Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2022, Side 12
STRÍÐ Í EVRÓPU
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.6. 2022
S
ótsvartur reykur stígur til himins í fjarska og
stórskotalið úkraínska hersins þrumar. Við
nálgumst nyrsta hluta Saltivka, úthverfis
borgarinnar Karkív, sem er önnur stærsta
borg Úkraínu, um 40 km frá rússnesku
landamærunum. Fyrir stríð bjuggu í Saltivka um
700.000 manns. Brunnar og hálfhrundar byggingar
blasa við hvert sem litið er. Á eftirlitsstöð sýni ég blaða-
mannaskilríki okkar og spyr hermann hvað sé að
brenna. „Þeir hæfðu olíubirgðastöð áðan, en við erum að
svara fyrir okkur.“
Stórskotaliðið þrumar á ný og við fikrum okkur
áfram á bílnum okkar eftir vegi sem er þakinn gler-
brotum og öllu því braki sem sprengingar þyrla upp.
Þar sem húsveggir hafa hrunið má greina innbú fólks,
bókahillur, rúm, borð og stóla. Við suma stigaganga hef-
ur verið málað stórum stöfum: „Fólk“, í þeirri veiku von
að íbúðablokkum yrði hlíft við árásum. Allar byggingar í
hverfinu virðast hafa orðið fyrir sprengjuskaða. Við
keyrum fram hjá bifreið sem á hefur verið málað: „Var-
úð. Sprengjuárásir.“ Á annarri bifreið skammt frá
stendur: „Óbreyttum borgurum óheimill aðgangur.“
Markmið okkar er að taka viðtal við fólk sem aldrei
flúði Saltivka, fólk sem ákvað að hafast við í íbúðum sín-
um eða kjöllurum þrátt fyrir umsátur rússneska hers-
ins. Fólk sem hefur búið hér í þrjá mánuði án vatns í
íbúðum, rafmagns og gass.
Vatn er sótt í brunna og eldiviður í nálæga skóga.
Matur er eldaður á heimatilbúnum glóðarkerum úr
múrsteinum. Hjálparsveitir og úkraínski herinn sjá íbú-
unum fyrir matvælum sem eru aðallega hjálparaðstoð
frá Evrópu. Flestir hafast við í kjöllurum á nóttunni og
þegar sprengjuárásir hefjast á daginn. Kjallararnir eru
yfirleitt nöturlegir, kaldir og mjög rakir. Það er lágt til
lofts og út um allt eru vatns- og rafmagnsleiðslur
Sjálf mun ég taka mér vélbyssu í hönd
Við nemum staðar fyrir framan íbúðablokk þar sem
vegurinn endar í nyrsta hluta Saltivka. Ég sé konu með
barminn fullan af eldiviði. Hún spyr mig hvert sé erindi
okkar. Ég segi henni að við séum blaðamenn frá Íslandi.
„Frá Íslandi? Þið komið langt að. Eruð þið ekki svöng?
Við erum að sjóða egg og kjúklingabaunir.“ Konan heit-
ir Tetjana og hefur verið ásamt eiginmanni sínum, Leo-
níd, í Saltivka síðan stríðið hófst.
Það kraumar í tveim pottum yfir eldstæði fyrir fram-
an níu hæða íbúðablokk. Langdreginn sprengjugnýr
heyrist í fjarska og Tetjana segir mér að þetta séu
Grad-flaugar úr eldflaugaskotpöllum úkraínska hersins.
Tetjana segist nú geta greint á milli flughersárása, loft-
varnarskota, fallbyssna, sprengjuvarpa og eldflauga-
skotpalla. „Aðalatriðið er að ef þú heyrir blístur þá eru
sprengjur rússneska hersins að falla nálægt þér og þú
hefur aðeins 2-3 sekúndur til að kasta þér til jarðar eða
leita skjóls.“ Tetjana sýnir okkur sprengjuhylki úr eld-
flaug rússneska hersins, einni af mörgum, sem féll ná-
lægt íbúðablokkinni fyrir þrem vikum. Höggbylgjan
sem fylgdi sprengdi alla glugga í blokkinni.
Tetjana er 64 ára og vann sem sætabrauðsbakari
áður en hún fór á eftirlaun. Hún og eiginmaður henn-
ar, Leoníd, eiga þrjú uppkomin börn og sex barna-
börn. Þau hafa hafst við í kjallara íbúðablokkarinnar
frá fyrstu dögum stríðsins. Hún sýnir okkur kjall-
arann, sem er lítur merkilega vel út miðað við þá sem
við höfum séð. Það eru teppi á steyptum gólfum og
tveir beddar með ábreiðum. Útvarpstæki hangir á
vegg, þaðan sem fólk fékk einna helst fréttir. „30
manns höfðust við hérna í upphafi stríðs“, segir Tetj-
ana mér, „en það flúðu allir næstu daga. Við höfum bú-
ið hérna í 34 ár, en ég sá þennan kjallara fyrst þegar
við leituðum skjóls hér þegar árásirnar hófust. Fyrst
misstum við gasið, síðan vatnið og því næst rafmagn-
ið.“ Helsta vandamálið er skortur á rafmagni til að
hlaða farsíma. Vatn er hægt að sækja í brunn skammt
frá og það er skógur í kring og því nóg af eldiviði til að
elda heitan mat.
