Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Qupperneq 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Qupperneq 19
19.6. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Fyrir 6 1½ stór laukur eða 3 litlir ½ tsk kummínduft ½ tsk rifið engifer 2-3 stk. grænn chilipipar, skor- inn smátt ¾ bolli kjúklingabaunahveiti salt olía til steikingar Skerið laukinn í þunna strimla og setjið í skál. Rífið engifer og skerið chili og bætið út í skálina. Bætið við kummíni og salti og blandið vel saman. Bætið því næst við hveitinu og blandið. Hitið eina matskeið af olíu og bæt- ið út í blönduna. Blandið saman og bætið við smá vatni ef þurfa þykir. Hitið ol- íu á vel heitri pönnunni og gerið prufu með því að setja smá bita út í til að athuga hvort olían sé nógu heit. Ef bitinn byrjar að steikjast, bú- ið þá til litlar „kúlur“ og setj- ið varlega út í olíuna. Ekki hafa áhyggjur þótt þetta líti ekki vel út. Steikið þar til gullinbrúnt. Takið þá úr olíu- nni og leggið á eldhúspappír. Berið fram með tómatsósu eða mangó- eða mintu- chutney. Pakoda Fyrir 4 ¾ bolli rauðar linsubaunir ¼ tsk túrmerik 1 tsk kummínfræ 2-3 hvítlauksrif, fínt skorin 3 tsk ghee (hægt að nota smjör) salt Skolið linsubaunir og látið liggja í vatni í 30-40 mínútur. Sjóðið 3-4 bolla af vatni með túrmerikduft- inu. Þegar vatnið nær suðu, bæt- ið þá við baununum sem þið haf- ið sigtað frá vatninu. Sjóðið þar til linsubaunir eru mjúkar og maukkenndar. Merjið með spaða. Hitið í pönnu ghee eða smjör og bætið við kummínfræjum og látið steikjast. Bætið því næst við hvít- lauk og látið hann brúnast örlítið. Hellið þessu saman við baunirnar og saltið. Skreytið með kórí- anderlaufum. Dal með rauðum linsum klattar. Að lokum bjó Ramya til eft- irréttagraut handa öllum. Enginn af þessum réttum er flókinn og því til- valið fyrir fólk að spreyta sig á þeim heima! Kom með opinn huga Maturinn var svo borinn á borð og sest að snæðingi og óhætt er að segja að enginn hafi orðið fyrir von- brigðum. Réttirnir pössuðu vel sam- an og voru afar bragðgóðir, án þess að vera of sterkir. Það var kátt á hjalla við matarborðið og allir fóru saddir og sælir heim. Blaðamaður greip sendiherra- frúna í smá spjall eftir matinn. „Ég hef verið hér núna í tæpt ár og það hefur verið yndislegt. Ég fer mikið út að ganga í náttúrunni og á hér lítinn vinahóp sem fer oft með mér. Við ætlum að skoða meira af landinu í sumar,“ segir Ramya, sem segist eiga eftir að ferðast víðar um landið. „Þetta er sjötti viðkomustaður okkar hjóna og allir staðir hafa sín- ar áskoranir og sínar jákvæðu hlið- ar. Ég reyni að líta frekar á hið já- kvæða og kom hingað með opnum huga,“ segir hún og segir veðrið hér á landi alls ekki trufla sig. „Við höfum áður verið í Japan, Egyptalandi, Mjanmar, Bangladess og Srí Lanka og hver skipun er þrjú ár,“ segir hún og segist ekki geta smakkað mikið af hefðbundnum ís- lenskum mat þar sem slíkir réttir innihalda flestir kjöt og fisk. Elda af ástríðu Ramya hefur mikinn áhuga á mat- argerð og segist hafa haldið nám- skeið í Japan, þar sem hún lærði sjálf einnig ýmislegt í matargerð. „Ég hef sjálf bæði sótt námskeið og kennt þannig að mér fannst gaman að koma og kenna hér. Mig hefur lengi langað að halda hér eitt námskeið. Ég elska að elda og geri það af ástríðu. Svo finnst mér gam- an að kenna öðrum. Mér finnst bæði gaman að elda og borða,“ segir hún og brosir. „Mamma kenndi mér að elda en það má segja að ég hafi aldrei eldað með henni heldur fylgdist ég vel með öllu sem hún gerði í eldhúsinu. Ég gifti mig 23 ára og maðurinn minn bjóst við að ég eldaði mat eins og mamma hans hafði gert. Ég fór að prófa mig áfram og hef líka lært mikið af tengdamömmu, sem býr hjá okkur,“ segir hún og segist geta leitað til tengdamóður sinnar eftir góðum ráðum. „Maturinn sem ég er með hér er einfaldur heimilismatur, hollur og góður. Ég er grænmetisæta frá fæðingu; öll fjölskyldan borðar bara grænmeti og hefur það verið þannig í margar kynslóðir,“ segir hún. „Mig langar að halda fleiri nám- skeið, hér eða annars staðar. Mér finnst svo gaman að elda og ég vil deila gleðinni með fleirum.“ Fréttakonurnar Sunna og Birta voru mættar á námskeiðið og höfðu gaman af. Þessi þrjú virtust kunna mikið fyrir sér í eldhúsinu. Hópurinn hlustaði með athygli á kennarann þegar hún kynnti þeim réttina í Salt eldhúsi. Margrét Sigfúsdóttir og Eliza Reid voru áhugasamir nemendur. ’ Ég gifti mig 23 ára og maðurinn minn bjóst við að ég eldaði mat eins og mamma hans hafði gert. Ég fór að prófa mig áfram og hef líka lært mikið af tengdamömmu, sem býr hjá okkur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.