Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Blaðsíða 8
Ronnie O’Sullivan er maður mikilla svipbrigða og ber tilfinningarnar utan á sér þegar hann veltir fyrir sér stöðunni á heimsmeistaramótinu. Þegar titillinn var í höfn geislaði síðan af honum kankvís léttir.. AFP/Ole Scarff S nókergoðsögnin Ronnie O’Sullivan komst í fréttir í vikunni þegar hann lýsti yfir því að Kínverjar væru í kjörstöðu til að „einoka“ snókeríþróttina og nú þegar væru komnir fram þrír til fjórir spilarar, sem hefðu allt til að bera til að verða heimsmeistarar. O’Sullivan ætti að vita það. Hann hefur orð- ið heimsmeistari sjö sinnum, nú síðast í maí. Orðin lét hann falla af því tilefni að hann var staddur í Singapúr til að opna nýja snóker- akademíu í sínu nafni. Hann sagði um leið að íþróttin ætti gróskutíma fyrir höndum í Asíu. Akademían er ætluð fyrir efnilega snóker- spilara í Asíu og telur O’Sullivan að þar séu allar forsendur til að auka vinsældir greinar- innar. Sjöundi heimsmeistaratitillinn „Í hvert skipti, sem við komum til Asíu – Kína, Taílands, Singapúr – er mikil spenna,“ sagði hann. „Ég held að eigi greinin að vaxa og ná jafnvel golfi og tennis … ég held að Asía sé kannski staðurinn þar sem það gæti gerst.“ O’Sullivan er einn besti snókerspilari sem uppi hefur verið, ef ekki sá besti. Þegar hann varð heimsmeistari í Sheffield 1. maí hampaði hann titlinum í sjöunda sinn. Hann er 46 ára og elstur til að verða heimsmeistari síðan Ray Reardon, fyrirmynd hans, vann titilinn 1982. O’Sullivan lék frábæran snóker þegar hann bar sigurorð af Judd Trump í úrslitavið- ureigninni á heimsmeistaramótinu. Að lokum sigraði hann 18-13. Fyrir einvígið sagði Trump að það hefði alltaf verið draumur sinn að leika við O’Sulliv- an í úrslitunum. „Ronnie var hetjan mín þeg- ar ég var að alast upp og hann er nú þegar besti leikmaður, sem nokkru sinni hefur lifað, en ég held að hann vilji staðfesta það með því að vinna sinn sjöunda titil,“ sagði Trump. Þótt Trump ætti sína spretti í úrslitunum tókst honum ekki að koma í veg fyrir það. O’Sulliv- an jafnaði þar met Skotans Stephens Hend- rys. O’Sullivan hefur glímt við þunglyndi á ferli sínum og leitaði ásjár í áfengi og eiturlyfjum þar til hann náði áttum og komst að þeirri niðurstöðu að neyslan væri engin hækja, sem hægt væri að styðja sig við þegar á bjátaði. Hann fór að hlaupa og þar fann hann að end- ingu sína lækningu. Um leið varð hann mjög frambærilegur hlaupari og er besti tími hans í 10 km hlaupi 34 mínútur og 54 sekúndur frá árinu 2008. Úr vímuefnum í langhlaupin „Ég var þunglyndur af því að ég hætti að drekka og neyta eiturlyfja, en ég fór að drekka og taka eiturlyf vegna þess að ég var þunglyndur,“ sagði hann í sjálfsævisögu sinni frá 2013, Á hlaupum. „Þegar upp var staðið vildi ég frekar vera laus [við vímugjafana] og þunglyndur en á eiturlyfjum og þunglyndur.