Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Blaðsíða 2
Hvað er framundan?
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum, sem fram fer í Kapla-
krika 25. og 26. júní.
Í hvaða greinum ætlarðu að keppa?
Ég fer líklegast í 100 metra grindahlaup, langstökk, kúluvarp,
spjótkast og jafnvel 200 metra hlaup.
Á hvaða grein leggurðu mesta áherslu?
Ég býst við að setja mesta orku í grindahlaupið og stefni að sigri
þar, ásamt því að bæta minn besta tíma.
Er góð áhorfendaaðstaða í Kaplakrika?
Já, þar er ágæt stúka og um að gera að mæta. Það yrði mjög
gaman, þar sem harðar samkomutakmarkarnir voru síðustu
tvö ár. Vonandi verður gott veður. Það hefur mikil áhrif á
árangurinn á mótunum, bæði vindstyrkur og hitastig.
Varstu ánægð með árangurinn á NM?
Þetta var fyrsta sjöþrautin sem ég keppti í frá
árinu 2019. Ég var að glíma við meiðsli í fæti og í
þetta skiptið var eiginlega aðalsigurinn að kom-
ast í gegnum þrautina án þess að vera verri á
eftir.
Eru fleiri mót erlendis á döfinni
í sumar?
Ég fer til Svíþjóðar fyrstu helgina í
júlí og keppi í sjöþraut á
alþjóðlegu móti í Sol-
lentuna. Mótið verð-
ur nokkuð sterkt og
ég býst við kepp-
endum frá nokkrum
þjóðum auk þess sem
Svíarnir verða margir. Það
verður fínt að fara aftur út,
þar sem maður fær tækifæri til
að keppa við aðra en hérna heima.
MARÍA RÚN GUNNLAUGSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Orðin heil
heilsu á ný
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is |
Opið alla virka daga kl. 10-17
Passamyndir
Tímapantanir
í síma 568 0150
eða á rut@rut.is
Förum eftir öllum
sóttvarnartilmælum
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is
E
inhverjir mestu töffarar í þessum heimi eru Þórsarar á Brekkunni á
Akureyri en eins og gefur að skilja eru þeir teljandi á fingrum ann-
arrar handar. Einn af þessum hugdjörfu mönnum, Þór Freysson,
pródúsent og gítarleikari, var í bráðskemmtilegu spjalli hjá Felix Bergssyni
á Rás 2 um hvítasunnuna og gerði þar grein fyrir því hvers vegna hann, sem
ólst upp á næstu torfu við KA-völlinn, varð snemma Þórsari fyrir lífstíð. „Tja,
heitandi þessu nafni þá gat ég auðvitað ekki æft með KA,“ upplýsti Þór. Svo
einfalt var það. Kallist þetta ekki að standa undir nafni þá heiti ég Þrándur
og er húsamálari.
Þór var þarna um tíu ára gamall
og þegar Felix spurði hvort hann
hefði þá bara tekið strætó á fótbolta-
æfingar í Þorpinu kom skemmtilegt
svar: „Nei, það var ekki búið að
finna upp strætó á þeim árum. Ég
bara hjólaði eða gekk.“
Eins undarlega og það hljómar þá
er þetta dagsatt; á árunum upp úr
1970 var enginn strætó á Akureyri.
ætli hann hafi verið „fundinn upp“
fyrr en í kringum 1980. Muni ég
þetta rétt þá gegndi rútukálfur fyrst því hlutverki áður en alvöruvagnar voru
pantaðir utan úr heimi, þessir grænu og hvítu sem margir muna ábyggilega
eftir. Voru þeir ekki af gerðinni Volvo? Látnir áttu síðar að þvo þessa vagna á
nóttunni. Sem frægt var.
Fræg er líka sagan af því þegar kálfurinn forveri þeirra bilaði. Fólks-
bifreið, segjum af gerðinni Skoda (þeir voru margir á Akureyri), renndi þá
upp að stoppistöð – sem þá var bara staur en ekki skýli. Ökumaðurinn skrúf-
aði niður rúðuna og spurði konu á besta aldri sem þar stóð í kafaldsbyl:
„Ertu að bíða eftir strætó?“
„Já,“ gall í konunni.
„Þetta er hann!“
Starfsmenn SVA kunnu að hugsa í lausnum á þessum árum – og kunna
ugglaust enn.
Þór Freysson hefur um árabil verið einn af okkar fremstu pródúsentum og
útsendingarstjórum en kom fyrst fram á sjónarsviðið sem gítarleikari Bara-
flokksins fyrir um fjórum áratugum; framsækins bands sem spilaði ný-
bylgjurokk í rauntíma. Hvernig sem það var hægt hér í fásinninu löngu fyrir
tíð Spotify, YouTube og alnetsins. Geggjuð var sagan af tilurð nafnsins. Þeir
piltar voru einhverju sinni spurðir hvað þeir væru að þvælast í gömlu hús-
næði á Eyrinni og Ásgeir heitinn Jónsson söngvari svaraði því til að þetta
væri bara flokkur af strákum að æfa sig í músík. Ergó: Baraflokkurinn.
Gat auðvitað
ekki æft með KA
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’
Nei, það var ekki búið
að finna upp strætó á
þeim árum. Ég bara
hjólaði eða gekk.
Ásdís Svavarsdóttir
Brynhildur Guðjónsdóttir.
SPURNING
DAGSINS
Hver er
uppáhalds
listamað-
urinn
þinn?
Ólafur Ásgeirsson
Tolli.
Kristjana Pálsdóttir, Páll og
Dísa Magga
Æja myndlistarkona, hún er stór-
kostleg.
Magnús Haukur Harðarson
Björn Jörundur.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumynd er frá
Colorbox
Lyfjafræðingurinn María Rún Gunnlaugs-
dóttir er margfaldur Íslandsmeistari í
frjálsum íþróttum. Hún varð á dögunum
fimmta á Norðurlandamóti í fjölþraut.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason