Morgunblaðið - 27.05.2022, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.05.2022, Blaðsíða 24
Í verkinu eru alls konar litlar sögur af fólki og dýr- um sem við þreytumst seint á að skoða. Lista- verkið er í senn litríkt og töff en jafnframt barna- legt og með „dirty twisti“. Svo er líka mikil Berlínar- tenging í verkinu en í því er að finna bæði Trabant og sjónvarpsturninn fræga í Berl- ín, sem er hæsta bygging Þýskalands,“ segir Katrín Árna- dóttir um listaverkið sem lista- maðurinn Egill Jónasson málaði í bakgarðinn hjá þeim síðasta sum- ar. Verkið er málað á bílskúrinn en tvær hliðar hans snúa út í bak- garðinn. Þar er afgirtur skjólgóð- ur pallur með útisturtu, heitum og köldum potti og góðu plássi bæði fyrir grill, matarborð og útisófa. Alltaf graff á útidyrahurðinni „Ég hafði séð málverk eftir Egil á listasýningu síðasta sumar og fannst stílinn hans skemmtilegur. Hann er hins vegar ekki graffari og hafði ekki gert vegglistaverk áður svo þetta var ekki síður spennandi verkefni fyrir hann en okkur. Listamaðurinn fékk alveg frjálsar hendur með þetta verk- efni. Það eina sem við óskuðum eftir var að það væri einhver Berl- ínartenging í verkinu en að öðru leyti réð hann þessu alveg,“ segir Katrín en auk hennar saman- stendur fjölskyldan af heimilsföð- urnum Antoni Rúnarssyni og dætrunum Ídu og Elínu. Fjöl- skyldan hefur sterkar taugar til Berlínar því þau bjuggu þar í 10 ár en fluttu til baka til Akureyrar árið 2016. „Berlín er uppfull af portum og graffítiverkum. Við bjuggum í austurhluta borgarinnar og þar er allt svolítið gróft og skítugt. Það var til dæmis alltaf verið að graffa á útidyrahurðina hjá okkur. Ég saknaði þessarar stemmningar þegar við fluttum aftur til Íslands. Hér er allt miklu meira sterílt og pottþétt. Þessi hugmynd kviknaði fljótt eftir að við keyptum húsið, því þetta svæði á milli bílskúrsins og hússins minnti á port í Berlín og ég fann að bílskúrinn varð að vera eitthvað meira en hvítur, það varð að vera meira fjör í honum. Okkur fannst því kjörið að lífga upp á hann með þessum hætti og taka þannig hluta af Berlín með okkur heim.“ Katrín segist ekki hafa verið vitund hrædd við að hleypa listamanninum lausum á bílskúr- inn og bætir við að ef útkoman hefði ekki orðið þeim að skapi þá hefði verkið samt líklega fengið að standa, enda lífið alls konar og alls ekki alltaf fullkomið. Allsherjaryfirhalning á bakgarðinum Spurð um viðbrögð fólks við listaverkinu segir Katrín að þau hafi eingöngu verið jákvæð. Flest- um finnst verkið töff þótt fólk kjósi ekki sjálft að hafa bakgarð- inn hjá sér skreyttan með svona afgerandi hætti. „Okkur finnst mjög gaman að horfa á vegginn þegar við sitjum í pottinum, það er alltaf hægt að sjá nýjar sögur í verkinu. Þá er yngsta dóttirin sér- lega hrifin af kettinum og heilsar honum þegar hún gengur fram hjá,“ segir Katrín og bendir á kött á veggnum með rautt auga og róf- una upp í loftið. Krókódíll, fiskar, Með Berlín í bakgarðinum Katrín Árnadóttir og fjöl- skylda eiga líklega einn litríkasta bakgarð Akur- eyrar – og þótt víðar væri leitað. Líflegt vegglista- verk með tilvísun í Berlín lífgar upp á bakgarðinn en verkið er sannkölluð veisla fyrir augað. Texti ogmyndir: Snæfríður Ingadóttir snaeja@gmail.com Katrín Árnadóttir, kynn- ingar- og markaðsstjóri Háskólans á Akureyri, nýtur kaffibollans í bakgarðinum við heimili sitt. Vegglist á Akureyri. Á pallinum er bæði heitur og kald- ur pottur, sem og útisturta. Þar er einnig gott pláss fyrir matarborð, grill og útisófa. Mögulega bætist gufubað við pallinn í framtíðinni. 24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2022 ÍSLENSKA ÁBURÐARFJÖLSKYLDAN FÆST Í VERSLUNUM UM LAND ALLT! Frábær alhliða áburður fyrir alla garðyrkju. Gerðu vel við garðinn þinn og veldu góðan áburð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.