“ Sterkur persónuleiki hans endurspeglaðist í meistaralegri spilamennsku á meðan faðir hans afplánaði 18 ára fangelsisdóm, sem hann fékk árið 1992 fyrir morð. Fjórum árum síðar var móðir hans einnig dæmd í fangelsi. Fjöl- skyldan hafði haft lifibrauð sitt af rekstri klámbúða í Soho í London. Hún þurfti að sitja inni í eitt ár fyrir skattsvik og O’Sullivan og systir hans Danielle, sem þá var átta ára, þurftu að bjarga sér sjálf. Danielle fór til vina fjölskyldunnar, en O’Sullivan einbeitti sér að snókernum. Foreldrarnir í fangelsi Sama ár og faðir hans var dæmdur í fangelsi gerðist hann atvinnumaður í snóker, þá 16 ára gamall. Árið eftir vann hann breska meistara- mótið, 17 ára og 69 daga gamall. Hann var þá yngsti maður til að sigra á stigamóti í snóker frá upphafi og stendur það met enn. Hann er þekktur fyrir að spila hratt og sækja stíft og hefur fyrir vikið fengið viður- nefnið rakettan. Hann hefur sagt að hann hafi óbeit á því þegar viðureignir dragast á lang- inn út af varnarsinnuðum leik og telur að slík- ar leikaðferðir skaði íþróttina. Hann er rétthentur, en getur beitt vinstri hendinni hnökralaust og á það til að skipta þegar hentar til að þurfa ekki að nota fram- lengingu eða maskínu. Þegar hann sýndi fyrst hvers hann var megnugur með vinstri á heimsmeistaramótinu 1996 taldi andstæð- ingur hans að hann væri að sýna sér óvirðingu og neitaði að taka í höndina á honum. O’Sullivan var tíu ára þegar hann náði fyrst 100 stigum með því að raða niður kúl- um án þess að hleypa andstæðingnum að í atvinnukeppni. Hann er eini leikmaðurinn til að ná 100 stiga stuði 1.000 sinnum og hefur reyndar gert það 1.100 sinnum alls. Enginn hefur heldur náð að hreinsa borðið jafnt oft með fullt hús stiga í einu stuði, það er að setja niður allar kúlurnar og ná alltaf sjöunni án þess að hleypa andstæðingnum að. Hann hef- ur nú gert það 15 sinnum. Hann er einnig í heimsmetabók Guinness fyrir að gera það á mettíma. Því náði hann á heimsmeistara- mótinu árið 1997 þegar hann hreinsaði borðið á fimm mínútum og átta sekúndum. Mynd- skeið af hreinsuninni er að finna á Youtube og er ótrúlegt að fylgjast með nákvæmni og fum- leysi O’Sullivans þegar hann sallar niður hverja kúluna á eftir annarri. Faðir hans, sem losnaði úr fangelsi 2009, var dæmdur árið 1992 fyrir morðið á Bruce Bryan, sem hafði verið bílstjóri Charlies Cra- ys, eldri bróður hinna illræmdu glæpamanna Ronnie og Reggie Cray, sem á sínum tíma réðu lögum og lofum í glæpaheimum London. „Ætli þetta hafi ekki verið mikið að takast á við en á þessum tíma leiddi ég ekki hugann að því,“ sagði O’Sullivan árið 2016. „Maður fer bara í þann ham að bjarga sér.“ „Snókerleikari, ekki Columbo“ O’Sullivan reyndi meira að segja að hafa uppi á vitnum að morðinu vegna þess að hann hélt að hann gæti hjálpað föður sínum, en allt kom fyrir ekki. „Þegar upp er staðið er ég snókerleikari, ekki Columbo,“ sagði hann og vísaði í lög- regluforingjann í krumpaða rykfrakk- anum, sem Peter Falk lék á liðinni öld. Þrátt fyrir fangels- isdóminn hefur pabbi O’Sullivans ávallt verið hans lærifaðir. „Þegar ég var ungur drengur lét pabbi mig hafa tennisspaða, hjól og snókerkjuða og sagði mér að athuga í hverju ég væri bestur,“ sagði O’Sullivan í viðtali við AFP árið 