Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Síða 8
Ronnie O’Sullivan er maður mikilla svipbrigða og ber tilfinningarnar utan á sér þegar hann veltir fyrir sér stöðunni á heimsmeistaramótinu. Þegar titillinn var í höfn geislaði síðan af honum kankvís léttir..
AFP/Ole Scarff
S
nókergoðsögnin Ronnie O’Sullivan
komst í fréttir í vikunni þegar
hann lýsti yfir því að Kínverjar
væru í kjörstöðu til að „einoka“
snókeríþróttina og nú þegar væru
komnir fram þrír til fjórir spilarar, sem hefðu
allt til að bera til að verða heimsmeistarar.
O’Sullivan ætti að vita það. Hann hefur orð-
ið heimsmeistari sjö sinnum, nú síðast í maí.
Orðin lét hann falla af því tilefni að hann var
staddur í Singapúr til að opna nýja snóker-
akademíu í sínu nafni. Hann sagði um leið að
íþróttin ætti gróskutíma fyrir höndum í Asíu.
Akademían er ætluð fyrir efnilega snóker-
spilara í Asíu og telur O’Sullivan að þar séu
allar forsendur til að auka vinsældir greinar-
innar.
Sjöundi heimsmeistaratitillinn
„Í hvert skipti, sem við komum til Asíu –
Kína, Taílands, Singapúr – er mikil spenna,“
sagði hann. „Ég held að eigi greinin að vaxa
og ná jafnvel golfi og tennis … ég held að
Asía sé kannski staðurinn þar sem það gæti
gerst.“
O’Sullivan er einn besti snókerspilari sem
uppi hefur verið, ef ekki sá besti. Þegar hann
varð heimsmeistari í Sheffield 1. maí hampaði
hann titlinum í sjöunda sinn. Hann er 46 ára
og elstur til að verða heimsmeistari síðan Ray
Reardon, fyrirmynd hans, vann titilinn 1982.
O’Sullivan lék frábæran snóker þegar hann
bar sigurorð af Judd Trump í úrslitavið-
ureigninni á heimsmeistaramótinu. Að lokum
sigraði hann 18-13.
Fyrir einvígið sagði Trump að það hefði
alltaf verið draumur sinn að leika við O’Sulliv-
an í úrslitunum. „Ronnie var hetjan mín þeg-
ar ég var að alast upp og hann er nú þegar
besti leikmaður, sem nokkru sinni hefur lifað,
en ég held að hann vilji staðfesta það með því
að vinna sinn sjöunda titil,“ sagði Trump. Þótt
Trump ætti sína spretti í úrslitunum tókst
honum ekki að koma í veg fyrir það. O’Sulliv-
an jafnaði þar met Skotans Stephens Hend-
rys.
O’Sullivan hefur glímt við þunglyndi á ferli
sínum og leitaði ásjár í áfengi og eiturlyfjum
þar til hann náði áttum og komst að þeirri
niðurstöðu að neyslan væri engin hækja, sem
hægt væri að styðja sig við þegar á bjátaði.
Hann fór að hlaupa og þar fann hann að end-
ingu sína lækningu. Um leið varð hann mjög
frambærilegur hlaupari og er besti tími hans í
10 km hlaupi 34 mínútur og 54 sekúndur frá
árinu 2008.
Úr vímuefnum í langhlaupin
„Ég var þunglyndur af því að ég hætti að
drekka og neyta eiturlyfja, en ég fór að
drekka og taka eiturlyf vegna þess að ég var
þunglyndur,“ sagði hann í sjálfsævisögu sinni
frá 2013, Á hlaupum. „Þegar upp var staðið
vildi ég frekar vera laus [við vímugjafana] og
þunglyndur en á eiturlyfjum og þunglyndur.“
Sterkur persónuleiki hans endurspeglaðist í
meistaralegri spilamennsku á meðan faðir
hans afplánaði 18 ára fangelsisdóm, sem hann
fékk árið 1992 fyrir morð. Fjórum árum síðar
var móðir hans einnig dæmd í fangelsi. Fjöl-
skyldan hafði haft lifibrauð sitt af rekstri
klámbúða í Soho í London. Hún þurfti að sitja
inni í eitt ár fyrir skattsvik og O’Sullivan og
systir hans Danielle, sem þá var átta ára,
þurftu að bjarga sér sjálf. Danielle fór til vina
fjölskyldunnar, en O’Sullivan einbeitti sér að
snókernum.
