Morgunblaðið - 27.05.2022, Page 33
reitinn og skylda að hafa bæði gras og berja-
runna á reitnum. „Við sjáum það æ oftar að
deiliskipulag fyrir hverfi kveður skýrt á um
ásýnd garða og opinna svæða og er jafnvel til-
tekið að girðingar verði að vera með tilteknum
hætti, í tilteknum lit, og hvers konar gróður eigi
að vera í görðum fólks.“
Garðurinn hæfi húsinu
Eitt er að skipuleggja garðinn vel og annað
að velja honum heppilegt útlit. Segir Inga Rut
að það verði að taka mið af hönnun hússins og
láta ekki garð og hús stangast á: rómantískt
smáhús kalli á annars konar garð en nútímaleg
einbýlishús. „Þar með er ekki sagt að það sé
útilokað að hafa garðinn við nýja einbýlishúsið
rómantískan, eða ómögulegt að hanna naum-
hyggjulegan garð við gamla húsið,“ útskýrir
Inga Rut og bendir á að möguleikarnir séu
óþrjótandi. „Í dag eru rómantísk áhrif að koma
sterk inn í garðahönnun og fólk hefur vaknað til
vitundar um hve miklu notalegra það er að vera
innan um gróður frekar en að vera umkringdur
steyptum veggjum og gólfum. Það þarf ekki allt
að vera klippt, skorið og óaðfinnanlega skipu-
lagt, og kemur vel út að hafa smá óskipulag á
skipulaginu og leyfa garðinum að hafa náttúru-
legt yfirbragð.“
Þarf líka að huga að því því við hönnun garðs-
ins að hann sé fallegur á öllum árstímum og að
það útheimti ekki of mikla vinnu að halda garð-
inum í horfinu. Er það ákveðin kúnst að velja
plöntur sem laufgast og blómstra á ólíkum tím-
um og gefi garðinum lit og líf bæði á vorin,
sumrin og haustin, og einnig að ganga þannig
frá að garðverkin séu sem auðveldust. „Ein leið
til að létta garðstörfin er að setja eins og fimm
sentimetra þykkt lag af holtasandi í beðin og
hjálpar það til að halda arfanum í skefjum. Það
hefur líka reynst vel að hafa hluta af grasflöt-
inni blómaengi, þar sem blómum er leyft að
vaxa innan um grasið. Þessi engi hafa á sér
skemmtilegt og rómantískt yfirbragð og óþarfi
að slá þann hluta grasflatarinnar á meðan
blómin blómstra.“
Hér ramma beinar og
hreinar línur inn notalegan
griðastað í garðinum.
Garðurinn þarf að ríma við
húsið og best ef hann getur
verið framlenging af her-
bergjum eins og stofunni.
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2022 MORGUNBLAÐIÐ 33
KOSTIR RAFHLÖÐUVERKFÆRA
Minni hávaði, minni mengun.
Minna viðhald, engin smurning.
Aukinn færanleiki, rafhlöður duga í fjölda verkfæra
SLÁTTUVÉLAR
Mikið úrval af rafhlöðu
sláttuvélum frá MAKITA: litlar,
stórar og allt þar á milli.
SLÁTTUORF
Frábær rafhlöðu sláttuorf.
Frá einföldum heimilisorfum
yfir í sterk atvinnuorf.
KEÐJUSAGIR
25 til 45 cm rafhlöðu keðjusagir
fyrirkröfuharða, bæði
hefðbundnar og á stöng!
HEKKKLIPPUR
Rafhlöðu hekkklippur frá 45cm
til 65cm - Klippir hekk allt að
23,5mm
TILBOÐ
DLM460Z Sláttuvél og
DUR189Z sláttuorf
án rafhlaða
128.000,-
VERÐ FRÁ
5
VERÐ FRÁ
25.
VERÐ FRÁ
58.000,-
VERÐ FRÁ
28 000 -. ,000,-7.000,-
ÖLL ÞJÓNUSTA, VIÐGERÐIR OG VARAHLUTIR Í BOÐI HJÁ OKKUR.
Reykjavík: Krókháls 16 Sími 568 1500
Akureyri: Baldursnes 8 Sími 568 1555
www.thor.is
TILBÚIN í ORKUSKIPTIN?
Skannaðu til að sjá vöruúrvalið