Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2022, Qupperneq 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2022, Qupperneq 17
það leyti sem okkar maður fékk sín. „Af hverju bók- menntaverðlaun en ekki friðarverðlaun,“ spurði gamli maðurinn hissa. En þegar Selenskí og mennirnir í kringum hann sáu álit Kissingers og hvernig því var rækilega slegið upp og sáu fjögurra punkta „friðarskjalið“ frá Draghi þá rann upp fyrir forsetanum og þeim hinum fölvakennt ljós. Sama heráætlun, en beint að öðrum Nú skildu þeir loksins hvað var á ferðinni. Pútín var búinn að setja til hliðar planið um að þreyta leiðtoga Úkraínu og þjóðina sjálfa til uppgjafar. Hann sá að það myndi ganga illa og þó einkum of hægt. Varnarlið Úkraínu væri of þrjóskt og þjóðelskt og það ruglaði dómgreind þess. Eftir Kissinger og Draghi kom svo Macron. Hann var kominn úr eftiröpunarskyrtu sinni af Selenskí. Hann sagðist nú alltaf hafa verið foringi í þágu friðar. Nú væri meginverkefnið það, að gæta um- fram allt að niðurlægja ekki Pútín, forseta Rússlands. Og það var þá og þess vegna, sem Pútín ákvað að halda nú fast í áætlunina sína, um að knýja menn, vondaufa og þreytta, til uppgjafar. En það yrði að skipta út leik- urum. Setja inn þjálli menn, sem vildu komast af þessu sviði og í annað leikrit, þar sem þeir nytu sín betur og umfram allt vissu hvernig endaði. Í staðinn fyrir áætlunina um að þreyta Selenskí, þjóð hans og stuðningsmenn til uppgjafar þá koma þeir kanslari Þýskalands og forseti Frakklands og Joe Bi- den, sem Kissinger hafði sent álit sitt til kynningar. Draghi, forseti Ítalíu, er gamall seðlabankastjóri og hann veit að fjárhagur Ítalíu má ekki við neinu eins og komið er. Hann veit, en segir ekki upphátt, að evran hefur verið ónýtur gjaldmiðill fyrir Ítalíu. Flest evru- löndin eru með eina mynt og einn alræðisseðlabanka þeirrar myntar. Þó er verðbólgan á myntsvæðinu nú 20% í einu landi myntarinnar, 18% á öðru og koll af kolli niður í 7% og fer hækkandi hjá löndunum öllum að því er best verður séð. Efnahagurinn leyfir þetta ekki lengur Draghi veit að Úkraínustríðið er búið spil. Boris for- sætisráðherra Breta hafði sýnt kjark og snerpu í stuðningi þess sem vörnina veitti. Samt ætluðu sam- flokksmenn hans að kasta honum undir valtarann af því að hann, margbólusettur og nær dauða en lífi eftir 19 daga á spítala með veiru, hefði drukkið kampavín úti í lokuðum garði. Ekki er vitað til þess, eftir þræls- lega skoðun, að nokkur þeirra sem tóku þátt í því sak- lausa gamni hafi smitast eða smitað aðra út af þessu lítilræði. Og þetta gera bullurnar í Íhaldsflokknum við þær aðstæður sem nú eru. Nú heimta þeir að þau útgjöld sem fallið hafa til vegna Úkraínu gagnist þeim í næstu kosningabaráttu. Það er ekki sagt en það er það sem ákæran þýðir. „Ekki meira af okkar peningum, sem við getum nýtt upp í nasir kjósenda, í stríð sem allir eru búnir að gefa upp á bátinn.“ Þetta vill enginn mað- ur hugsa. Þetta vill ekki margur maður segja og þetta vilja „leiðtogar“ Vesturlanda, frá Biden og niður úr, ekki vita og helst ekki ræða. Biden fer léttara með það en aðrir að vita þetta ekki, hugsa þetta ekki, en gæti átt það til að missa út úr sér og bíða svo eftir leiðréttingu hússins til að vita sjálfur hvað hann sagði, en meinti ekki. „Pútín má ekki vinna þetta stríð,“ sagði Biden fyrir nokkrum vikum. Er það ekki óþægilegt fyrir Biden? Verði hann spurður af blaðasnápum (sem fá aldrei að spyrja hann) svarar Bi- den: „Hvaða Pútín? Hvaða stríð?“ Hvíta húsið myndi svo senda frá sér leiðréttingu: „Ekki hefur verið upp- lýst hvaða Biden blaðamaðurinn var að spyrja spurn- inga, eða um hvaða stríð Pútíns hann vildi helst fá að vita. Joe (Biden) segist ekki hafa rætt þessi atriði við Hunter Biden og muni ekki gera það nema nýtt tilefni komi til.“ Ekki er gert ráð fyrir Henry Kissinger 99 ára telji ástæðu til að skilgreina eitt né neitt af þessu tilefni, en hugsanlega við aldarafmælið. Sé spurt: „Er þá svona komið?“ Svarar maður þá eins og Biden: „Það held ég helst, en heldur síður þó.“ Morgunblaðið/Eggert 12.6. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.