Morgunblaðið - 27.05.2022, Side 6

Morgunblaðið - 27.05.2022, Side 6
Nú er tími sumarblómanna og fólk farið að huga að því að bæta við litríkum blómum í garðinn eða á svalirnar. Ljóst er að möguleikarnir eru svo miklu fleiri en bara einfaldlega að stinga blómunum niður í beð. Margir kjósa frek- ar að setja blómin í marga potta og raða þeim saman hér og þar. Einn sem náð hefur góðum tökum á þeirri listgrein er danski garð- yrkjumaðurinn og nú samfélagsmiðlastjarnan Claus Dalby. MaríaMargrét Jóhannsdóttir | mariamargret@mbl.is Hér sést hvað hægt er að búa til skemmtilega stemn- ingu með sumarblómum. C laus Dalby er gjarnan lýst sem Mörthu Stewart Skandinavíu. Hann hefur vakið mikla athygli fyrir blómarækt þar sem hann leggur sérstaka áherslu á að rækta blóm í kerum, sem er sérstaklega hent- ugt þegar pláss er af skornum skammti. Hann hefur slegið í gegn á samfélagsmiðlinum Insta- gram þar sem sístækkandi fylgjendahópur hans getur treyst á að fá andagift, hugmyndir og ráðleggingar af ýmsu tagi. Býður upp á fjölbreytta möguleika Claus Dalby er mikill listamaður þegar kemur að því að raða saman mörgum blóma- kerum í öllum hugsanlegum litum. Það sem heillaði Dalby við að rækta blóm í kerum var hvað það býður upp á marga möguleika fyrir öll hugsanleg svæði, hvort sem er úti á svölum, í litlum garði eða stórum. Á síðasta ári gaf hann út bókina Containers in the Garden þar sem öll ráð hans og hugðarefni eru saman- komin. Alltaf ein tegund í hverjum potti Það sem vekur athygli er hvað Dalby setur í pottana. Venjulega freistast fólk til þess að raða saman nokkrum tegundum sumarblóma í einn stóran pott. Dalby kýs hins vegar að hafa eina tegund í potti og segir kostinn við það þann að þá er hægt að tryggja að uppstillingin líti alltaf vel út. Um leið og ein planta byrjar að fölna skiptir hann einfaldlega því keri út fyrir eitthvað annað sem er í blóma. Stundum raðar hann saman allt að tuttugu pottum og kerum en hann er þó ekki með tuttugu mismunandi blómategundir í þeim. Kannski sex til sjö tegundir blóma. Þannig nær hann fram ákveðinni end- urtekningu sem gleður augað. Dalby leggur mikla áherslu á mikilvægi þess að klippa af visn- uð blóm bæði til þess að halda snyrtilegu útliti uppstillingarinnar en líka til þess að hvetja plönturnar til að framleiða fleiri blóm. Þetta ráð á ekki síð- ur við um stjúpur eða fjólur. Litur, lögun og áferð Claus Dalby breytir litasamsetningu eftir árstíðum. Á vorin er guli liturinn ráðandi með einhverju sígrænu. Páskaliljur og túlípanar eru þá í forgrunni. Um sumarið fá bleiku lit- irnir að njóta sín og þá eru það dalíurnar sem taka við. En til að aðalstjörnurnar njóti sín sem best er hann með margar minna áberandi plöntur sem fylla upp í hið sjónræna rými. Til dæmis mælir Dalby með því að nota plöntur sem hafa límónugræn blöð til þess að para með dalíunum því það skapar skemmtilega and- stæðu við dökk blöð dalíunnar. Þá er einnig skemmtilegt að hafa nokkrar háar plöntur í uppstillingunni. Hostur gætu verið tilvaldar í potta enda fást þær í mörgum mismunandi lit- um og stærðum en það þarf að vökva þær vel á sumrin. Á veturna tekur Dalby dalíurnar inn, hristir af þeim moldina og vefur laukunum inn í dagblöð. Svo geymir hann laukana á köldum stað, þar sem hitastigið fer ekki undir fimm gráður, til næsta vors. Loks raðar Dalby blómapottunum hér og þar og stillir þeim upp í mismunandi hæð til þess að ná fram skemmtilegri stemningu. Dalby leggur mikla áherslu á lit, lögun og áferð plantnanna og byrjar strax á haustin að skipuleggja litaáherslur næsta árs. Þá gengur hann um með minnisbók með sér þar sem hann skráir niður allar þær hugmyndir sem hann fær meðan hann er að vinna í garðinum. Hvar má nota blómapotta? Vinsælt hefur verið að nota blómapotta til þess að ramma inn aðalinngang húss en þá má einnig nota til þess fylla í ákveðið tómarúm í görðum, búa til flotta uppstillingu eða bæta við lit þar sem vantar. Athygli vekur að Dalby er duglegur að nýta sér hina og þessa hluti til þess að skapa mismunandi hæð- ir í pottauppstilling- unum. Tröppur og bekkir eru augljósir kostir en svo má einnig notast við gamla viðarkassa eða mandarínu- kassa. Hægt er að bæsa þá í einhverjum lit eða bara hylja þá með efni ef þeir eru ekki mikið fyrir augað. Fyrir handlagna væri upplagt að útbúa bekki sem myndu þá líkj- ast tröppum og hægt væri að stilla upp fjölmörgum pottum þar á. Það sem hafa þarf í huga Það er margt að hafa í huga þegar tegundir eru valdar í blómaker. Sumar tegundir þrífast alls ekki vel í pottum eins og til dæmis flestar lyngrósir eða vissar trjátegundir. Best er að spyrja sérfræðinga í garðyrkjustöðvum áður en ráðist er í fjárfestingar sem þessar. Þá þarf að muna eftir að vökva vel blómakerin því moldin þornar hraðar þar en í dæmigerðum beðum. Loks er mikilvægt er að hafa bak við eyrað að garður verður ekki til á núll-einni heldur þróast hann með tíð og tíma. Fæstir fara frá því að eiga enga blómapotta í að eiga fjölmarga. Þetta tekur tíma og sjálfur er Dalby enn að bæta við sitt eigið safn. Blómapotta- hvíslarinn frá Danmörku Claus Dalby nýtur mikilla vinsælda. Það er aldrei of mikið af blómapottum í garðinum. Hér raðar hann pottum í tröppur og er útkoman skemmtileg. 6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2022

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.