Morgunblaðið - 27.05.2022, Blaðsíða 23
Ég hef mikinn áhuga á lágtæknivélum og alls
konar flækjustigum. Að gera einfalda hluti
flóknari. Á undan þessu hafði ég gert litla met-
angasvél sem gekk fyrir bananahýði, sem var
kannski kveikjan að þessu. Að tengja jarðgerð
við leik er ein leið til að kveikja áhugann og sá
fræjum. Oft læra fullorðnir svo mikið af börn-
unum sínum og leikvöllurinn finnst mér vera
svo kjörið tækifæri til að virkja fullorðna fólkið,
sem oft er bara áhorfendur á leikvellinum. Þetta
skapar líka samtal. Það vita ekkert allir hvers
vegna jarðvegurinn er mikilvægur og að nær-
ingarefni grænmetis séu sem dæmi mismun-
andi eftir gæðum jarðvegs.“
Mikið magn sem fer til spillis
Í framtíðinni langar Björk mest að búa uppi í
sveit og stunda einhvers konar sjálfsþurftar-
búskap og skógrækt.
„Ég hef líka mikla þörf fyrir að skapa, smíða
og miðla þekkingu. Ég mun örugglega finna leið
til að blanda þessu öllu saman.“
Er hægt að kaupa moltuleiktækið einhvers
staðar?
„Nei. Þetta var bara ein frumgerð sem varð
eftir í Stokkhólmi og þetta var svo sem alltaf
hugsað til að nota í almannarými. Þar sem ekk-
ert varð úr lokasýningunni hjá Konstfack, sem
er mjög stór árlegur viðburður í Stokkhólmi,
endaði ég á að sýna hluta af leikvellinum í
miðbæ Stokkhólms. Ég gerði svo myndband
sem lifir áfram. En hver veit, kannski er einhver
leiktækjaframleiðandi þarna úti sem er til í ein-
hvers konar samvinnu og samstarf í framtíðinni.
Fyrir komandi kynslóðir. Ég skora bara hér
með á borg og bæjarfélög að gera íbúum auð-
veldara fyrir að jarðgera lífrænan úrgang.
Helst að sem flestir taki þátt í því sjálfir því þá
fyrst fer fólk að átta sig á magninu sem fer til
spillis.“
Leikmoltan sem Björk hann-
aði er lágtæknivél með alls-
konar flækjustigum.
Björk hefur mikinn
áhuga á umhverfis-
málum og skógrækt.
Börnin kunna vel við sig á leik-
vellinum. Hann virkar þannig
að fólk malar matarafganga
sína, skýtur þeim í moltutunn-
una og tunnunni er snúið með
því að leika sér í hringekju sem
tengd er við tunnuna.
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2022 MORGUNBLAÐIÐ 23