Morgunblaðið - 25.07.2022, Page 22

Morgunblaðið - 25.07.2022, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2022 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Boðinn Bingó kl. 13:00. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00. Morgunleikfimi með Halldóru á RUV kl. 9:45-10:00. Ganga kl. 10:00. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13:00-13:10. Félagsvist kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8:30, heitt á könnunni. Súmbadansleikfimi með Auði Hörpu kl. 10:00. Verið öll velkomin. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Bridge kl.13:00. Vatnslitir kl. 13:30. Hádegismatur kl. 11:30 – 12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Borgum Gönguhópar frá Borgum og inni í Egilshöll.Tveir styrkleikaflokkar svo að allir finna göngu við sitt hæfi kl. 10:00. Dans- leikfimi með Auði Hörpu kl.11. Félagsvist í Borgum kl. 12:30. Prjónað til góðs kl.13:00. Gleðin býr í Borgum. Seltjarnarnes Kaffi í króknum frá kl. 9:00. Jóga/leikfimi í salnum kl. 11:00. Frjáls stund; handavinna samvera og kaffi kl. 13:00. Vatns- leikfimi í Sundlaug Seltjarnarnes kl. 18:30. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Málarar MÁLARAR Tökum að okkur alla almenna málningarvinnu. Unnið af fagmönnum með áratuga reynslu, sanngjarnir í verði. Upplýsingar í síma 782 4540 og loggildurmalari@gmail.com Ýmislegt Teikningaprentun Sandblástursfilmur Húsviðhald Húsaviðgerðir www.husco.is Sími 555 1947 Gsm 894 0217 Vantar þig múrara? FINNA.is ✝ Þórdís Sigur- laug Friðriks- dóttir fæddist á Sauðárkróki 13. maí 1932. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Hrafnistu að Sléttuvegi 25, Reykjavík þann 16. júlí sl. Foreldrar henn- ar voru Fjóla Jónsdóttir, hús- móðir, f. 30.4. 1897 á Bratta- völlum á Ársskógsströnd, d. 2.6. 1981 og Friðrik Júlíusson, verslunarmaður, f. 10.7. 1895 á Akureyri, d. 31.10. 1970. Systkini Þórdísar eru Jón Brands, f. 30.1. 1920, d. 17.9. 1927, Halldóra Brands, f. 13.7. 1922, d. 22.6. 1923, Kristján Júlíus, f. 31.1. 1924, d. 23.4. 1994, María, f. 28.2. dóttir húsmóðir. Börn Þórdísar og Guðbjarts eru: 1) Hafþór Einar, f. 2.5. 1962, kvæntur Deljane Kum- Naksch, f. 1973 og eru þau búsett í Englandi. 2) Helgi Þór, f. 23.5. 1964, kvæntur Berglindi Ólafsdóttur, f. 1965, börn þeirra eru: a) Rakel Adolphsdóttir, f. 1986, dóttir Berglindar og fósturdóttir hans, gift Andra Egilssyni, f. 1985 og eiga þau 2 dætur, Málfríði f. 2015 og Hallveigu, f. 2019, b) Þórdís, f. 1997, unnusti hennar er Aron Guðnason f. 1999 Þórdís bjó í foreldrahúsum á Sauðárkróki þar til hún fluttist til Ísafjarðar þegar hún giftist Guðbjarti. Hún starfaði um tíma við hótel- og umönnunarstörf hérlendis og í Svíþjóð en lengst af við fisk- vinnslu og húsmóðurstörf á Ísafirði. Útför Þórdísar fer fram frá Háteigskirkju í dag, 25. júlí 2022, klukkan 15. Streymi: https://tinyurl.com/ytrs9ezx 1926, d. 21.5. 2015, Jón Halldór, f. 10.12. 1927, d 24.6. 2017, Kristín Ingibjörg f. 27.12. 1929, Sigríður Lovísa, f. 19.2. 1930, d. 1.12. 2020, Snorri Sveinn, f. 1.12. 1934, d. 31.5. 1999, Haraldur, f. 1.12. 1940 og Gunnar, f. 9.5 941 d. 19.8. 2013. Eiginmaður Þórdísar var Guðbjartur Finnbjörnsson, loftskeytamaður og málara- meistari, f. 15.5. 1928, hann lést 10.5. 