Morgunblaðið - 27.05.2022, Síða 4
Bjarnheiður Erlendsdóttir garðhönnuður segir að það sé oft gott að fá
fagaðila til þess að hanna garðinn. Garðurinn verði bæði fallegri og svo
getur garðhönnuðurinn verið málamiðlari ef hjón eru ekki
sammála um hvernig hlutirnir eiga að vera.
Marta MaríaWinkel Jónasdóttir | mm@mbl.is
S
tundum koma pör eða hjón sem hafa
misjafnar skoðanir á því hvernig
þetta á að vera og þá er mjög
skemmtilegt að geta sætt þeirra
ólíku sjónarmið svo báðir aðilar fari ánægðir
frá mér,“ segir Bjarnheiður.
Sumir eru með mjög fastar skoðanir á því
hvernig þeir vilja hafa drauminn. Fólki finnst
gott að fá þetta teiknað upp til að sjá hvort
þetta gangi upp eins og þeir hafa hugsað sér.
Svo eru aðrir sem hafa enga hugmynd um
hvað þeir vilja og þá legg ég fyrir þau hug-
myndir og teikna upp. Þá er enn og aftur
kostur að hafa þetta í þrívídd, því fólk skilur
hana svo vel. Það er líka ýmislegt sem getur
vafist fyrir fólki, sérstaklega þegar kemur að
því að setja upp pall. Fólk er oft í vandræðum
með að sjá fyrir sér hvernig hann eigi að vera
og hvar staðsetja skuli pottinn,“ segir Bjarn-
heiður.
Spurð um heita pottinn í garðinum segir
hún að hann eigi alls ekki að fara á besta stað-
inn.
„Við sjálf viljum besta og sólríkasta svæðið
því við erum meira á pallinum en í pottinum,
potturinn á að fá næstbesta staðinn,“ segir
hún og hlær og segir að í dag sé pallaefni að
breytast
mikið.
„Sérstök
klæðning
sem sett
er á potta-
svæði,
bekki og
útieldhús
gerir hlutina
eins og mublur
og tekur sumar-
bústaðaútlitið í burtu.“
Í dag eru það frekar
breið borð sem liggja lárétt og eru klædd
utan á staurana svo fólk sjái þá ekki.
„Stundum gengur eitthvað af timbri af þeg-
ar pallur er smíðaður og þá er tilvalið að
smíða gróðurker úr þessum afgöngum, en þau
geta verið hvernig sem fólk vill í laginu. Þegar
það er búið að smíða kerin er svo klæddur
sökkuldúkur í það að innan til að vernda við-
inn og svo er tilvalið að setja sterkleg hjól
undir kerin svo það sé auðvelt að færa þau í
skjól þegar veður er vont,“ segir Bjarnheiður
og bætir því við að í dag séu útisturtur, útield-
hús og kaldir pottar vinsæl viðbót í garðinn.
Hjón geta verið
ósammála og þá er
gott að fá aðstoð
Bjarnheiður Erlendsdóttir
garðhönnuður starfar í
Húsasmiðjunni.
Vilmundur Hansen blaðamaður með meiru veit hvað klukkan slær þeg-
ar garðurinn er annars vegar. Hann stofnaði hóp á Facebook í aðdrag-
anda bankahrunsins sem telur nú 45 þúsund manns sem skiptast á
skoðunum um bestu leiðirnar til að gera garðinn frábæran.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
V
ilmundur Hansen blaðamaður á
Bændablaðinu er bæði garðyrkju-
fræðingur og grasafræðingur að
mennt. Hann er einnig ráðgjafi og
stofnandi facebooksíðunnar Ræktaðu garð-
inn þinn – Garðyrkjuráðgjöf, þar sem 45
þúsund landsmanna fylgjast spennt með
öllu því sem tengist garðinum.
Að tala um garða við Vilmund er
áhugavert og skemmtilegt. Hann er bæði
með puttann á púlsinum hvað viðkemur
því nýjasta í görðum okkar og svo segir
hann eitthvað svo skemmtilega frá.
„Garðar landsmanna taka breytingum
með tískusveiflum tíðarandans. Nú vilja flest-
ir vera með viðhaldsfría garða en það er ein-
faldlega ekki hægt. Það fylgir því ákveðin
vinna að eiga garð.
Nú er einnig vinsælt að vera með nytja-
plöntur í garðinum og svolítið blómstrandi tré.
