Morgunblaðið - 27.05.2022, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2022
„Ræðst aldrei á garðinn
þar sem hann er lægstur“
Á
sdís Dungal er fædd og uppalin í
miðborg Reykjavíkur en ákvað að
flytja í sveitina þegar börnin fluttu
að heiman. Nú býr hún í níu kíló-
metra fjarlægð frá Egilsstöðum, á
stað sem hún kallar Paradís. Staðurinn, þar
sem hún býr, heitir Kaldá og er hann við
bakka Kaldár. Það er ekki hefðbundinn garð-
ur í kringum húsið hennar, heldur má segja
að hún sé með skóg í garðinum.
Ásdís býr á þessum fallega stað ásamt eig-
inmanni sínum, Ævari Gíslasyni Dungal. Auk
þeirra eru tvær hænur, köttur og hundur á
landinu.
„Ég ræðst aldrei á garðinn þar sem hann er
lægstur og kem engum á óvart með uppá-
tækjum mínum lengur, enda geri ég yfirleitt
það sem mig langar að gera og allir löngu
hættir að vera hissa á frúnni á Kaldá.“
Ásdís elskar að gera fallegt í kringum sig
og að taka ljósmyndir af því sem hún er að
gera hverju sinni.
„Ég fer reglulega í Rauða krossinn, þar
sem ég slæ tvær flugur í einu höggi með því
Ásdís Dungal býr í fallegu
húsi við Kaldá, nálægt Egils-
stöðum. Segja má að hún sé
með skóg í garðinum, þar sem
hún ræktar hamp, býr til sápur
og gerir alls konar spennandi
hluti úti í náttúrunni.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ásdís Dungal og Ævar Gíslason Dungal njóta sín á heimili sínu,
ekki síst á sumrin, en staðurinn er algjör paradís.
Frúin á Kaldá kann
að njóta lífsins.
Það er ákveðinn lífsstíll
fólginn í því að búa í
sveitinni.Ásdís er nokkuð viss um að allar trjátegundir
landsins megi finna í skóginum hennar.
Skemmtileg blanda þar sem villt náttúran
blandast við það sem heimafólkið hefur gert
huggulegt á lóðinni sinni.
Það er ýmislegt
sem bendir til þess
að Ásdís hafi eitt
sinn verið
miðborgarbarn.
5 SJÁ SÍÐU 10
Gömul stígvél
verða að listaverki í
höndum Ásdísar
sem sér fegurðina í
alls konar formum.
Það er mismunandi hvaða blóm
heilla Ásdísi hverju sinni en hún
fer í gróðurhúsið sitt í apríl hvert
ár að vinna og njóta sín.