Foreldrarnir í fangelsi
Sama ár og faðir hans var dæmdur í fangelsi
gerðist hann atvinnumaður í snóker, þá 16 ára
gamall. Árið eftir vann hann breska meistara-
mótið, 17 ára og 69 daga gamall. Hann var þá
yngsti maður til að sigra á stigamóti í snóker
frá upphafi og stendur það met enn.
Hann er þekktur fyrir að spila hratt og
sækja stíft og hefur fyrir vikið fengið viður-
nefnið rakettan. Hann hefur sagt að hann hafi
óbeit á því þegar viðureignir dragast á lang-
inn út af varnarsinnuðum leik og telur að slík-
ar leikaðferðir skaði íþróttina.
Hann er rétthentur, en getur beitt vinstri
hendinni hnökralaust og á það til að skipta
þegar hentar til að þurfa ekki að nota fram-
lengingu eða maskínu. Þegar hann sýndi fyrst
hvers hann var megnugur með vinstri á
heimsmeistaramótinu 1996 taldi andstæð-
ingur hans að hann væri að sýna sér óvirðingu
og neitaði að taka í
höndina á honum.
O’Sullivan var tíu
ára þegar hann náði
fyrst 100 stigum með
því að raða niður kúl-
um án þess að hleypa
andstæðingnum að í
atvinnukeppni. Hann er eini leikmaðurinn til
að ná 100 stiga stuði 1.000 sinnum og hefur
reyndar gert það 1.100 sinnum alls. Enginn
hefur heldur náð að hreinsa borðið jafnt oft
með fullt hús stiga í einu stuði, það er að setja
niður allar kúlurnar og ná alltaf sjöunni án
þess að hleypa andstæðingnum að. Hann hef-
ur nú gert það 15 sinnum. Hann er einnig í
heimsmetabók Guinness fyrir að gera það á
mettíma. Því náði hann á heimsmeistara-
mótinu árið 1997 þegar hann hreinsaði borðið
á fimm mínútum og átta sekúndum. Mynd-
skeið af hreinsuninni er að finna á Youtube og
er ótrúlegt að fylgjast með nákvæmni og fum-
leysi O’Sullivans þegar hann sallar niður
hverja kúluna á eftir annarri.
Faðir hans, sem losnaði úr fangelsi 2009,
var dæmdur árið 1992 fyrir morðið á Bruce
Bryan, sem hafði verið bílstjóri Charlies Cra-
ys, eldri bróður hinna illræmdu glæpamanna
Ronnie og Reggie Cray, sem á sínum tíma
réðu lögum og lofum í glæpaheimum London.
„Ætli þetta hafi ekki verið mikið að takast á
við en á þessum tíma leiddi ég ekki hugann að
því,“ sagði O’Sullivan árið 2016. „Maður fer
bara í þann ham að bjarga sér.“
„Snókerleikari, ekki Columbo“
O’Sullivan reyndi meira að segja að hafa uppi
á vitnum að morðinu vegna þess að hann hélt
að hann gæti hjálpað föður sínum, en allt kom
fyrir ekki.
„Þegar upp er staðið er ég snókerleikari,
ekki Columbo,“ sagði hann og vísaði í lög-
regluforingjann í
krumpaða rykfrakk-
anum, sem Peter Falk
lék á liðinni öld.
Þrátt fyrir fangels-
isdóminn hefur pabbi
O’Sullivans ávallt verið
hans lærifaðir.
„Þegar ég var ungur drengur lét pabbi mig
hafa tennisspaða, hjól og snókerkjuða og
sagði mér að athuga í hverju ég væri bestur,“
sagði O’Sullivan í viðtali við AFP árið 2018.