1997, þau giftust í Hóladómkirkju 1. júlí 1961. Foreldrar hans voru Finn- björn Finnbjörnsson málara- meistari og Sigríður Þórðar- Elsku amma Dísa. Það er þyngra en tárum taki að hugsa til þess að samveru- stundir okkar verði ekki fleiri en til hughreystingar horfum við systkinin full þakklætis yfir far- inn veg og hlýjum okkur við ljúf- ar og dýrmætar minningar. Það var okkar lífsins lukka að þú skyldir fylgja okkur í gegnum lífið. Þú varst okkar og við vorum þín, það fór aldrei á milli mála. Þú umvafðir okkur allri þeirri ást og kærleik sem þú hafðir að gefa og sinntir okkur af natni og um- hyggju. Þú gafst allra bestu og mýkstu faðmlögin, mættir okkur alltaf með brosi á vör, sýndir lífi okkar og börnum óspart áhuga og hrósaðir okkur ávallt fyrir af- rek okkar, stór og smá. Fyrir þetta verðum við ávallt þakklát. Við hlýjum okkur við dýrmæt- ar minningar um spjall yfir kaffi- bolla, þar sem þú sagðir iðulega sögur úr æsku þinni og af æsku- árum pabba af svo mikilli ná- kvæmni að tíminn stóð í stað. Við hlýjum okkur við minningar um brosið þitt, glettni og húmor sem var svo einkennandi fyrir þig og okkur til fyrirmyndar. Jákvæðni þín, æðruleysi og lífsviðmót munu veita okkur og börnum okkar innblástur út lífið. Takk fyrir að vera okkar, að deila með okkur gleðinni og kær- leiknum. Þú munt ávallt eiga pláss í hjörtum okkar. Englar eins og þú: Þú tekur þig svo vel út hvar sem þú ert. Ótrúlega dýrmætt eintak, sólin sem yljar og umhverfið vermir. Þú glæðir tilveruna gleði með gefandi nærveru og færir bros á brá svo það birtir til í sálinni. Sólin sem bræðir hjörtun. Í mannhafinu er gott að vita af englum eins og þér. Því að þú ert sólin mín sem aldrei dregur fyrir. (Sigurbjörn Þorkelsson) Þín að eilífu, Stefán Freyr, Sveinn Ingvi, Sigrún Árdís og fjölskyldur. Afmæli ömmu Dísu markaði sumarupphaf í mínum huga enda átti hún afmæli um miðjan maí og þegar ég hugsa til hennar er ávallt bjart og hlýtt. Eitt sumarið þegar ég var barn fékk ég að dvelja hjá henni og Guðbjarti afa í fallega húsinu þeirra á Ísafirði einsömul í nokkra daga. Ég hugsa reglulega til þess tíma og hvað mér leið vel hjá þeim enda hugsaði amma sérstaklega vel um mig. Það var mikil friðsæld í húsinu á Hrannargötu 1 og margt að uppgötva á fjölmörgum hæð- um og herbergjum þess. Eitt her- bergið var einungis með hljóð- færum sem var í miklu uppáhaldi hjá mér. Uppi á risi gat ég leikið með dúkkur og svo kallaði amma á mig niður á fyrstu hæð í hádeg- ismat. Eftir það kveikti hún á framhaldsútvarpssögu sem ég undi mér við að hlusta á og svo fór ég í ævintýraleiðangur út í fallega garðinn þeirra sem var fullur af persónum og kynjaver- um sem amma hafði búið til og átti sögur um. Hún leiddi mig líka um Ísafjarðarbæ og sagði mér enn fleiri sögur. Amma sýndi mér ætíð mikla natni og gaf mér mikið rými til að dvelja í mínum eigin ævintýraheimi sem hún kynti undir. Ég var dálítið feimin við þau ömmu og afa í upphafi heim- sóknarinnar enda höfðu þau fyrst komið inn í líf mitt nokkrum ár- um áður og bjuggu auk þess langt í burtu, en feimnin hafði horfið undir lok heimsóknarinn- ar. Nokkru eftir þessa heimsókn fluttu þau til Reykjavíkur vegna veikinda afa. Þá bjuggu þau í Ból- staðarhlíð steinsnar frá okkur fjölskyldunni og eftir það hitti ég þau oft. Skömmu eftir að þau fluttu suður féll afi frá og svo kom systir mín