Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Side 19
19.6. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Fyrir 6
1½ stór laukur eða 3 litlir
½ tsk kummínduft
½ tsk rifið engifer
2-3 stk. grænn chilipipar, skor-
inn smátt
¾ bolli kjúklingabaunahveiti
salt
olía til steikingar
Skerið laukinn í þunna
strimla og setjið í skál. Rífið
engifer og skerið chili og
bætið út í skálina. Bætið við
kummíni og salti og blandið
vel saman. Bætið því næst
við hveitinu og blandið. Hitið
eina matskeið af olíu og bæt-
ið út í blönduna. Blandið
saman og bætið við smá
vatni ef þurfa þykir. Hitið ol-
íu á vel heitri pönnunni og
gerið prufu með því að setja
smá bita út í til að athuga
hvort olían sé nógu heit. Ef
bitinn byrjar að steikjast, bú-
ið þá til litlar „kúlur“ og setj-
ið varlega út í olíuna. Ekki
hafa áhyggjur þótt þetta líti
ekki vel út. Steikið þar til
gullinbrúnt. Takið þá úr olíu-
nni og leggið á eldhúspappír.
Berið fram með tómatsósu
eða mangó- eða mintu-
chutney.
Pakoda
Fyrir 4
¾ bolli rauðar linsubaunir
¼ tsk túrmerik
1 tsk kummínfræ
2-3 hvítlauksrif, fínt skorin
3 tsk ghee (hægt að nota smjör)
salt
Skolið linsubaunir og látið liggja í
vatni í 30-40 mínútur. Sjóðið 3-4
bolla af vatni með túrmerikduft-
inu. Þegar vatnið nær suðu, bæt-
ið þá við baununum sem þið haf-
ið sigtað frá vatninu. Sjóðið þar
til linsubaunir eru mjúkar og
maukkenndar. Merjið með
spaða.
Hitið í pönnu ghee eða smjör og
bætið við kummínfræjum og látið
steikjast. Bætið því næst við hvít-
lauk og látið hann brúnast örlítið.
Hellið þessu saman við baunirnar
og saltið. Skreytið með kórí-
anderlaufum.
Dal með rauðum linsum
klattar. Að lokum bjó Ramya til eft-
irréttagraut handa öllum. Enginn af
þessum réttum er flókinn og því til-
valið fyrir fólk að spreyta sig á þeim
heima!
Kom með opinn huga
Maturinn var svo borinn á borð og
sest að snæðingi og óhætt er að
segja að enginn hafi orðið fyrir von-
brigðum. Réttirnir pössuðu vel sam-
an og voru afar bragðgóðir, án þess
að vera of sterkir. Það var kátt á
hjalla við matarborðið og allir fóru
saddir og sælir heim.
Blaðamaður greip sendiherra-
frúna í smá spjall eftir matinn.
„Ég hef verið hér núna í tæpt ár
og það hefur verið yndislegt. Ég fer
mikið út að ganga í náttúrunni og á
hér lítinn vinahóp sem fer oft með
mér. Við ætlum að skoða meira af
landinu í sumar,“ segir Ramya, sem
segist eiga eftir að ferðast víðar um
landið.
„Þetta er sjötti viðkomustaður
okkar hjóna og allir staðir hafa sín-
ar áskoranir og sínar jákvæðu hlið-
ar. Ég reyni að líta frekar á hið já-
kvæða og kom hingað með opnum
huga,“ segir hún og segir veðrið hér
á landi alls ekki trufla sig.
„Við höfum áður verið í Japan,
Egyptalandi, Mjanmar, Bangladess
og Srí Lanka og hver skipun er þrjú
ár,“ segir hún og segist ekki geta
smakkað mikið af hefðbundnum ís-
lenskum mat þar sem slíkir réttir
innihalda flestir kjöt og fisk.
Elda af ástríðu
Ramya hefur mikinn áhuga á mat-
argerð og segist hafa haldið nám-
skeið í Japan, þar sem hún lærði
sjálf einnig ýmislegt í matargerð.
„Ég hef sjálf bæði sótt námskeið
og kennt þannig að mér fannst
gaman að koma og kenna hér. Mig
hefur lengi langað að halda hér eitt
námskeið. Ég elska að elda og geri
það af ástríðu. Svo finnst mér gam-
an að kenna öðrum. Mér finnst bæði
gaman að elda og borða,“ segir hún
og brosir.
„Mamma kenndi mér að elda en
það má segja að ég hafi aldrei eldað
með henni heldur fylgdist ég vel
með öllu sem hún gerði í eldhúsinu.
Ég gifti mig 23 ára og maðurinn
minn bjóst við að ég eldaði mat eins
og mamma hans hafði gert. Ég fór
að prófa mig áfram og hef líka lært
mikið af tengdamömmu, sem býr
hjá okkur,“ segir hún og segist geta
leitað til tengdamóður sinnar eftir
góðum ráðum.
„Maturinn sem ég er með hér er
einfaldur heimilismatur, hollur og
góður. Ég er grænmetisæta frá
fæðingu; öll fjölskyldan borðar bara
grænmeti og hefur það verið þannig
í margar kynslóðir,“ segir hún.
„Mig langar að halda fleiri nám-
skeið, hér eða annars staðar. Mér
finnst svo gaman að elda og ég vil
deila gleðinni með fleirum.“
Fréttakonurnar Sunna og Birta voru mættar á námskeiðið og höfðu gaman af.
Þessi þrjú virtust kunna mikið fyrir sér í eldhúsinu.
Hópurinn hlustaði með athygli á
kennarann þegar hún kynnti þeim
réttina í Salt eldhúsi.
Margrét Sigfúsdóttir og Eliza Reid voru áhugasamir nemendur.
’
Ég gifti mig 23 ára og
maðurinn minn bjóst
við að ég eldaði mat eins
og mamma hans hafði
gert. Ég fór að prófa mig
áfram og hef líka lært
mikið af tengdamömmu,
sem býr hjá okkur.