Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Qupperneq 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Qupperneq 14
S tóra fíkniefnamálið sem lögregla upplýsti og greindi frá á dögunum vakti að vonum mikla athygli í þjóðfélaginu enda um óvenjumikið magn fíkniefna og margar hand- tökur að ræða. En segir þetta stóra mál okkur eitthvað um íslenska fíkniefnaheiminn sem við vissum ekki fyrir? „Það fer auðvitað eftir því hvað við vissum fyrir,“ segir Margrét Valdimarsdóttir, doktor í afbrotafræði og dósent í lögreglufræði við Há- skólann á Akureyri. „Það er nokkuð skýrt að lögreglan hefur á undanförnum árum lagt meiri áherslu á skipulagða glæpastarfsemi og meðal annars unnið með Europol að rann- sóknum mála. Þessar handtökur eru afrakstur af þeirri vinnu. Hvort það segir okkur eitthvað um fíkniefnaheiminn almennt held ég hins vegar ekki.“ Hitt liggur þó fyrir, að dómi Margrétar, að haldlagningin nú muni hafa áhrif á markaðinn til skemmri tíma. Magnið sé svo svakalegt að óhjákvæmilega hljóti að draga tímabundið úr framboði með tilheyrandi verðhækkunum. Það muni þó fyrst og fremst hafa áhrif á þá sem neyta fíkniefna af og til sér til skemmtunar. Þeir komi án efa til með að draga úr sinni neyslu, alltént um stund. Bara meiri eymd „Það er vel að merkja mun stærri hópur en langt leiddir fíklar sem munu auðvitað halda uppteknum hætti enda háðir efnunum andlega og líkamlega. Fyrir þann hóp hefur þetta skerta framboð bara meiri eymd í för með sér. Því miður. En eins og við þekkjum beitir þessi hópur öllum tiltækum ráðum til að komast yfir næsta skammt. Ég ítreka að þetta er ekki stór hópur en hann er eðli málsins samkvæmt við- kvæmastur.“ Margrét segir fíkniefnaheiminn hér á landi hafa þróast með svipuðum hætti og í löndunum í kringum okkur og sé að verða alþjóðlegri en áður þekktist. Þá sé auðveldara að nálgast fíkniefni en áður, ekki síst gegnum netið. „Það breytir þó ekki því að fólk þarf samt áfram lág- marksupplýsingar áður en það kaupir fíkni- efni, eins og það þurfti áður en netið kom til sögunnar. Hér áður var hægt að nálgast þessi efni á nánast hvaða skemmtistað sem var, væri ásetningurinn fyrir hendi.“ Að sögn Margrétar bendir ekkert til þess að fíkniefnaneysla hafi aukist á Íslandi, þrátt fyrir aukin samskipti við útlönd. Fólk muni halda áfram að neyta fíkniefna hér á landi, markmiðið hljóti að vera að lágmarka skað- ann. Margrét er ekki í vafa um að einhverjir af þeim mönnum sem handteknir voru nú muni hljóta fangelsisdóma og það hafi fælingarmátt í för með sér hjá einhverjum hópi sem er að selja efnin. Öðrum komi á hinn bóginn til með að standa á sama. „Menn selja fíkniefni í von um gróða og þurfa að vega kostnað á móti ávinningi og kostnaðurinn getur hæglega verið dómur og jafnvel fangavist. Einhverjir munu ekki vilja taka þá áhættu en öðrum er alveg sama.“ Endast alla jafna ekki lengi Hún segir sama máli gegna um fangavistina sjálfa. Einhverjir muni láta sér segjast en aðrir haldi ótrauðir áfram eftir að afplánun lýkur. „Það hjálpar hins vegar til að menn eldast í fangelsi og dæmin sýna að flestir hætta fíkniefnasölu eftir ákveðinn aldur. Menn endast alla jafna ekki mjög lengi í þessum bransa.“ Að áliti Margrétar mætti umræðan um fíkniefni vera þroskaðri hér á landi. Mikilvægt sé til dæmis að hætta að tala um stríð gegn fíkniefnum. Slík geri ekkert gagn. Hún segir umræðuna um afglæpavæðingu neyslu- skammta gagnlega enda sé þar verið að koma til móts við verst stadda hópinn sem lifi og hrærist í heimi sem umfram annað einkennist af ofbeldi og eymd. „Í þeim heimi er mikið um afbrot af öðru tagi og úr því viljum við draga. Við megum samt ekki láta eins og eina lausnin sé að lög- leiða fíkniefni. Fíkniefni eru auðvitað ekki hættulaus, þau geta verið mjög skaðleg. Það á ekki síst við um andlega heilsu en fólk sem er veikt fyrir leitar gjarnan í neyslu.