Morgunblaðið - 27.05.2022, Síða 25

Morgunblaðið - 27.05.2022, Síða 25
fíll og aðrar furðuverur eru einnig á veggnum en allt rennur þetta saman í eina heild sem skapar skemmtilegt mótvægi við klassískt gagnvarið pallaefnið og grá látlaus útihúsgögn. Áður en Egill málaði verkið á bílskúrinn síðasta sumar fékk bakgarðurinn algjöra yf- irhalningu. Faðir Katrínar, Árni V. Friðriksson, og félagi hans Gunnar Austfjörð tóku það verk- efni að sér að byggja þar pall sem er engin smásmíði, alls 64 fm. Leystu þeir verkið það vel af hendi að húsráðendur komu fyrir áletruðum platta á skjólvegginn þeim til heiðurs þar sem þeim er þakkað fyrir vel unnin verk. „Pabbi er kominn á eftirlaun og veit fátt skemmtilegra en að brasa og þeir félagar kláruðu verkið um mitt sumar svo við vorum bara hér í pottinum meira og minna restina af sumrinu í bongóblíðu. Pabbi er fyrrverandi fram- kvæmdastjóri verkfræðistofunnar Raftákns og það er því vel hugsað út í alla lýsingu og rafmagn hér á pallinum. Þessi góða aðstaða stækkar húsið gríðarlega og gerir það að verkum að það er ekkert mál að halda hér mannmargar veislur. Fyrir jólin settum við t.d. upp tjald á pallinum og ljósaseríur og slógum upp þýsku jólapartí3i með glögg og pylsum. Það var mjög gaman.“ Útsýni og frelsi verðmætt Katrín viðurkennir að það sé sannarlega mikill munur á Berlín og Akureyri en það verður ekki bæði sleppt og haldið. Þar nefnir hún helst útsýnið og frelsið sem börnin hafa á Íslandi, tveir hlutir sem Íslendingar ná oft ekki að meta til fulls nema eftir búsetu erlendis. Heimilið er við Löngu- mýri og hún segist kunna afar vel við sig á Brekkunni. „Þetta er æðislegt hverfi, mjög gróið og með skemmtilegum stígum. Það er mikil hverfastemmning hérna. Svo er líka stórkostlegt útsýni yfir bæinn af klöppunum hér fyrir framan. Þá erum við göngufæri við miðbæinn, bókasafnið, mat- vörubúð og sundlaugina. Við vild- um hafa þetta allt á fæti, það eru líka áhrif frá Berlín.“ Litríkt málverkið skap- ar skemmtilegt mót- vægi við klassískt gagnvarið pallaefnið. Flestum finnst verk- ið töff þótt fólk kjósi ekki sjálft að hafa bakgarðinn hjá sér skreyttan með svona afgerandi hætti. Vegglist á Akureyri FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2022 MORGUNBLAÐIÐ 25 LOTUSGRILL Stórsniðugt í garðinn, á pallinn eða í ferðalagið MINI Ø29cm Fyrir 1-2 CLASSIC Ø34cm Fyrir 4-6 XL: Ø44cm Fyrir 6-8 Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is • Mjög auðveld og fljótleg í notkun • Tilbúin til matreiðslu á 3-4 mínútum • Afkastamikil og öflug • Mjög góð hitastýring á kolum • Ytra byrði hitnar ekki • Færanlegt á meðan þau eru í notkun • Auðvelt að þrífa • Mega fara í uppþvottavél • Taska fylgir • Mikið úrval aukahluta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.