Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2022, Side 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2022, Side 32
SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 2022 AVANA model 2570 L 224 cm Leður ct. 15 Verð 539.000,- L 244 cm Leður ct. 15 Verð 559.000,- LEUCA model 3186 L 167 cm Leður ct. 15 Verð 389.000,- L 207 cm Leður ct. 15 Verð 439.000,- STAN model 3035 L 170 cm Leður ct. 15 Verð 429.000,- L 206 cm Leður ct. 15 Verð 479.000,- TRATTO model 2811 L 145 cm Leður ct. 25 Verð 449.000,- L 207 cm Leður ct. 25 Verð 579.000,- ESTRO model 3042 L 164cm Leður ct. 25 Verð 439.000,- L 198 cm Leður ct. 25 Verð 489.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 Óskalög sjómanna er vafalítið einn vinsælasti útvarpsþáttur í ís- lenskri fjölmiðlasögu. Þátturinn hóf göngu sína í Ríkisútvarpinu árið 1956 og var í loftinu fram til ársins 1990. Nú þrjátíu og tveimur árum síðar mun þátturinn fara aftur í loftið í eins konar hátíðarútgáfu í tengslum við hátíðahöld á sjómannadaginn. Óskalög sjómanna verða á dagskrá á Rás 1 á sjómannadaginn klukkan 15. Umsjón með þættinum hefur Svanhildur Jakobs- dóttir sem unnið hefur með tónlistarþætti í útvarpi frá árinu 1987 og hefur á undanförnum misserum stýrt þættinum Óska- stundinni sem er á dagskrá á föstudagsmorgnum. Hátíðahöld vegna sjómannadagsins eru fyrirhuguð víða um land en í höfuðborginni er hátíðahaldanna beðið með eftirvænt- ingu þar sem þau hafa fallið niður síðustu tvö árin vegna heims- faraldursins. Í einni elstu verstöð landsins Bolungarvík verður dagurinn haldinn hátíðlegur í 83. skipti. Koddaslagurinn þykir sígilt skemmtiatriði á sjómannadaginn. Morgunblaðið/Hari Óskalög sjómanna Svanhildur Jakobsdóttir stýrir þættinum. Morgunblaðið/Golli Einn vinsælasti útvarpsþátturinn í sögu Ríkisútvarpsins fer aftur í loftið Sú nýlunda var kynnt til sögunnar í maí fyrir 40 árum að knattspyrnudómarar myndu eftir- leiðis lyfta spjöldum í stað þess að „ræða við leikmenn og gefa þeim til kynna með bend- ingum að þeir fái áminningu eða séu reknir af leikvelli“. Gult spjald þýddi áminningu, en rautt brottrekstur af velli. Frá þessu var greint í Morgunblaðinu 30. maí 1972 og kom fram að þetta fyrirkomulag hefði þá verið „mjög að ryðja sér til rúms erlendis, en hvatinn að því mun hafa verið tungumála- erfiðleikar, þar sem dómarar voru fengnir frá allt öðrum löndum en leikmennirnir, sem tóku þátt í leiknum“. Fréttinni fylgdi að um leið væri „ætlun íslenzkra dómara að reyna að taka strangara á ýmsum brotum í knattspyrnunni en gert hefur verið til þessa og er það einnig í sam- ræmi við ríkjandi stefnu erlendis“. Var vísað til þess að í ensku deildakeppninni hefði haustið á undan verið tekin upp strangari dómgæsla, en er á hefði liðið hefði virst sem dómarar gæfust upp og allt sækti í sama farið og fyrr. GAMLA FRÉTTIN Gult og rautt Bjarni Felixson var formaður Knattspyrnudómara- sambandsins 1972 og kynnti nýja fyrirkomulagið glað- hlakkalegur með því að lyfta spjaldi á loft. ÞRÍFARAR Sasha Alexander Bandarísk leikkona Sara Dögg Ásgeirsdóttir Íslensk leikkona Julie Gayet Frönsk leikkona

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.