Morgunblaðið - 27.05.2022, Side 30

Morgunblaðið - 27.05.2022, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2022 Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - hitataekni.is - Sími 588 6070 SJÁLFVIRK POTTASTÝRING MEÐ SNERTISKJÁ OG VEFVIÐMÓTI POTTASTÝRING L ovísa Traustadóttir hefur mikinn áhuga á pallaefni, klæðningum og parketi úr bambus. „Ég hef alltaf haft áhuga á að skapa fallegt umhverfi í kringum mig og er hluti af vörulínu okkar í Tekk-garð- húsgögnunum teiknaður af mér,“ segir Lovísa sem er iðnrekstrarfræðingur með meistara- próf í forystu og stjórnun. Lovísa er gift Valdimari Óskarssyni og bjuggu þau hjónin úti í Hollandi um árabil. Hún segir þann tíma hafa mótað þau mikið. Ekki síst þegar kemur að því að hreiðra um sig í garðinum. „.Fyrstu árin í Hollandi fóru mikið í að koma krökkunum inn í skólakerfið. Ég fór síðan í hollenskunám og tók einnig námskeið í listum. Þegar börnin voru komin í rútínu úti fór ég að vinna í Rotterdam. Eftir nokkur ár erlendis fórum við að hugsa um að flytja aftur heim. Ég sá auglýstar lóðir í nýju hverfi í Hafnarfirði í Áslandi og við sótt- um um. Umsækjendur voru dregnir úr potti og við vorum eins og svo oft í lífinu ótrúlega hepp- in. Við fengum stóra endalóð í botnlanga þar sem garðurinn snýr í suður og allur dalurinn við húsið er friðaður sem veitir okkur óskert útsýni yfir Keili og Suðurnesin. Þegar við fór- um að liggja yfir teikningum vorum við með fullt af hugmyndum sem voru innblásnar af veru okkar í Hollandi. Við komum okkur í sam- band við Moso International og fengum okkur bambusparket á gólfin og höfum unnið með því fyrirtæki síðan þá.“ Vildu hafa garðinn stóran hluta af heimilinu Lovísa og Valdimar byrjuðu að byggja árið 2000 en þá bjuggu þau enn þá erlendis. Morgunblaðið/Eggert Þau létu setja gufu- bað á pallinn fyrir tveimur árum. Lovísa er iðnrekstrarfræðingur með meistaragráðu í forystu og stjórnun. Hún hannaði sjálf tekkhúsgögnin á pallinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.