í heiminn. Hún fékk nafnið Þórdís í höfuðið á ömmu og voru þær mjög nánar og sam- rýndar alla tíð. Mér hefur alltaf þótt dýrmætt að fylgjast með sambandi þeirra. Amma Dísa fór í gegnum hversdaginn af einstakri ró og hún hafði hlýja og milda nær- veru. Hún var mikil hannyrða- kona og hugaði vel að sínu nær- umhverfi ásamt því að vera bæði söngelsk og músíkölsk. Ég mun sakna þess að koma í heimsókn í gulu stofuna hennar í Bólstaðar- hlíð og ég vildi óska þess að við hefðum fengið fleiri samveru- stundir með henni á Hrafnistu þar sem hún dvaldi síðustu ævi- árin. Amma var einstaklega barngóð og ljómaði þegar dætur mínar komu í heimsókn. Þeim fannst ekki síður gaman að teikna handa henni myndir og spila fyrir hana lögin sem þær voru að æfa á fiðlu. Ó, leyf mér þig að leiða til landsins fjalla heiða með sælu sumrin löng. Þar angar blóma breiða við blíðan fuglasöng. Þar aðeins yndi fann ég þar aðeins við mig kann ég þar batt mig tryggða band því þar er allt sem ann ég, það er mitt draumaland. Það er mitt draumaland (Jón Trausti) Hvíl í friði elsku amma mín. Rakel Adolphsdóttir. Elsku Dísa, við þökkum þér kærleik þinn, umhyggju og tryggð frá fyrstu stund, í lífi Ein- ars og síðar fjölskyldu hans alla tíð. Þú varst ætíð glaðlynd, já- kvæð, umburðarlynd, góður sálu- félagi og samferðafólki þínu frá- bær fyrirmynd. Nærvera þín var svo einstök og björt. Við munum sakna allra góðu samverustund- anna. Minning þín er ljós í lífi okkar. Blómin falla, fölskva slær á flestan ljóma. – Aldrei hverfur angan sumra blóma. Þannig varstu vinur, mér sem vorið bjarta. Það sem gafstu geymist mér í hjarta. Ilma sprotar, anga lauf sem aldrei falla. Drottinn launi elskuna þína alla. (Sigurbjörn Einarsson) Farðu í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt. Einar Baldvin, Jóna Sól, og fjölskylda. Með Þórdísi Sigurlaugu Frið- riksdóttur er gengin sú síðasta í fjölskyldunni af kynslóð móður minnar, öll systkinin og makar eru nú látin. Ég hitti Dísu fyrst þegar hún kom með Guðbjarti frænda mínum að sækja mig þar sem ég var smákríli í sveit á Brekku í Skagafirði 1960. Þau höfðu þá gengið í hjónaband dag- inn áður og buðu mér á Sauðár- krók þar sem ég fékk það ágæta hlutverk að úða í mig kökum úr veislunni og vera þannig eini fulltrúi fjölskyldu Guðbjarts við brúðkaupið. Ég sá strax að frændi minn hafði valið vel, þetta var greinilega mjög góð kona. Þegar ég var 11 ára réð ég mig til þeirra í vist fyrir vestan, þóttist ætla að passa strákana Hafþór og Helga og hjálpa til á heimilinu. Ég minnist þess nú ekki að þetta hafi verið mikil barnaþrælkun, man bara eftir að hafa verið úti að leika mér og skíta mig út alla daga og eflaust var lítill vinnu- sparnaður fyrir Dísu að hafa þessa vinnukonu. Dísa var inni- lega góð við mig og dekraði við mig í einu og öllu, nennti að tala endalaust við mig, svara misgáfu- legum spurningum, grínast og segja mér sögur að heiman, frá Króknum sem hún saknaði greinilega mikið. Þegar ég svo rann á rassinn og sleit vistar- bandið leysti hún mig út með því að sauma á mig rauðan og fal- legan kjól sem varð mikið uppá- hald hjá mér. Samband okkar var hlýtt og sterkt eftir þetta og átti eflaust sinn þátt í því að ég ákvað að ljúka stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Ísafirði. Þá bjó ég á vistinni og var