Morgunblaðið - 25.07.2022, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2022
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes
www.gaeludyr.is
Njótið
sumarsins
30 ÁRA Hildur er fædd
og uppalin í Reykjavík en
flutti ásamt fjölskyldu
sinni til Lúxemborgar 12
ára gömul og bjó þar til 16
ára aldurs þegar hún hóf
nám í Verslunarskóla Ís-
lands þar sem hún var virk
bæði í leiklist og tónlist og
söng síðar í ýmsum söng-
leikjum í Borgarleikhús-
inu. Eftir útskrift stundaði
Hildur nám í viðskipta-
fræði við Háskólann í
Reykjavík og lauk þar BS-
gráðu en leiklistin kallaði á
hana og skráði hún sig í
nám á leiklistarbraut í
Listaháskóla Íslands.
Strax eftir útskrift hóf
Hildur störf í Þjóðleikhús-
inu og tók við titilhlutverk-
inu í Ronju Ræningja-
dóttur af Sölku Sól Eyfeld.
Einnig lék hún í Nashyrn-
ingunum, Ör (eða Mað-
urinn er eina dýrið sem grætur), Meistaranum og Margarítu, Atómstöðinni –
endurliti og Útsendingu. Hildur lék þá Ebbu í vinsælu sjónvarpsþáttunum
Venjulegt fólk sem sýndir voru í Sjónvarpi Símans. Hún stendur nú í ströngu
við að undirbúa sýningar. „Nú er ég að æfa fyrir sýningu á söngleik sem heit-
ir Sem á himni, og verður frumsýndur í september. Ég tek þátt í öðru verki
sem sýnt verður í janúar og enn öðru í mars á næsta ári svo það verður nóg
að gera á næsta leikári.“
FJÖLSKYLDA Maki Hildar er Kjartan Ottósson, f. 7.5. 1989, ráðgjafi. Þau
eiga dótturina Kolbrúnu Völu Kjartansdóttur, f. 7.5. 2021, og er annað barn á
leiðinni í desember. Foreldrar Hildar eru Baldur Þór Bjarnason, f. 3.7. 1969,
flugstjóri hjá Icelandair, og Auður Stefánsdóttir, flugfreyja hjá Icelandair.
Hildur Vala Baldursdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú ert fullur eftirvæntingar. Dóm-
greind þín er ekki í fullu lagi. Lífið hefur ein-
kennst af of miklu stressi upp á síðkastið
og kominn tími til þess að taka því aðeins
rólegar.
20. apríl - 20. maí +
Naut Gættu þess að þú látir ekki erfiðleika
þína bitna á þínum nánustu. Fólk virðist í
frekar neikvætt þessa dagana.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Samræður þínar við foreldra og
yfirmenn geta orðið svolítið erfiðar í dag.
Ekki neyða skoðunum þínum upp á aðra.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Það er eins og allir vilji ná athygli
þinni og þú mátt hafa þig allan við. Farðu
þér hægt í fjármálum, kannaðu alla mögu-
leika vandlega og settu öryggið á oddinn.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú ert það öruggur að þú getur hopp-
að í störf sem þú hefur varla þekkingu til að
sjá um. Hvort sem gengur vel eða illa viltu
að það verði eftirminnilegt.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Mundu að fæstir hlutir eru sem þeir
sýnast og að sjaldan veldur einn þá tveir
deila. Láttu ekki aðra fara í taugarnar á þér.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Líklegt er að gildismat annarra hafi
áhrif á þig á næstunni. Forðastu fánýtt
slúður. Kannski hrynur tölvukerfið, eða þá
að rafmagnið fer.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Gerðu það sem flestum líkar
ekki að gera. Sýndu varkárni í rómantíkinni,
sama hversu spenntir báðir aðilar virðast
vera.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Það eru líkur á að þú rekist á
gamla elskhuga. Hætt er við að þú látir
freistast og farir yfir strikið í dag og heilsan
bíði tjón af.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Láttu ekki dagdrauma spilla fyr-
ir árangri þínum í dag. Trygglyndi þitt er
augljóst en hugsanlega vanhugsað.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Láttu það eftir þér að skvetta
svolítið úr klaufunum en gættu allrar hátt-
vísi. Gættu þess þó að gera ekki úlfalda úr
mýflugu.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú hefur lofað upp í ermina á þér og
sérð nú fram á að geta ekki staðið við orð
þín nema biðja um aðstoð. Ef það er ekki
hægt þá biddu vinnufélaga þína um að láta
þig í friði.
barn, fyrst í barnakór Laugargerðis-
skóla og síðan í kirkjukórum presta-
kallsins og í skólakórnum á Akra-
nesi. Hún hefur áhuga á tónlist og
hefur flutt frumsamið efni inn á tvo
geisladiska, auk þess að halda
nokkra tónleika á sínum tíma. Ólína
hefur einnig samið ljóð og hafa nokk-
ur ljóð eftir hana birst opinberlega.