„Við höfum nægan mat. Niðursoðið kjöt, bókhveiti,
kæfu og súpur. Við eldum þetta utandyra á milli þess
sem við hlaupum í kjallarann þegar sprengjuárásir hefj-
ast.“ Hvað gerir fólk í kjöllurum undir sprengjuregni?
spyr ég. „Við þegjum, hlustum og bíðum. Þögnina óttast
ég mest.“ Af hverju þögnina? „Vegna þess að þá veistu
ekki hvar næstu sprengjur munu falla, hugsanlega
munu þær falla á þig.“ Við óttuðumst öllum stundum að
íbúðablokkin myndi hrynja og við græfumst undir.
Ég spyr af hverju þau hjónin leituðu ekki skjóls í
neðanjarðarlestakerfi Karkív, eins og þúsundir annarra
gerðu. „Þar er kalt gólf, hundruð manna að hírast, slæm
aðstaða í alla staði og eilífur dragsúgur.“ Af hverju flúð-
uð þið ekki til annars Evrópulands? „Börnin okkar og
barnabörn flúðu til Póllands. Það var örtröð á brautar-
stöðinni, bið eftir plássi í lestum tók nokkra daga. Þau
sögðu okkur að það væru 300 manns í lestarvögnum
sem hugsaðir eru fyrir 45 manns. Ferðin til Póllands tók
36 tíma. Síðan kostar það líka sitt að búa þar. Við viljum
ekki yfirgefa okkar heimili og þvælast um útlönd.“
Ég spyr Tetjönu hvernig hugarfar hennar hafi breyst
síðan stríðið hófst. Hún segist vera mun beinskeyttari
og þoli ekki lengur neitt bull. Áður hafi hún látið það
sem vind um eyru þjóta, en ekki lengur. „Áður fyrr blót-
aði ég ekki, en núna geri ég það beint í andlitið á fólki ef
það byrjar að bulla. Sérstaklega gagnvart fólki í Rúss-
landi sem þykist vita hvernig við eigum að lifa.“
Hvernig leið ykkur 24. febrúar þegar árásin á Úkra-
ínu hófst? spyr ég: „Við trúðum því einfaldlega ekki
fram á síðustu stundu að Rússland myndi gera árás. Við
heyrðum fyrst um innrásina í fréttum og horfðum bara
hvort á annað í fullkomnu losti.“
Hvernig var viðhorfið gagnvart Rússlandi fyrir stríð
og hvernig er það nú, spyr ég? „Við höfðum ekkert út á
Rússland að setja, nema út af Krímskaga og Donbas.
Við tölum sjálf rússnesku þótt við séum Úkraínumenn.
Nú hötum við Rússland og Rússa. Við höfum sætt linnu-
lausum árásum í þrjá mánuði og höfumst við í kjallara.
Fullt af fólki í Rússlandi styður stríðið gegn okkur. Það
ætti sjálft að reyna að búa í kjöllurum mánuðum saman
og vera á flótta víðs vegar um Rússland.“
Hvaða ráð hefurðu í svona erfiðum aðstæðum? spyr
ég: „Halda höfðinu köldu og forðast móðursýki. Það er
hægt að komast í gegnum allt með allsgáðum huga.“
Tetjana segist hafa heyrt ýmsar spár um þróun
stríðsins, en ef þetta muni halda lengi áfram þá taki hún
sér vélbyssu í hönd og fari sjálf á vígstöðvarnar. Það er
ekki hægt að halda áfram að lifa eins og þau lifa núna.
Við kveðjum Tetjönu og höldum ferð okkar áfram um
brunarústir Saltivka. Við sjáum hund og kött sem fylgja
bílnum, sem keyrir hægt eftir holóttri götunni. Við
stoppum og stígum út úr bílnum. Dýrin koma að okkur
mjálmandi og veinandi. Kötturinn hljúfrar sig að okkur.
Þetta eru greinilega gæludýr sem hafa verið skilin eftir.
Margir flúðu með gæludýrum sínum, en mörg voru skil-
in eftir. Við gefum þeim dýrafóður sem við höfðum tekið
með, vitandi um ástandið á dýrum á stríðssvæðum. Dýr-
in eru hungruð og éta fóðrið af áfergju. Við höldum ferð
okkar áfram. Við erum að leita að fólki.
Fyrir skjótan sigur! Dýrð sé Úkraínu!
Á götuhorni sjáum við reyk fyrir framan blokk sem er
að hálfu brunnin. Fyrir framan blokkina er stór djúpur
gígur. Ég spyr mann sem stendur vígreifur með exi fyr-
ir framan hana hvenær þessi sprengja hafi fallið.
„Sprengja? Við erum að búa til sundlaug hérna,“ segir
hann og brosir.
Vladyslav heitir maðurinn og er að höggva eldivið.
Það kraumar í potti og pönnu á glóðarkeri. Hann er að
elda borsj og býður okkur að snæða með sér. Vladislav
er 52 ára og vann fyrir stríð sem vörubílstjóri. Hann
segir okkur að hann hafi ákveðið að vera áfram í íbúð
Þögnina óttast
ég mest
Saltivka nefnist úthverfi í Karkív, sem hefur orðið illa úti í árásum Rússa.
Fréttaritari Morgunblaðsins og ljósmyndari voru þar á ferð og ræddu við
nokkra íbúa sem hafa látið þar fyrirberast frá því að stríðið hófst, þrátt
fyrir stöðugar hremmingar og skort í skothríð og sprengjuregni.
Texti: Jón Gauti Jóhannesson Myndir: Oksana Jóhannesson
Tetjana „Aðalatriðið er að ef þú heyrir blístur þá eru sprengjur rússneska
hersins að falla nálægt þér og þú hefur aðeins 2-3 sekúndur til að kasta þér
til jarðar eða leita skjóls.“
Vladislav „Sprengja? Við erum að búa til sundlaug hérna.“