnið hann og þrautin er leyst. Með lögum skal land byggja Eftir Werner Ívan Rasmusson »Af hverju borðar fólk- ið ekki bara kökur? Werner Ívan Rasmusson Höfundur er eldri borgari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.