Morgunblaðið - 27.05.2022, Side 32

Morgunblaðið - 27.05.2022, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2022 Ef þarf að grisja er best að gera það í áföngum Þ egar kemur að því að hanna fallegan garð þarf að huga að ótal hlutum og getur margborgað sig að fá aðstoð fagmanns. Minniháttar mistök geta nefnilega orðið að heljarinnar haus- verk, rýrt notagildi garðsins, flækt allt viðhald og umhirðu og jafnvel spillt friðnum á milli nágranna. Inga Rut Gylfadottir er landslagsarkitekt og einn af eigendum stofunnar Landslags ehf. á Skólavörðustíg. Þegar hún er fengin til að hanna garð er fyrsta skrefið að koma á staðinn og skoða hvaða skorður þarf að vinna með og hvaða möguleika lóðin býður upp á: „Mjög mikilvægt er að skoða lóð, hús og umhverfi í samhengi og reyni ég að hafa það fyrir reglu að nýta sem mest af því sem fyrir er í garðinum. Erum við oft fengin til að endur- hanna gamla og gróna garða þar sem fyrir eru tré og runnar sem geta bæði skap- að skjól, rými og næði og að mínu mati eru þessi tré og runn- ar mjög dýrmæt og gefa garðinum svo mik- inn sjarma. Fólk þarf að muna að það hefur tekið þennan gróður mörg ár að koma til ásamt því að það tekur tíma að koma upp nýjum gróðri og er mjög kostn- aðarsamt. Ef það þarf að fara í grisjun þá er oft gott að gera það í áföngum og planta nýjum gróðri með þeim gamla.“ Viðskiptavinir Ingu Rutar eru yfirleitt með ákveðnar hugmyndir um hvernig þeir vilja hafa garðinn sinn. Suma dreymir um stóran pall til að grilla og skemmta gestum, aðrir vilja endi- lega fá heitan pott og útisturtu, gott leiksvæði fyrir börnin eða reit til að rækta matjurtir. „Með þessar óskir til hliðsjónar geri ég nokkrar einfaldar skissur – jafnvel tvær eða þrjár – að tilteknum rýmum og að heildarskipulagi garðs- ins,“ útskýrir Inga Rut og bætir við að í hönn- unarferlinu komi oft áhugaverðir nýir mögu- leikar í ljós sem fólk hafi kannski ekki verið búið að sjá og gott ráðrúm gefst til að breyta og bæta og vinna í sameiningu að heildarlausn. Viljum skjól og sól Meðal þess sem Inga Rut þarf að taka með í reikninginn er ríkjandi vindátt og hvernig sólin skín á garðinn. „Ef fólk hefur búið í húsinu í einhvern tíma þá er það oft búið að uppgötva hvar í garðinum er best að vera og hefur jafnvel veitt því eftirtekt að eftir því úr hvaða átt sólin skín geta verið nokkrir góðir staðir í garðinum þar sem njóta má skjóls og birtu.“ Þá þarf að staðsetja runna, tré og skjólveggi þannig að loki ekki á fallegt útsýni fyrir utan garðinn og út úr húsinu. Eins verður, eftir at- vikum, að hanna garðinn þannig að skapi næði fyrir íbúa. „Mörgum þykir nefnilega ómetan- legt að geta byrjað daginn á að rölta út á pall á sloppnum með morgunbollann sinn og fá orku- skot með hressandi útisturtu, og gott að geta þá athafnað sig í næði,“ segir Inga Rut. „Þá vill fólk líka geta látið fara vel um sig á kvöldin, kúra undir teppi fyrir framan eldstæði og horfa á sólsetrið. Samspil innra og ytra rýmis skiptir einnig máli og segir Inga Rut að það komi yfirleitt vel út ef garðurinn myndar nokkurs konar fram- lengingu af húsinu. „Svo er nauðsynlegt að vera með fallega lágstemmda lýsingu í garðinum, m.a. svo að hann njóti sín vel yfir vetrarmán- uðina, tengla fyrir ljósaseríur o.fl. Það er ekkert gaman að horfa út um stofugluggann og sjá bara niðamyrkur, og mun huggulegra að hafa smekklega lýsingu sem leyfir íbú- um að njóta umhverfis hússins út um gluggann á myrkum kvöldum og morgnum.