“ Hún segir þessa umræðu þrátt fyrir allt hafa breyst mikið hér á landi á undanförnum áratug eða svo. Flestir séu hættir að líta á það sem alvarlegan glæp að nota fíkniefni. Það sé jákvætt enda snúist baráttan um að hafa hendur í hári sölumannanna en ekki neyt- endanna. Þeir séu skaðvaldurinn. „Í mínum huga ætti að vera forgangsatriði að draga úr eymdinni sem fylgir mikilli neyslu, þar með talið að draga úr fordómum gegn fólki sem notar fíkniefni.“ Að sögn Margrétar er ósennilegt að af- glæpavæðingin, ein og sér, auki fíkniefna- neyslu ungs fólks. Það sé til dæmis magnað hversu mikið hafi dregið úr áfengisneyslu ung- menna á Íslandi á umliðnum 20 til 30 árum og áfengi er vitaskuld löglegt. Þökk sé for- vörnum. „Sá árangur er engin tilviljun; það hefur verið mikið átak í gangi, til dæmis með greiðari aðgangi að tómstundum, íþróttum og öðru slíku.“ Erum fjölbreyttara samfélag Spurð hvort við þurfum að hafa auknar áhyggjur af skipulagðri glæpastarfsemi á Ís- landi svarar Margrét: „Ég hreinlega veit það ekki. Skipulög glæpastarfsemi hefur lengi verið notuð sem Grýla í þessu sambandi og í einhverjum tilfellum til að ala á ótta hjá fólki. Ísland er allt annað samfélag en það var og það væri stórkostlega undarlegt ef ekki væru fleiri erlendir brotamenn hér á landi í dag en fyrir 30 árum. Við erum fjölbreyttara sam- félag í dag en það þýðir ekki að við höfum eitt- hvað að óttast. Eins og þetta stóra mál um daginn sannar þá er lögregla að taka mið af þessari þróun og þetta er árangurinn. Það er auðvitað áskorun að vinna í fjölbreyttara samfélagi og ekki verður annað séð en að lög- regla sé að vinna sína vinnu ágætlega. Þá virðist alþjóðasamstarf vera að skila góðum árangri.“ Margrét telur ekki að hinn almenni borgari þurfi að hafa miklar áhyggjur af auknum um- svifum erlendra glæpagengja hér á landi. „All- ar svona samfélagsbreytingar hafa áhrif á af- brot eins og annað. Ísland er breytt samfélag með sínum kostum og göllum.“ Stór og aðgengilegur markaður Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands og doktor í félags- og af- brotafræði, segir engan vafa leika á því að fíkniefni séu útbreidd hér á landi. Þetta sé stór og aðgengilegur markaður, hafi menn á annað borð áhuga. Það hafi nýleg MA- og BA-verkefni tveggja nemenda hans leitt í ljós, þar sem söluhliðin var skoðuð sér- staklega. „Snúið var að fá viðtöl við bæði þá sem kaupa og selja en það tókst í báðum þessum tilvikum og greinilegt að auðvelt er að komast í samband við þá sem selja fíkni- efni hér á landi, mest í gegnum netið. Margir vita að þetta er aðgengilegt í nærumhverfinu, hvort sem þeir svo nota efnin sjálfir eða ekki,“ segir Helgi. Kaupendur eru aðallega venjulegir borg- arar í yngri kantinum, að sögn fíkniefnasal- anna sjálfra. „Mest fólk yngra en 30 ára neytir fíkniefna og meira karlar en konur, og neyslan er hverfandi hjá fólki yfir fimmtugu. Seljendur eru oft venjulegir borgarar líka í yngri kant- inum, þótt sumir hafi bakgrunn í fíknivanda og afbrotum,“ segir Helgi og bætir við að menn- irnir sem handteknir voru um daginn séu ofar í stiganum. „Sú starfsemi hafði greinilega verið í gangi um tíma og talsverðir peningar og eignir í spilinu. Þetta er vitaskuld svart hagkerfi með svörtu reiðufé sem síðan skilar sér í mörgum tilfellum inn í lögmæta hagkerfið. Því fylgir gjarna spilling, mútur og auðvitað skattaund- anskot. Hversu mikið hér á landi treysti ég mér ekki til að segja til um.