„Söfnun og varðveisla gamalla
muna og heimilda er stórt áhugamál
hjá mér og vinn ég að skráningu
þeirra auk þess að koma upp sýn-
ingu í Samkomuhúsinu á Arn-
arstapa. Markmiðið er að skrá sögu
ið allan ársins hring. „Í Samkomu-
húsinu hef ég leitast við að varðveita
muni og heimildir um fjölskyldu
mína og svæðið og koma þar upp
sýningu sem því tengist. Þar er einn-
ig rekin handverks- og listmuna-
verslunin Diddabúð.“
Ólína hefur sinnt félagsstörfum
frá unglingsárum og var í stjórn
Ungmennafélagsins Trausta og síð-
ar formaður þess. Hún sat í hrepps-
nefnd Breiðuvíkurhrepps og m.a. í
hafnarnefnd og var í sóknarnefnd
Hellnakirkju áratugum saman. Hún
hefur sungið í kórum frá því hún var
Ó
lína Gunnlaugsdóttir
fæddist á Landspít-
alanum í Reykjavík 25.
júlí 1962. Hún ólst upp
á Ökrum á Hellnum í
Breiðuvíkurhreppi, þar sem hún býr
enn þann dag í dag. Hún gekk í
heimavistarskólann í Laugargerði í
Eyjahreppi á Snæfellsnesi frá sjö
ára aldri og lauk grunnskólaprófi
þaðan. Síðar fór hún í Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi og út-
skrifaðist þar af uppeldisbraut, verk-
námsbraut tréiðna í húsgagnasmíði
og lauk námi í tækniteiknun og stúd-
entsprófi af félagsfræðabraut. Ólína
er með BA-próf í mannfræði frá Há-
skóla Íslands og er matartæknir frá
Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Hún er núna í diplómamámi í safna-
fræði við Háskóla Íslands. Þar að
auki hefur Ólína lokið skipstjórnar-
námi á smábáta og er einnig með
mótorhjólapróf.
„Framan af vann ég aðallega í
fiski á Arnarstapa og við löndun þar
en líka aðeins við smíðar með föður
mínum. Auk þess hef ég aðeins unnið
við afgreiðslu í sjoppum, við lifrar-
bræðslu, síldarfrystingu, barna-
gæslu og var á handfærum á trillu
okkar hjóna í nokkur ár.“
Ólína var tækniteiknari fyrir
byggingarfulltrúa Vesturlands og
Fasteignamat ríkisins og í tvö ár fyr-
ir landbúnaðarráðuneytið í tíma-
bundnu verkefni sem aðstoðarkona.
„Ég vann að bústörfum og fisk-
vinnslu með foreldrum mínum og
fjölskyldu á Hellnum frá barnsaldri
og áfram þegar við eiginmaður minn
settumst að á Ökrum á Hellnum, þar
sem við búum ennþá en við vorum
með sauðfé og einnig hesta í nokkur
ár. Frá árinu 2010 hef ég rekið veit-
ingahúsið Samkomuhúsið á Arnar-
stapa en það er gamla félagsheimili
Breiðuvíkurhrepps sem við keyptum
árið 2008.“
Veitingahúsið leggur áherslu á
einfaldan íslenskan mat og menning-
artengsl við sögu svæðisins og er op-
Hellna á ítarlegan hátt og gefa út
þegar þar að kemur.“
Fjölskylda
Eiginmaður Ólínu er Kristinn Jón
Einarsson, f. 30.10. 1962, húsgagna-
smiður og trétæknir. Þau eru búsett
á Ökrum á Hellnum á Snæfellsnesi.
Foreldrar Kristins: Einar Jón
Pétursson og Helga Sigurborg
Bjarnadóttir, hjón og bændur á
Barðastöðum í Staðarsveit, síðar bú-
sett í Reykjavík.
Stjúpsonur Ólínu og sonur Krist-
ins úr fyrra sambandi er Helgi
Ólína Gunnlaugsdóttir, veitingakona og eigandi Samkomuhússins á Stapa – 60 ára
Safnafræði Ólína er í diplómamámi í safnafræði við Há-
skóla Íslands og er markmið hennar að skrá sögu Hellna.
Vill varðveita sögu
fólksins og bæjarins
Systkin Ólína ásamt bróður sínum, Þorvarði Gunn-
laugssyni fiskihagfræðingi, sem búsettur er í Noregi.
Til hamingju með daginn