“ Vilja landsmenn greinilega nota garðinn sem mest og segir Inga Rut að margir viðskiptavinir hennar leggi t.d. ríka áherslu á að hafa bæði heitan og kaldan pott í garðinum og útisturtu að auki. „Svo þarf að gera ráð fyrir hitalampa eða eldstæði, og ekki bara grilli heldur útieldhúsi og jafnvel pítsuofni.“ Má ekki gera hvað sem er Byggingarreglugerð og reglur sveitarfélaga setja ákveðnar skorður hvað viðkemur garða- hönnun og segir Inga Rut að skjólgirðingar megi t.d. ekki verra hærri en 180 cm. „Á lóða- mörkunum þarf alltaf að hafa samráð við ná- grannann og þurfa báðir aðilar að vera sam- þykkir því ef á t.d. að reisa þar girðingu. Vilji fólk ómögulega ráðfæra sig við nágrannann þá er reglan sú að girðing má ekki vera hærri en sem nemur fjarlægð girðingar frá lóðamörkum. Ef t.d. á að reisa grindverk sem er metri á hæð þá verður grindverkið að vera a.m.k. metra frá næstu lóð.“ Ef samkomulag er á milli nágranna um að t.d. reisa skjólgirðingu á lóðamörkunum segir Inga Rut að það sé góð regla að leggja teikn- ingar inn til byggingarfulltrúa. „Það þýðir að ef einhver annar flytur inn í næsta hús þá getur sá hinn sami ekki farið að fetta fingur út í það sem þegar hefur verið gert í garðinum.“ Háir runnar og tré geta flækt málið og segir Inga Rut mjög óheppilegt ef stórt tré á næstu lóð varpar skugga á garðinn og rýrir notagildi hans. „Er þá fyrsta skrefið að ræða við ná- grannann og alltaf best að það sé gott samband milli nágranna svo þeir geti komið sér saman um lausn. En gangi viðærðurnar illa má sækja um það hjá sveitarfélaginu að tréð verði fellt og fer þá málið í ferli.“ Sem dæmi um sérstakar kvaðir um hönnun og útlit garða nefnir Inga Rut Vogabyggð í Reykjavík en í fyrra fjölluðu fjölmiðlar um ósáttan íbúa á jarðhæð í fjölbýli sem uppgötvaði að skiplagsyfirvöld höfðu gert þá kröfu að garð- pallur á sérafnotareit mátti ekki fylla út í allan Ljósmyndir/ Landslag Gott er að vinna með það sem fyrir er á lóðinni, s.s. gömul tré og steina. Með réttu efnisvali þarf pallurinn ekki mikið viðhald. Þegar gróinn garður er endurhannaður er gott að leyfa gömlum trjám og runnum að halda sér. Inga Rut Gylfadóttir segir oft þurfa að hafa samráð við nágrannann um hvað er gert á lóðamörkunum. Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is Inga Rut Gylfadóttir segir rómantísk áhrif áberandi um þessar mundir. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gæðastundir í gróðurhúsi Áhugi landsmanna á matjurtarækt virðist aukast ár frá ári og segir Inga Rut að hún sé jafnan beðin að hanna garða með tilliti til þess að á tilteknum reit megi rækta grænmeti, kryddjurtir og jafnvel ávexti. „Þetta skýrist m.a. af því að landsmönnum er mjög umhugað um sjálfbærni og heilnæmt mataræði. Með því að rækta eigið grænmeti veit fólk upp á hár hvað það er að innbyrða og getur verið þess fullvisst að óæskilegum efnum hafi ekki verið sprautað á það sem það eldar ofan í sig og sína. Að rækta grænmeti heima er líka skemmtileg leið til að hafa meira grænt á diskinum og getur uppskeran verið furðumikil ef tekst að rækta nokkrar teg- undir af salati, grænmeti, jarðarberjaplöntu eða gjöfulan berjarunna.“ Svo er nýjasta æðið að hafa gróðurhús í garðinum til þess einmitt að taka matjurtaræktina skrefinu lengra. „En gróðurhúsin eru líka yndislegur íverustaður og lengja sumarið, og eru líka tilvalin til að halda matarboð, spilakvöld og almennt að hafa það huggulegt með kaffiboll- ann eða vínglasið.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.