Dómurinn yfir föður sínum hefði meira að
segja knúið sig til dáða þegar hann mundaði
kjuðann við snókerborðið.
„Pabbi var vanur að segja að það væri eins
og að fá heimsókn frá mér þegar hann sá mig
í sjónvarpinu,“ sagði hann einhverju sinni í
viðtali við blaðið The Sun.
Þótt O’Sullivan hafi sagt að hann vilji spila
til fimmtugs hefur hann nokkrum sinnum hót-
að að hætta í snóker.
Vann kauplaust á svínabúi
Árið 2013 gekk hann meira að segja svo langt
að hætta og fór að venju óhefðbundnar leiðir.
Í nokkrar vikur vann hann á svínabúi þrjá
daga í viku og kauplaust að auki.
„Þetta var orðið svo leiðinlegt að ég varð að
gera eitthvað og mig vantaði takmark til að
komast fram úr rúminu á morgnana,“ sagði
hann.
O’Sullivan er stórstjarna í snóker. Um leið
er hann umdeildur og þekktur fyrir að segja
hug sinn. Hann hefur ítrekað verið áminntur
fyrir hegðun sína og ummæli. Á Shanghai
Masters-mótinu fyrir fjórum árum sýndi hann
þó á sér mýkri hliðina þegar hann gaf ungri
stúlku í röðum áhorfenda sigurverðlaunin.
„Ég á fullt af verðlaunum og ég hugsaði
með mér að ég myndi bara setja þetta í ferða-
töskuna mína, fara með það heim og setja á
arinhilluna,“ sagði hann við AFP. „Svo sá ég
þessa litlu stelpu með pabba sínum og hún
var mjög spennt og kannski var þetta fyrsti
íþróttaviðburðurinn hennar.“
Þessi vinsemdarvottur var dæmigerður fyr-
ir mann, sem hefur það að leiðarljósi að „lifa
fyrir augnablikið“.
„Morgundagurinn er ekki mikilvægur,
næsti mánuður er ekki mikilvægur, það sem
gerðist í fortíðinni er ekki mikilvægt,“ sagði
hann í ævisögu sinni. „Það er mitt ferðalag.“
O’Sullivan tekur um helgina þátt í
sýningarmóti í snóker í Singapúr. Þar verður
einnig Kínverjinn Zhao Xintong, sem er 25
ára um þessar mundir og sjötti á heimslist-
anum í snóker, og Nutcharut „Mink“ Wong-
haruthai frá Taílandi, heimsmeistari kvenna í
íþróttinni. Fyrir mótið sagði O’Sullivan að fyr-
ir utan að spila væri áhugi sinn á snóker lítill.
„Ég hef gaman af að spila, en fyrir utan það
sökkvi ég mér ekki niður í snóker … Ég veit
ekki mikið um það sem er að gerast í snóker-
heiminum,“ sagði hann.
Hann neitaði líka að láta draga sig inn í
vangaveltur um hvort hann ætli brátt að setj-
ast í helgan stein. „Ég hef aldrei verið með
áætlun um það sem ég vil gera,“ sagði hann.
„Fyrst og fremst nýt ég bara lífsins.“
Sá besti allra tíma Ronnie O’Sullivan, sjöfaldur heimsmeist-
ari í snóker og efsti maður heimslistans,
sýnir listir sínar á mánudag við opnun
snókerakademíu, sem verið var að opna
í Singapúr og er kennd við hann.
AFP/Roslan Rahman
Ronnie O’Sullivan er nýbakaður heimsmeistari í snóker í sjöunda
skipti og trónir efstur á heimslista leikmanna í íþróttinni. Ferill
hans hefur verið glæstur og skrautlegur og ekki hægt annað en að
falla fyrir kraftmikilli og fumlausri spilamennsku meistarans.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
’
Morgundagurinn er ekki
mikilvægur, næsti mánuður
er ekki mikilvægur, það sem
gerðist í fortíðinni er ekki mik-
ilvægt. Það er mitt ferðalag.“
SNÓKER
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022