Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Síða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Síða 2
Hvað er framundan? Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum, sem fram fer í Kapla- krika 25. og 26. júní. Í hvaða greinum ætlarðu að keppa? Ég fer líklegast í 100 metra grindahlaup, langstökk, kúluvarp, spjótkast og jafnvel 200 metra hlaup. Á hvaða grein leggurðu mesta áherslu? Ég býst við að setja mesta orku í grindahlaupið og stefni að sigri þar, ásamt því að bæta minn besta tíma. Er góð áhorfendaaðstaða í Kaplakrika? Já, þar er ágæt stúka og um að gera að mæta. Það yrði mjög gaman, þar sem harðar samkomutakmarkarnir voru síðustu tvö ár. Vonandi verður gott veður. Það hefur mikil áhrif á árangurinn á mótunum, bæði vindstyrkur og hitastig. Varstu ánægð með árangurinn á NM? Þetta var fyrsta sjöþrautin sem ég keppti í frá árinu 2019. Ég var að glíma við meiðsli í fæti og í þetta skiptið var eiginlega aðalsigurinn að kom- ast í gegnum þrautina án þess að vera verri á eftir. Eru fleiri mót erlendis á döfinni í sumar? Ég fer til Svíþjóðar fyrstu helgina í júlí og keppi í sjöþraut á alþjóðlegu móti í Sol- lentuna. Mótið verð- ur nokkuð sterkt og ég býst við kepp- endum frá nokkrum þjóðum auk þess sem Svíarnir verða margir. Það verður fínt að fara aftur út, þar sem maður fær tækifæri til að keppa við aðra en hérna heima. MARÍA RÚN GUNNLAUGSDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Orðin heil heilsu á ný Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Passamyndir Tímapantanir í síma 568 0150 eða á rut@rut.is Förum eftir öllum sóttvarnartilmælum Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is E inhverjir mestu töffarar í þessum heimi eru Þórsarar á Brekkunni á Akureyri en eins og gefur að skilja eru þeir teljandi á fingrum ann- arrar handar. Einn af þessum hugdjörfu mönnum, Þór Freysson, pródúsent og gítarleikari, var í bráðskemmtilegu spjalli hjá Felix Bergssyni á Rás 2 um hvítasunnuna og gerði þar grein fyrir því hvers vegna hann, sem ólst upp á næstu torfu við KA-völlinn, varð snemma Þórsari fyrir lífstíð. „Tja, heitandi þessu nafni þá gat ég auðvitað ekki æft með KA,“ upplýsti Þór. Svo einfalt var það. Kallist þetta ekki að standa undir nafni þá heiti ég Þrándur og er húsamálari. Þór var þarna um tíu ára gamall og þegar Felix spurði hvort hann hefði þá bara tekið strætó á fótbolta- æfingar í Þorpinu kom skemmtilegt svar: „Nei, það var ekki búið að finna upp strætó á þeim árum. Ég bara hjólaði eða gekk.“ Eins undarlega og það hljómar þá er þetta dagsatt; á árunum upp úr 1970 var enginn strætó á Akureyri. ætli hann hafi verið „fundinn upp“ fyrr en í kringum 1980. Muni ég þetta rétt þá gegndi rútukálfur fyrst því hlutverki áður en alvöruvagnar voru pantaðir utan úr heimi, þessir grænu og hvítu sem margir muna ábyggilega eftir. Voru þeir ekki af gerðinni Volvo? Látnir áttu síðar að þvo þessa vagna á nóttunni. Sem frægt var. Fræg er líka sagan af því þegar kálfurinn forveri þeirra bilaði. Fólks- bifreið, segjum af gerðinni Skoda (þeir voru margir á Akureyri), renndi þá upp að stoppistöð – sem þá var bara staur en ekki skýli. Ökumaðurinn skrúf- aði niður rúðuna og spurði konu á besta aldri sem þar stóð í kafaldsbyl: „Ertu að bíða eftir strætó?“ „Já,“ gall í konunni. „Þetta er hann!“ Starfsmenn SVA kunnu að hugsa í lausnum á þessum árum – og kunna ugglaust enn. Þór Freysson hefur um árabil verið einn af okkar fremstu pródúsentum og útsendingarstjórum en kom fyrst fram á sjónarsviðið sem gítarleikari Bara- flokksins fyrir um fjórum áratugum; framsækins bands sem spilaði ný- bylgjurokk í rauntíma. Hvernig sem það var hægt hér í fásinninu löngu fyrir tíð Spotify, YouTube og alnetsins. Geggjuð var sagan af tilurð nafnsins. Þeir piltar voru einhverju sinni spurðir hvað þeir væru að þvælast í gömlu hús- næði á Eyrinni og Ásgeir heitinn Jónsson söngvari svaraði því til að þetta væri bara flokkur af strákum að æfa sig í músík. Ergó: Baraflokkurinn. Gat auðvitað ekki æft með KA Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Nei, það var ekki búið að finna upp strætó á þeim árum. Ég bara hjólaði eða gekk. Ásdís Svavarsdóttir Brynhildur Guðjónsdóttir. SPURNING DAGSINS Hver er uppáhalds listamað- urinn þinn? Ólafur Ásgeirsson Tolli. Kristjana Pálsdóttir, Páll og Dísa Magga Æja myndlistarkona, hún er stór- kostleg. Magnús Haukur Harðarson Björn Jörundur. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumynd er frá Colorbox Lyfjafræðingurinn María Rún Gunnlaugs- dóttir er margfaldur Íslandsmeistari í frjálsum íþróttum. Hún varð á dögunum fimmta á Norðurlandamóti í fjölþraut. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.