Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2022, Síða 28
G
eorge Shapiro var umboðs-
maður tveggja af þekkt-
ustu uppistöndurum í sögu
Bandaríkjanna, Andys Kaufmans og
Jerrys Seinfelds. Rak hann fram-
leiðslufyrirtækið Shapiro/West
ásamt viðskiptafélaga sínum How-
ard West sem lést árið 2015.
Shapiro fæddist 18. maí árið 1931
og ólst upp í Bronx-hverfinu í New
York. Hann gekk í DeWitt Clinton-
menntaskólann og tók háskólanám í
New York University.
Skemmtikrafturinn og leikarinn
Carl Reiner giftist frænku Georges
Shapiro og var Shapiro umboðs-
maður hans um tíma. Carl Reiner
var faðir Robs Reiners sem er einnig
þekktur framleiðandi, leikstjóri og
leikari, svo við förum örlítið út í ætt-
fræði í afþreyingariðnaðinum
bandaríska. Hér er þetta nefnt
vegna þess að Rob Reiner tók þátt í
framleiðslu Seinfeld-þáttanna og þar
unnu hann og Shapiro því saman.
Á ýmsu gekk
Carl Reiner stakk upp á því að
Shapiro færi að sjá uppistand hjá
Andy Kaufman með þeim orðum að
atriðið væri það frumlegasta sem
Carl Reiner hefði séð hjá uppi-
standara. Shapiro fór að hans ráð-
um og gerðist umboðsmaður Andys
Kaufmans sem á sérstakan sess á
meðal grínista þótt Kaufman hafi
Danny De Vito, Jim Carrey og Courtney Love á frumsýningu Man on the
Moon árið 1999. De Vito lék Shapiro í myndinni og Carrey lék Kaufman.
Jim Ruymen/ AFP
Fylgdist með
að tjaldabaki
Umboðsmaðurinn George Shapiro lést á dög-
unum í Los Angeles, 91 árs að aldri. Shapiro var
ekki frægur maður í samanburði við þau sem eru
fyrir framan myndavélarnar en hafði mikil áhrif.
Kristján Jónsson kris@mbl.is
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.6. 2022
LESBÓK
George Shapiro fékk tækifæri til að starfa hjá William Morris-
umboðsskrifstofunni í New York að námi loknu. Var settur í póst-
deildina eins og algengt var með nýliða en vann sig upp. Þegar hann
var orðinn umboðsmaður hjá fyrirtækinu þá var eitt af hans fyrstu
verkefnum að fylgja sjálfum Elvis Presley í sjónvarpsþáttinn The Ed
Sullivan Show. Ætli það kallist ekki að henda
manni ofan í djúpu laugina enda er vandfundinn
frægari skemmtikraftur. Umboðsskrifstofan var sú
eina sem Shapiro starfaði hjá áður en hann stofnaði
fyrirtækið með Howard West.
Þegar Shapiro stóð á áttræðu var hann
heiðraður í Beverly Hills fyrir störf sín í af-
þreyingariðnaðinum. Var hann fyrstur til
að hljóta Lifetime of Bliss-verðlaunin hjá
David Lynch Foundation og mættu
margir af þekktustu grínistum Bandaríkj-
anna til að samfagna Shapiro af því tilefni.
Hent í djúpu laugina
Elvis
Presley
ELJA Íslandsvinurinn Eric Clapton þeysist nú um Evr-
ópu og leikur á gítarinn eins og hann er þekktur fyrir.
Clapton hóf tónleikaferðalag í Royal Albert Hall í Lond-
on í síðasta mánuði og er með hæfileikaríka hljóðfæra-
leikara sér til halds og trausts eins og við var að búast.
Clapton er 77 ára gamall en spilar og syngur í tvo
tíma eða svo án þess að gera hlé. Um miðbik tónleikanna
fær hann sér sæti og leikur þá nokkur lög á kassagítar
af Unplugged-plötunni kunnu sem kom út árið 1992.
Í þessum mánuði mun Clapton heimsækja Þýskaland,
Holland, Belgíu, Danmörku og Finnland svo eitthvað sé
nefnt. Í september stendur svo til að halda tónleika-
ferðalaginu áfram í Bandaríkjunum. Kappinn virðist því
í hörkuformi miðað við aldur og fyrri störf.
Clapton á ferð og flugi
Gítar-
snillingurinn
Eric Clapton.
Morgunblaðið/hag
ÓVÆNT Ekki er heiglum hent að spá um
hvaða lög koma til með að njóta vinsælda í
poppheimum eða hvenær. Enska tónlistar-
konan Kate Bush hefur fengið að kynnast því
en hún á nú lag á topp tíu á bandaríska vin-
sældalistanum í fyrsta skipti á ferlinum en
Bush er 63 ára.
Hið skondna er að lagið er 37 ára gamalt
og naut einnig vinsælda skömmu eftir að það
var gefið út. Þá náði það þó einungis þrítug-
asta sæti listans í Bandaríkjunum. Lagið heit-
ir Running Up That Hill og er spilað í nýjustu
seríunni af þáttunum Stranger Things sem
notið hafa vinsælda hérlendis.
Nýtur meiri vinsælda 2022 en 1985
Enska tónlistarkonan Kate Bush.
Laura Dern á forsýningu mynd-
arinnar í Hollywood.
Sjötta myndin
KVIKMYNDIR Jurassic World
Dominion var sýnd í kvikmynda-
húsum í Bandaríkjunum í gær og er
sjötta myndin sem gerð eftir bókum
Michaels Crichtons. Tuttugu og níu
ár eru síðan Jurassic Park gerði
allt vitlaust í leikstjórn Stevens
Spielberg og halaði inn rúman
milljarð dollara.
Jurassic World Dominion var
frumsýnd í Mexíkó og Suður-Kóreu í
lok maí. Framleiðsluferlið tók sinn
tíma þar sem vinna hófst áður en kór-
ónuveiran skall á heimsbyggðinni.
Laura Dern snýr nú aftur sem
Dr. Ellie Sattler en hún var í stóru
hlutverki í fyrstu myndinni. Jeff
Goldblum, Sam Neill og BD Wong
eru einnig í nýju myndinni.