Morgunblaðið - 25.07.2022, Page 32

Morgunblaðið - 25.07.2022, Page 32
STILLANLEG HJÓNARÚM MEÐ BODYPRINT DÝNU WWW.SVEFNOGHEILSA.IS Svefn heilsa& GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ PANDORA STILLANLEGUR HÆGINDASTÓLL VANDAÐAR SÆNGUROG KODDAR Í ÚRVALI EITT MESTA ÚRVAL AF HEILSUDÝNUM Á LANDINU ÚRVALAF VÖNDUÐUM HEILSURÚMUM Sólríkir fuglatónar er yfirskrift tónleika sem haldnir verða í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar annað kvöld, þriðjudag, kl. 20.30. Þar koma fram Bryndís Guðjóns- dóttir sópran, Pamela De Sensi á flautu og Guðríður St. Sigurðardóttir á píanó. „Skemmtilegar andstæður myndast þegar ástríðufullir hljómar Ciardi, Donizetti, Alyabyev og Ravel blandast saman við rómantíska og fágaða hljóma frönsku tónskáldanna. Tónskáldin sem hér um ræðir voru flest uppi á síðari hluta nítjándu aldar og fyrri hluta þeirrar tuttugustu. Tónleikunum lýk- ur með verki eftir Cecile Chaminade sem hefur verið að fá aukna og verðskuldaða athygli undanfarið. Í heild er efn- isskráin blanda af þekktum sem og minna þekktum tón- verkum fyrir þessa hljóð- færaskipan,“ segir í tilkynn- ingu. Miðar eru seldir við innganginn. Fuglatónar í Listasafni Sigurjóns MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 206. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Breiðablik og Keflavík misstu bæði leikmann af velli með rautt spjald á upphafsmínútum leikja sinna í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Blikar gerðu samt 0:0 jafntefli við FH en Keflvíkingar fengu á sig tvö mörk í uppbótartíma og töpuðu 1:3 fyrir KA. Eyjamenn voru í banastuði í botnslag gegn Leikni í Breiðholti og unnu sannfærandi sigur, 4:1. »26 Tvö rauð spjöld á upphafsmínútum ÍÞRÓTTIR MENNING Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Harmonikkuhátíð verður á sínum stað á Borg í Grímsnesi um versl- unarmannahelgina og verður þetta í fyrsta skipti í þrjú ár sem hún er haldin með venjulegu sniði. Hátíðin, sem er haldin á vegum Félags harmonikkuunnenda í Reykjavík, hefur verið vel sótt af bæði harmonikku- sem og öðrum tónlistarunnendum um árabil. Páll S. Elíasson, formaður skemmtinefndar félagsins, segir formlega dagskrá hátíðarinnar hefj- ast á föstudag með dansleik í félags- heimilinu þar sem búist er við stuði og stemningu. Á laugardeginum hef- ur fólk það síðan eftir hentugleika hvenær það fer á kreik. „Þarna eru yfirleitt einhverjir sem draga fram hljóðfæri og, ef þannig viðrar, byrja að spila jafnvel fyrir hádegi,“ segir Páll. Yfir allan laugardaginn er reiknað með að fólk fari örlítið að blanda geði við aðra hljóðfæraleikara og klukkan fjögur er samspil. „Það er náttúrulega fyrst og fremst harmonikkan sem er á ferð- inni þarna og er talað um að menn mæti bara með sínar harmonikkur. En það er ekkert að því að menn mæti með gítar,“ segir Páll og bætir við að einn lunkinn saxófónleikari sé tíður gestur á hátíðinni. „Hann veit alveg hvað hann er með í höndunum þar.“ Fyrirhuguð danskennsla er á laugardaginn í félagsheimilinu en á laugardagskvöld er dansleikur að nýju þar sem nýskipuð bönd úr sam- spili dagsins leika. „Þar er stuð og stemning og alltaf troðfullt hús.“ Fólk kemur hvaðanæva Páll segir að sunnudagurinn sé með svipuðu móti og laugardag- urinn. Fólk spili saman og haldi síð- an á þriðja og síðasta dansleik helg- arinnar. „Það er tónlistaruppákoma í félagsheimilinu klukkan tvö. Síðan spilar fólk þetta bara af fingrum fram og auðvitað er dansleikur um kvöldið milli kl. níu og tólf eins og hin kvöldin.“ Fyrir dansleikinn er auk þess reiknað með marseringu í um klukkustund með vönum stjórn- anda. Spurður hvaðan fólk á hátíðinni komi einna helst segir hann allan gang á því. „Fólk kemur þarna á svæðið alls staðar að af landinu. Vestan af fjörðum og austan af Hér- aði og norðan af landi, nefndu það bara.“ Páll segir að fólk geti valið hvort það kaupi armband í upphafi móts- ins, þar sem innifalinn er aðgangur að öllum viðburðum mótsins, eða hvort það kaupi staka miða á dans- leiki eða aðra viðburði. „Svo á mánudeginum fer fólk bara að taka sig saman og huga að heim- ferð í rólegheitunum.“ Friðjón Hallgrímsson, formaður félagsins, stýrir mótinu en hann hef- ur um árabil verið í forsvari fyrir fé- lagið til skiptis við Pál. Spilað af fingrum fram á Borg í Grímsnesi - Stuð og stemning og troðfullt hús síðustu ár um versló Ljósmynd/Sigurður Harðarson Leikið Yfir allan laugardaginn verða hin ýmsu bönd að myndast og byrja árrisulir hljóðfæraleikarar jafnvel að spila fyrir hádegi. Ljósmynd/Sigurður Harðarson Dansleikur Í félagsheimilinu stendur yfir dansleikur öll þrjú kvöldin frá kl. níu til miðnættis. Leika þar böndin sem mynduð voru yfir daginn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.