Morgunblaðið - 25.07.2022, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 25.07.2022, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2022 Verið velkomin í sjónmælingu Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið virka daga 9.30–18 Jólabarnið Jólnir Nýtt gos gerði vart við sig annan í jólum 1965 um 900 metra suðvestur af Surtsey. Það var eins og ás hefði verið dreginn úr norðaustri þaðan sem Syrtlingur gaus, í gegnum Surts- ey og til suðvesturs að þessari þriðju gosstöð. Hún fékk nafnið Jólnir enda hófst gosið á jólum. Þar gaus úr tveimur öflugum gígum og eyjan náði fljótlega 100 metra lengd og 50 metra breidd. Hörð vetrarveður herjuðu á Jólni og í janúarlok hvarf hann af yfirborðinu í miklu óveðri. Jólnir stækkaði svo og minnkaði á víxl og í fimmta sinn hvarf eyjan sjónum í nokkra daga í óveðri í lok apríl 1966. Hún reis aftur úr hafi og áður en yfir lauk var Jólnir orðinn 570 metrar á lengd og náði mest 62 metra hæð. Páll Helgason stóð vaktina og gætti þess að enginn færi á land á nýrri eyju á undan Eyjamönnum. Hörð vetrar- veður í janúar gáfu ekki mörg færi á að stinga niður fæti á Jólni. Hvað þá að sigla á litlum bátum út að gosstöðvunum þar sem eyjan var sífellt að hverfa í hafið, birtast aftur og stækka og minnka á víxl. Með árvekni og eit- ilhörðum ásetningi náði Palli að fara með Stefáni bróður sínum á bátnum Skutlu út í Jólni og stinga stefni báts- ins að landi á milli lægða og brælu- daga. Eyjan var bara gljúp og laus aska og Palli gat lítið athafnað sig í sykurmjúkri öskunni. Goshryðjurnar ógnvænlegar og stórhættulegar því aðeins voru örfá skref að kötlunum tveimur sem hömuðust eins og and- skotinn Óli Gränz kominn um borð Palli kom í Jómsborg og hitti þar fyrir Ólaf Gränz vin sinn og sagði honum að enn væri verið að banna mannaferðir í Surtsey og nú líka í Jólni. Palli var með þá hugmynd að fara út í Jólni með tíu manna tjald sem hann var nýbúinn að kaupa í Vosbúð. Tjaldið var frá Seglagerðinni Ægi í Reykjavík og hann ætlaði að kippa nokkrum klappstólum með ef gesti bæri að garði. Það væri upplagt að fylgjast með gosinu í Jólni í mak- indum inni í tjaldinu og taka myndir. Það þurfti ekki sérstaklega mikið til að fá Óla Gränz með í slíka ferð. Óli hafði samband við Jógvan Hansen sem var skipstjóri á Hrafni Sveinbjarnarsyni VE. Óli sagði Jógvan að til stæði að taka nokkrar myndir af gosinu og hans hlutverk væri að lóna með þá í kringum eyna meðan myndir væru teknar. NEI var ekki til í orðabók Jógvans þegar Óli Gränz bað um greiða. Hann var líka alveg klár á því að ferðin væri ekki bara til að taka myndir af gosinu, það var of gott og saklaust til að vera satt þegar Óli Gränz átti í hlut! Þegar þeir félagar, Óli og Palli, mættu niður á bryggju ásamt Hjálm- ari Guðnasyni (Hjalla á Vegamótum) og Hlöðveri Pálssyni (Hlöbba í Þingholti) var Jógvan búinn að setja í gang. Hann hafði boðið þremur Færeyingum með og allt var klárt að leggja í ’ann. Hrafn Sveinbjarnarson sigldi út höfnina með gúmmíbát í slefi og lestaður af græjum um það leyti sem flestir Eyjamenn voru að koma heim eftir langan vinnudag. Eyjan sprakk Eftir þriggja tíma siglingu eru þeir komnir á gosstöðvarnar og lóna í kringum Jólni. Þeir eru að spá hvar sé best að taka land. Gosin í gígunum tveimur gengu á með hryðjum og það var mikill djöfulgangur með drunum og vikurspýjum í allar áttir. Milli gíganna var sprunga þvert í gegnum eyna, eins og hún væri að sökkva inn í sig. Gosstrókurinn breyttist í sífellu því gígarnir hrundu saman í hverju stoppi og gosstrókarnir beindust alltaf í nýjar áttir þegar gos byrjaði aftur. Færeyingarnir voru í stýrishúsinu á Hrafni og leist alls ekki á blikuna. Þeir héldu höndum yfir höfuð sér og tóku fyrir eyrun í mesta hávaðanum. Eyjapeyjarnir voru hins vegar uppteknir af því að finna stað til að taka land á eyjunni, tjalda og koma klappstólunum í land. Óli Gränz segir svo frá: Við sáum vík sem okkur leist vel á og Jógvan lónar þar mjög gætilega að. Þeir fara að gera klárt fyrir landtöku. Þá kemur óvænt spýja úr gosstróknum og glóandi hraun- bomba sem fyllti víkina sem við ætl- uðum að taka land í. Það var alveg ljóst að ef við hefðum verið komnir í fjöruborðið í víkinni hefðum við allir drepist og tjaldið