Morgunblaðið - 27.05.2022, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2022
Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
Sláttutraktorar
40 ár
á Íslandi
tekin beint af greininni og ekki skrítið að
fuglinn skyldi éta hana um leið. Á hindberja-
runnann kemur einnig vel af berjum á hverju
ári.“
Aðspurður segist Kristján ekki nota upp-
skeruna í bakstur, þótt hann færi eflaust létt
með að nota ávextina í bökur og kökur, og
kemur heldur ekki til greina að blanda sykri
saman við og gera sultu. „Það sem við fjöl-
skyldan borðum ekki jafnóðum er fryst og not-
að í búst seinna meir.“
Til að garðurinn nýtist sem best eru Krist-
ján og María með pall báðum megin við húsið.
Austanmegin nýtur logns og sólar til um
klukkan þrjú til fjögur á daginn og eru þar
borð og stólar. Betra er að vera vestanmegin
síðdegis og á kvöldin en þar er heitur pottur,
grill, pizzaofn og tjörn með gosbrunni. Segir
Kristján róandi að sitja þar á kvödin og hlusta
á fuglasöng, niðinn í gosbrunninum og dreypa
ef til vill á góðu víni.
„Til að auðvelda okkur garðverkin eru raf-
magnsinnstungur á víð og dreif um garðinn og
fjórir vatnskranar. Mér finnst svo gott, þegar
þarf að vökva, að geta bara stungið stuttum
slöngubút í næsta krana og þurfa ekki að vera
með langa slöngu sem liggur út um allt,“ segir
Kristján en allt tréverk í garðinum smíðaði
hann sjálfur og kom hann einnig að hönnun
garðsins ásamt því að koma fyrir hulinni
díóðulýsingu sem varpar notalegri birtu á pall
og garð.“
Minkur komst í hæsnakofann
Nýlega fluttu nokkrar hænur í garðinn og
fer vel um þær í sérsmíðuðum kofa. „Það hefur
verið draumur minn í langan tíma að halda
hænur en ég er alinn upp við hænsnabúskap.
Foreldrar mínir voru frumbyggjar hér í
Garðabæ, ræktuðu hænur og seldu egg um all-
an bæ,“ segir Kristján. „Að vísu varð dálítið
slys núna í vor, því minkur komst í hænsnakof-
ann og drap þrjár hænur. Við skildum ekkert í
því að tvær hænur vantaði einn daginn, og
næsta dag hvarf sú þriðja, en þá sá ég líka
minkinn hér á pallinum snemma um morg-
uninn.“
Frétti þá Kristján að minkur hefst við í
hrauninu suður af Flötunum í Garðabæ, og er
einkum í og við Hraunholtslæk sem liggur frá
Vífilsstaðavatni. Það er ekki langt fyrir mink-
inn að skjótast upp að Garðaflöt, sérstaklega
ef þar eru hænur á vappi. Bærinn sendi mein-
dýraeyði tafarlaust á svæðið. „Við sáum hvar
hann hafði komist inn í kofann og sett var upp
gildra á þeim stað. Næstu nótt lenti minkurinn
í gildrunni en slapp. Tjáði meindýraeyðirinn
mér að vegsummerkin væru þannig að ef
minkurinn hefur ekki drepist þá væri alltént
víst að hann myndi halda sig fjarri eftirleiðis.“
Er líklegt að Kristján fjárfesti í nýjum ung-
um á heimilið í sumar svo að hænurnar sem
fyrir eru hafi nægilegan félagsskap.
Virðist það ekki mikil vinna að sjá um hæn-
urnar og ekki er heldur mikið ónæði af þeim.
„Það má ekki halda hana í þéttbýli enda yrðu
nágrannarnir fljótt brjálaðir á að vera vaktir
með gali klukkan fimm að morgni. Hins vegar
heyrist ekkert í hænunum, nema mögulega ef
þær greina einhverja ógn í kringum sig, og
kannski að þær láti aðeins í sér heyra þegar
þær eru að fara að verpa á daginn.“
Hefur Kristján greint að hænurnar hafi
ólíkan persónuleika og sínar sérþarfir. „Fyrst
sóttu þær í að sitja uppi í trjánum en núna láta
þær sér vel líka að sitja á priki inni í hænsna-
kofa og sofa þar. Þegar það er sól úti reika þær
um garðinn en um leið og veðrið versnar halda
þær aftur í kofann sinn.“
Reiknast Kristjáni til að fyrsta hálfa árið
hafi hænurnar gefið honum um 150 egg sem
hann segir bæði hafa betra bragð og dýpri lit á
rauðunni en þau egg sem fást úti í búð. Er erf-
itt að segja til um hvort hænurnar hjálpi til við
að halda skordýrum í skefjum en Kristján
grunar að mögulega þrífist illgresi ekki eins
vel í beðunum undir trjánum þar sem hæn-
urnar eru vanar að búa sér til litla gjótu og
baða sig upp úr þurri moldinni. „Á sjö til tíu
daga fresti þarf síðan að hreinsa hænsnakof-
ann og setja nýtt sag.“
Vandasamt að fara í langt sumarfrí
Varla kemur það lesendum á óvart að það
útheimtir heilmikla vinnu að halda svona fín-
um garði, og hænsnarækt, í horfinu. Enda seg-
ir Kristján að garðurinn sé helsta áhugamál
þeirra hjóna og fátt annað komist að. „Sumir
eru í golfinu en við erum í þessu, og gott að
koma heim eftir vinnudaginn og sýsla úti í
garði í einhvern tíma,“ segir hann og bætir við
að börnin hafi nóg annað að gera en að fást við
garðvinnu en hjálpi þó til séu þau beðin um
það, t.d. við garðslátt eða ef þarf að vökva.
Þá eru þau Kristján og María óneitanlega
bundin við garðinn yfir sumarmánuðina. „Við
vitum alveg að það eru ýmis verk sem má helst
ekki sleppa, og ef við förum að heiman í lengri
tíma að sumri þá höfum við beðið einhvern
fjölskyldumeðlim að líta við og vökva en svo
þurfum við að taka til hendinni þegar að heim
er komið. Rúllar sumarið í garðinum alveg
ágætlega ef við sinnum garðverkunum jafnt og
þétt.“Búið er að bæta varnir hænsnakofans.
Með palla bæði austan- og vestan-
megin er tryggt að finna má stað til
að njóta þess að vera úti í sólinni.