Kirsuberjatré eru vinsælustu trén í dag en
þegar ég tala um nytjaplöntur þá á ég við mat-
jurtir á borð við jarðarber, vínber, krydd, kál
og salat svo eitthvað sé nefnt.“
Ótrúlegt hvað fólk er viljugt
Hver eru tildrög þess að þú stofnaðir Rækt-
aðu garðinn á Facebook?
„Það eru 13 ár frá stofnun hópsins en hann
var stofnaður í aðdraganda hrunsins. Það sem
gerðist var að ég var að vinna sem blaðamaður á
Aðspurður uverjir séu þarna inni á
Facebook segir hann það vera bæði
áhugafólk um garðrækt en einnig fagfólk
„Fagfólkið kemur að því að svara ótrú-
legum fjölda spurninga frá almenningi.
Mér finnst eiginlega ótrúlegt hvað fólk
er viljugt að svara hvert öðru og hvað
fólk er ófeimið við að spyrja.“
„Þá verð ég frekar harður“
Var ekki smávegis áskorun að sleppa tök-
unum og leyfa fleiri sérfræðingum að koma að
því að svara almenningi þarna inni? „Nei, mér
þótti það ekkert skrítið. Ég hef aldrei litið á
síðuna þannig og bara fundist fínt ef fleiri eru
að svara þarna inni en bara ég. Ég verð í raun
alltaf glaður þegar fleiri koma skoðunum sín-
um þarna inn.
Það er frekar önnur saga að segja frá því
þegar fólk ætlar að nýta hópinn til að auglýsa
vörur og þjónustu. Þá verð ég frekar harður og
hendi þeim út. Ástæðan fyrir því er sú að þetta
er ekki auglýsingavefur heldur fræðsluvefur.
Ég hef þá fengið spurninguna af hverju ég sé
þá að auglýsa mína eigin ráðgjöf, en það er
önnur saga. Ég segi við þann hóp að bíta bara í
sig og spái nú ekki meira í það.“
Mikilvægt að leita fyrst og spyrja svo
Hver er skrítnasta spurning sem þú hefur
fengið inni í hópnum?
„Ég man það nú ekki alveg en stundum
eru sömu spurningarnar að koma upp aftur
og aftur og það getur verið leiðigjarnt að
endurtaka svörin. Þá reyni ég að beina því til
fólks að hópurinn er einn stór upplýs-
ingabanki og hægt er að fara í stækkunar-
glerið í horninu, slá inn leitarorð og finna
hvort umræða hafi átt sér stað um málefnið
áður.“
Þar sem Vilmundur er grasafræðingur er
forvitnilegt að vita hvernig hægt er að ná gras-
inu í kringum húsið frábæru.
„Það er talsvert erfitt og töluverð vinna.
Bara það að rækta smá blett fyrir framan
garðinn sinn er meira en rétt að segja það. Svo
er gras ekki bara gras. Það eru til fjölmargar
tegundir af grasi og ef þú vilt hafa fallegan
blett við húsið, þá þarftu að hugsa verulega vel
um hann, slá hann reglulega, setja kalk og
áburð á grasið og hugsa almennt mjög vel um
það. Þannig að ef þú vilt hafa fallegan garð þá
verðurðu að hafa fyrir honum,“ svarar Vil-
mundur um leið og alvaran skín úr andliti
hans.
„Ef þú vilt fallegan
garð verður þú að
hafa fyrir honum“
Vilmundur Hansen
stofnaði hópinn
Ræktaðu garðinn
þinn á Facebook.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Vilmundur hefur
áhuga á öllu því
sem tengist
garðinum.
Ljósmynd/Colourbox
Viðskiptablaðinu sem fór síðan á hausinn í þeirri
mynd sem það var þá. Ég hafði unnið sem
blaðamaður víðar og fór að dunda mér við að
safna saman greinum mínum sem ég hafði skrif-
að í mörg ár. Þá datt mér í hug að stofna þennan
hóp á Facebook og að setja greinarnar inn þar
og á sama tíma bjóða upp á ráðgjöf tengda garð-
inum,“ segir Vilmundur og heldur áfram að út-
skýra hvernig hugmyndin vatt upp á sig.
„Ég man hvað ég var hissa þegar komnir
voru 100 meðlimir í hópinn, 1.000 meðlimir og
svo koll af kolli.“
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2022