“ Helgi bendir á að neysla fíkniefna hafi meira verið rannsökuð hér á landi en sjálfur mark- aðurinn, aðallega neysla ungmenna. Minna sé vitað um neyslumynstrið hjá fullorðnum og lít- ið hvernig salan fer fram. Sjálfur hefur Helgi mælt neyslu fullorðinna með kollegum sínum, mest kannabis sem er langalgengasta efnið hér á landi, og á árunum 2013-17 voru vísbend- ingar um að neyslan væri að aukast. Síðan virðist hún á hinn bóginn hafa verið nokkuð stöðug. Rannsóknir benda til þess að um þriðjungur fullorðinna Íslendinga hafi prófað fíkniefni en aðeins um 5% á síðustu sex mánuðum. Þá hafi um 10% notað fíkniefni oftar en tíu sinnum. Áætla má að um 5% fullorðinna séu reglulegir neytendur. Ákveðnar veðrabreytingar Á síðasta ári kvaðst meirihluti aðspurðra í könnun í fyrsta skipti vera hlynntur afnámi refsinga fyrir neysluskammta. Andstaðan hafði um nokkurt skeið verið yfir 60%, að sögn Helga. „Þetta eru ákveðnar veðrabreyt- ingar sem benda til þess að stuðningur við refsimódelið gegn vörslu fíkniefna til eigin neyslu sé á undanhaldi. Við sjáum líka í könn- unum að fleiri en áður vilja leyfa kannabis- efni.“ Undir lok síðasta árs kom út hjá Stockholm University Press bókin Retreat or Entrench- ment, þar sem fræðimenn frá öllum Norður- löndunum lögðu mat á stöðu mála og veltu sér- staklega fyrir sér hvort refsilíkanið væri enn óheft við lýði eða hvort eitthvert undanhald væri í kortunum. „Niðurstaðan var sú,“ segir Helgi sem skrifaði íslenska kaflann í bókinni, „að litlar breytingar hefðu átt sér stað í Sví- þjóð og lítil endurskoðun yfir höfuð. En í öllum hinum ríkjunum er umræða í gangi, ekki síst í grasrótinni sem snýst um það hvort ekki þurfi að tækla þennan vanda með öðrum hætti. Skaðaminnkunarúrræði njóta til dæmis vax- andi hylli.“ Helgi segir ýmis merki um að ákveðin frumskógarlögmál séu í gildi í fíkniefnaheim- inum. Það eigi við á Íslandi eins og annars staðar á Norðurlöndunum. „Vafalaust teng- ist það skipulagðri glæpastarfsemi, og sú staðreynd að lögregla er að leggja hald á fíkniefni í stórum stíl og ýmis vopn bendir til að þessi starfsemi sé klárlega til staðar. Of- beldið er alls staðar fylgifiskur ólöglega markaðarins eins og við þekkjum hér á landi.“ Viðmælendur nemendanna, sem getið var um hér að framan, gerðu margir hverjir lítið úr hættunni á ofbeldi í fíkniefnaheiminum hér á landi, að sögn Helga. „Það vakti athygli mína og mögulega má túlka það sem ákveðið kæru- leysi. Salarnir virðast ekki líta svo á að venju- Fíkniefnasalar haga sér eins og amöbur Íslenski fíkniefnamarkaðurinn er stór og aðgengilegur. Haldlagningin á miklu magni af efni og handtökurnar nú munu laska hann tímabundið en koma verst niður á þeim neyt- endum sem eru í mestri neyð. Þetta er álit sérfræðinga sem Sunnudagsblaðið leitaði til. Markaðurinn er orðinn alþjóðlegri en áður og mikilvægt fyrir lögreglu hér að hafa samráð við kollega sína erlendis. Þannig náist bestur árangur. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Helgi Gunnlaugsson Margrét Valdimarsdóttir ’ Menn selja fíkniefni í von um gróða og þurfa að vega kostn- að á móti ávinningi og kostnaður- inn getur hæglega verið dómur og jafnvel fangavist. Einhverjir munu ekki vilja taka þá áhættu en öðrum er alveg sama. ÚTTEKT 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.