og klappstólarnir komið að litlum notum. Hausinn á Jógvan stóð út úr glugganum á stýrishúsinu stjórn- borðsmegin. Honum leist ekkert á blikuna. Félagar hans frá Færeyjum voru sestir á gólfið og biðu örlaga sinna. Jógvan lónar með fjörunni og loks erum við á leið í land. Við byrj- um á því að setja upp tjaldið svo við getum setið inni og notið þess að fylgjast með gosinu í skjóli. Eyjan nötrar öll undir fótum okkar og það eru einhver ónot í okkur. Við erum sestir inn og byrjaðir að taka myndir út um opið á tjaldinu. Þarna sátum við eins og greifar á klappstólunum og gerðum óspart grín að friðlýsing- unni á gosstöðvunum. Það var samt engin biðröð af fólki sem vildi koma í heimsókn. Húmor okkar náði greini- lega ekki til allra og var alls ekki til útflutnings. Við erum búnir að koma okkur vel fyrir þegar hristingurinn í eynni eykst og drunurnar verða ærandi. Það er allt hreinlega að fara til and- skotans. Stór sletta skellur á tjaldinu sem lætur undan. Allt í kring falla gosefni og slettur úr stróknum með gríðarlegum hávaða yfir allt svæðið og út á sjó. Við sprettum úr stólunum og hlaupum í þungum og heitum vikrinum til sjávar. Yfir okkur skell- ur heitur gosmökkurinn og drullan sem fyllir hann sest í föt okkar og hár. Eyjan er hreinlega að springa í tætlur. Við náum að ýta gúmmí- bátnum frá og stingum okkur um borð en einhverjir lenda í sjónum. Við sáum ekki handa okkar skil þeg- ar við rérum lífróður eins og brjál- aðir menn í áttina að Hrafni Svein- bjarnarsyni. Þar tóku Færeyingarnir á móti okkur og drösluðu okkur um borð. Þeir voru viti sínu fjær af hræðslu karlagreyin. Þetta var auð- vitað algjör fífldirfska en mikið hlóg- um við þegar við vorum allir heimtir úr helju og sestir í lúkarinn. Það voru auðvitað engir venjulegir menn sem láta sér detta annað eins í hug. Við bættum við olíuna á kabyssunni og tíndum af okkur blautar og drullu- skítugar spjarirnar. Þurrkuðum svo garmana og sátum á nærbuxunum við lúkarsborðið og sötruðum heitt, kolsvart og margsoðið kaffið. Það var ekkert fararsnið á Jógvani en bátinn rak í rólegheitum rétt við gosstöðvarnar. Óli skellti sér upp á dekk og mætti á nærbuxunum einum fata í stýrishúsið. Þar stóð Jógvan við rattið en landar hans sátu á gólfinu. Þeir ætluðu sér að bíða næsta dags svo þeir gætu klárað að taka myndir. Þeim varð ekki kápan úr því klæðinu og Jógvan var beðinn að setja á fulla ferð og koma mannskapnum heim sem fyrst. Á Nausthamarsbryggju beið lögreglubíllinn. Þeir voru ábúðar- miklir lögreglumennirnir, Pétur pól og Óskar pól í Stakkholti, og sjálfur yfirlögregluþjónninn, Stebbi pól. Eftir skýrslutöku á lögreglustöðinni fór hver til síns heima að hitta eigin- konur og börn. Gosinu í Jólni lauk 10. ágúst og í lok september var eyjan lítið annað en hvalbakur sem braut yfir á fjöru en hvarf með öllu á nokkrum vikum. Sjónarspil náttúrunnar er svo stórkostlegt að mannshugurinn, hvað þá mannshöndin og tíu manna tjald frá Seglagerðinni Ægi og klappstólar mega sín lítils þegar eyja rís úr hafi og hverfur á níu mánuðum. „Eyjan er hreinlega að springa í tætlur …“ Bókarkafli Surtseyjargosið sem hófst 14. nóvember 1963 hafði mikil áhrif á Vestmannaeyinga eins og rakið er í bókinni Strand í gini gígsins, en í henni er svaðilförum tengdum Surtseyjareldum lýst, til dæmis þegar ungir Eyjamenn horfðust í augu við dauð- ann í Surtsey, Syrtlingi og Jólni þegar þeir stigu þar á land fyrstir Íslendinga. Ásmundur Friðriksson tók bókina saman, en í henni rifjar Friðrik Ólafur Guðjónsson frá Landamótum einnig upp minningar um fjölskrúðugt mannlíf í Vestmannaeyjum fyrri ára. Ljósmynd/Gísli Vigfússon Ljósmynd/Sigurgeir Jónasson Gos Tilkomumikið gosið í Jólni sem hófst annan í jólum 1965. Jólnir átti erfitt uppdráttar og hvarf í óveðrum. Ljósmynd/Sigurgeir Jónasson Svaðilför farin Félagarnir Hjálmar Guðnason (Hjalli á Vegamótum) og Ólafur Gränz tjölduðu með Páli Helgasyni í Jólni en það fór ekki vel. Kort/Guðmundur Ó. Ingvarsson Sjónarspil Afkvæmi Surtseyjarelda urðu alls fjögur: Surtsey, Surtla, sem aldrei náði að verða eyja, Syrtlingur og Jólnir, sem hvarf á níu mánuðum. Eldar Skagaröst KE við Jólni skömmu áður en gos- inu lauk 10. ágúst 1966.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.