2018. Dómurinn yfir föður sínum hefði meira að segja knúið sig til dáða þegar hann mundaði kjuðann við snókerborðið. „Pabbi var vanur að segja að það væri eins og að fá heimsókn frá mér þegar hann sá mig í sjónvarpinu,“ sagði hann einhverju sinni í viðtali við blaðið The Sun. Þótt O’Sullivan hafi sagt að hann vilji spila til fimmtugs hefur hann nokkrum sinnum hót- að að hætta í snóker. Vann kauplaust á svínabúi Árið 2013 gekk hann meira að segja svo langt að hætta og fór að venju óhefðbundnar leiðir. Í nokkrar vikur vann hann á svínabúi þrjá daga í viku og kauplaust að auki. „Þetta var orðið svo leiðinlegt að ég varð að gera eitthvað og mig vantaði takmark til að komast fram úr rúminu á morgnana,“ sagði hann. O’Sullivan er stórstjarna í snóker. Um leið er hann umdeildur og þekktur fyrir að segja hug sinn. Hann hefur ítrekað verið áminntur fyrir hegðun sína og ummæli. Á Shanghai Masters-mótinu fyrir fjórum árum sýndi hann þó á sér mýkri hliðina þegar hann gaf ungri stúlku í röðum áhorfenda sigurverðlaunin. „Ég á fullt af verðlaunum og ég hugsaði með mér að ég myndi bara setja þetta í ferða- töskuna mína, fara með það heim og setja á arinhilluna,“ sagði hann við AFP. „Svo sá ég þessa litlu stelpu með pabba sínum og hún var mjög spennt og kannski var þetta fyrsti íþróttaviðburðurinn hennar.“ Þessi vinsemdarvottur var dæmigerður fyr- ir mann, sem hefur það að leiðarljósi að „lifa fyrir augnablikið“. „Morgundagurinn er ekki mikilvægur, næsti mánuður er ekki mikilvægur, það sem gerðist í fortíðinni er ekki mikilvægt,“ sagði hann í ævisögu sinni. „Það er mitt ferðalag.“ O’Sullivan tekur um helgina þátt í sýningarmóti í snóker í Singapúr. Þar verður einnig Kínverjinn Zhao Xintong, sem er 25 ára um þessar mundir og sjötti á heimslist- anum í snóker, og Nutcharut „Mink“ Wong- haruthai frá Taílandi, heimsmeistari kvenna í íþróttinni. Fyrir mótið sagði O’Sullivan að fyr- ir utan að spila væri áhugi sinn á snóker lítill. „Ég hef gaman af að spila, en fyrir utan það sökkvi ég mér ekki niður í snóker … Ég veit ekki mikið um það sem er að gerast í snóker- heiminum,“ sagði hann. Hann neitaði líka að láta draga sig inn í vangaveltur um hvort hann ætli brátt að setj- ast í helgan stein. „Ég hef aldrei verið með áætlun um það sem ég vil gera,“ sagði hann. „Fyrst og fremst nýt ég bara lífsins.“ Sá besti allra tíma Ronnie O’Sullivan, sjöfaldur heimsmeist- ari í snóker og efsti maður heimslistans, sýnir listir sínar á mánudag við opnun snókerakademíu, sem verið var að opna í Singapúr og er kennd við hann. AFP/Roslan Rahman Ronnie O’Sullivan er nýbakaður heimsmeistari í snóker í sjöunda skipti og trónir efstur á heimslista leikmanna í íþróttinni. Ferill hans hefur verið glæstur og skrautlegur og ekki hægt annað en að falla fyrir kraftmikilli og fumlausri spilamennsku meistarans. Karl Blöndal kbl@mbl.is ’ Morgundagurinn er ekki mikilvægur, næsti mánuður er ekki mikilvægur, það sem gerðist í fortíðinni er ekki mik- ilvægt. Það er mitt ferðalag.“ SNÓKER 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.