í fæði hjá þeim á efri hæðinni í Hrannargötunni hjá afa og Rögnu og leið eins og blóma í eggi. Ómetanlegur styrkur var að því að hafa Burra og Dísu í nánd þegar við Krummi fórum að búa og fjölskyldan stækkaði. Sam- skiptin voru mikil og góð, heim- sóknir tíðar á báða bóga. Dísa hafði fallega söngrödd, söng með kirkjukórnum og Sunnukórnum, sótti söngnám- skeið og lagði mikla alúð við sönginn eins og allt annað sem hún tók sér fyrir hendur. Hún var líka listræn og skapandi, málaði t.d. skemmtilega steina sem hún skreytti garðinn með, svo listi- lega að hún fékk sérstaka viður- kenningu fyrir það frá bæjaryf- irvöldum. Þegar þau fluttu suður urðu sumir steinanna eftir hjá okkur og gleðja nú farþega skemmtiferðaskipanna og aðra sem eiga leið hjá garðinum okk- ar. Þegar Guðbjartur veiktist ákváðu þau í sameiningu að hann skyldi njóta síðustu ævidaganna heima. Ekki er hægt að hugsa sér betri umönnun en hann fékk hjá Dísu. Án efa var það þeim báðum afar mikilvægt og víst er að það létti honum baráttuna við hinn erfiða sjúkdóm, að fá að heyja hana heima hjá henni, umvafinn ást og hlýju. Guðbjartur lést í maí 1997. Dísu var þá og alla tíð mikill styrkur að því að hafa fjölskyldu sína í seilingarfjarlægð, ekki síst Þórdísi ömmustelpuna sína og nöfnu, það var henni ómetanlegt. Elsku Helgi Þór og Hafþór Ein- ar, ég sendi ykkur og fjölskyldum ykkar mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Þið hafið misst mikið en ég veit að þið eigið líka fjár- sjóð dýrmætra minninga sem eiga eftir að ylja um ókomin ár. Herdís Magnea Huebner. Elsku Dísa mín. Hlátur, glaðværð og hlýja eru þau orð sem í mínum huga lýsa þér best. Að hlæja með þér var dásamlegt, að spjalla við þig var skemmtilegt og að finna væntum- þykju þína var notalegt. Þar sem þú varst var alltaf hlátur og alltaf gleði. Dísa frænka á Ísafirði. Það varst þú. Frænkan sem átti fal- lega húsið á Hrannargötunni, með fallega garðinum sem prýddur var steinakörlunum þín- um sem þú málaðir svo fallega. Frænkan sem söng í kirkju- kórnum, vann í frystihúsinu og var gift honum Burra, sem bæði var loftskeytamaður og málari. Frænkan sem hafði verið svo góð við stóru bræður mína, þá Hafþór og Einar, og frænkan sem var svo góð vinkona hennar systur sinnar – mömmu minnar. Ég hitti þig ekki oft á Ísafjarðarárunum, einstaka sinn- um þó ef þú áttir erindi suður, en þrátt fyrir það fannst mér ég þekkja þig. Þekkja þig svo vel. Svo komstu suður og fluttir í Bólstaðarhlíðina og ég hitti þig oftar. Hitti þig með mömmu, hló með ykkur og hlustaði á ykkur rifja upp allar skemmtilegu sög- urnar af Króknum og sögurnar af ykkur systrum á Reykjavíkurár- um ykkar. Eftir að mamma dó hitti ég þig sjaldnar, og sannarlega allt of sjaldan. Ég finn það nú, þegar þú ert farin, að með þér er svo margt annað farið. Ekki bara þú sjálf, heldur svo margt annað líka. Í þér var einhvern veginn bæði partur af ömmu og partur af mömmu, og ég sakna ykkar allra. Elsku Dísa mín. Takk fyrir hláturinn, gleðina og hlýjuna. Frændum mínum, Hafþóri og Helga, og fjölskyldum þeirra votta ég einlæga samúð og sömu- leiðis Einari bróður mínum, Jónu og börnum þeirra, sem voru þér svo kær. Bið fyrir kveðjur í Sumarland- ið. Þín frænka, Kristín Fjóla. Þórdís Sigurlaug Friðriksdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.