Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Qupperneq 22
segir Heiða og nefnir að leikar eigi
til að æsast í kosningum.
„Ef við drögum upp einfalda
mynd af Nígeríu þá samanstendur
landið af þremur stórum ættbálkum;
Yoruba, Hausa og Igbo. Sá síðast-
nefndi byggði áður lýðveldið Bíafra.
Igbo-ættbálkinn og hina tvo greinir
á í mörgum grundvallaratriðum
varðandi trú og menningu. Fátt
bendir til að sættir náist í þeirri
deilu, sem staðið hefur í tæp sextíu
ár. Í dag lætur Igbo-fólkið skoðanir
sínar í ljós á mun friðsamlegri hátt
með setuverkföllum alla mánudaga.
Þá halda allir sig heima og engin við-
skipti stunduð. Til að mynda eru
engir markaðir opnir á mánudögum.
Mér var fljótt gert ljóst að ekki væri
óhætt að vera í þessum hluta lands-
ins í kringum kosningar en næstu
kosningar verða í febrúar á næsta
ári.“
Ekkert mátti henda gestinn
Heiða Björg kynntist vel hversdags-
legu lífi í Asaba en borgin er á vest-
urbakka Níger-árinnar. Hún var
ekki á ferðamannaslóðum sem finna
má annars staðar í þessu fjölmenn-
asta ríki Afríku. Heimamenn verða
svo gott sem aldrei varir við hvítt
fólk og Heiða segist ávallt hafa verið
sú eina sem var hvít á hörund þegar
hún fór um borgina.
„Við Ben ræddum mjög mikið um
hvernig öryggi mitt yrði tryggt ef ég
kæmi til Nígeríu og við gerðum allar
mögulegar ráðstafanir. Hann vissi
að ég yrði eina hvíta manneskjan á
svæðinu og það myndi vekja mikla
athygli. Sem reyndist rétt því ég sá
enga hvíta manneskju alla þessa
þrjá mánuði sem ég dvaldi í Nígeríu.
Ben var gert ljóst af heimamönnum
að hann skyldi sjá til þess að hvíta
konan skilaði sér heil heim.
„Ég fékk þó nokkra athygli því
allir vildu heilsa upp á hvítu konuna,
gera vel við gestinn og aðstoða á all-
an hátt. Hvít forréttindi hafði ég
aldrei fundið jafn mikið á eigin
skinni fyrr en sem dæmi fékk ég
óumbeðið fylgd starfsmanns í gegn-
um innanlandsflugvöllinn við kom-
una til landsins. Þá var ég tekin fram
fyrir í röðinni en á flugvellinum ríkti
mikil ringulreið enda bara eitt flug-
hlið en mörg flug og allir að reyna að
komast heim rétt fyrir jól. Eins má
nefna að fyrir Ben var öruggara að
hafa mig með sér í bílnum. Þá var
ólíklegra að lögreglan myndi stöðva
hann,“ segir Heiða en bætir við að
einnig hafi fylgt þessu öllu leið-
inlegra áreiti.
„Að vera hvít á þessu svæði hafði
líka sína galla og helst vegna þess að
einhverjir fengu peningaglampa í
augun og gáfu sér að ég hlyti að eiga
nóg af peningum til að gefa í hitt og
þetta. Sannleikurinn var hins vegar
sá að mikið af mínu sparifé hafði ég
lagt í þetta ferðaár mitt. Meira að
segja fór fólk að hafa samband við
Ben upp úr þurru og virtist líta hann
öðrum augum en áður.“
Spilltir öryggisverðir
Heiða hafði leyfi til að dveljast að
hámarki níutíu daga í landinu. Í ljósi
þess hversu kostnaðarsamt er að
fara til Nígeríu hafi hún gert sér
ljóst að hún myndi ekki skella sér
þangað nema til að dvelja í tvo mán-
uði að minnsta kosti. Hún ætlaði að
fara til baka eftir áttatíu og átta
daga en fluginu var aflýst.
„Fluginu var aflýst og ég þurfti að
kaupa flugmiða hjá öðru flugfélagi
til að fara áður en níutíu dagar voru
liðnir. Það hafðist en þegar ég fór á
flugvöllinn eftir áttatíu og níu daga
dvöl var samt reynt að stoppa mig.
Ég mætti einum öryggisverðinum
sem reyndi að ljúga því að mér að ég
hefði bara mátt dvelja í einn mánuð.
Ben hafði varað mig við þessu og ég
stóð því fast á mínu, sem þó er svolít-
ið erfitt þegar maður stendur fyrir
framan vopnaðan starfsmann. Ég
var viðbúin og þeir hleyptu mér
fljótt í gegn þegar þeir fundu að ég
var með hlutina á hreinu. Dæmi eru
um að þeir hafi tekið fólk til hliðar á
flugvellinum og farþegar misst af
flugi út af framkomu sem þessari.“
Komin til alvöru Afríku
Heiða hefur heimsótt Suður-Afríku
en hún dvaldi þar eitt sumar með
vinkonu sinni fyrir nokkrum árum.
Hvernig er lífið í Nígeríu í saman-
burði við S-Afríku?
„Þegar ég minntist á Suður-
Afríku við Ben þá sagði hann: Nú
ertu komin til alvöru Afríku,“ segir
Heiða og hlær.
„Þar sem ég hafði áður ferðast til
Suður-Afríku vissi ég að þar er þó
nokkuð af hvítu fólki vegna bresks
landnáms á sínum tíma. Ég hafði
lesið mér til um að á einhverjum
tímapunkti hefðu Bretarnir einnig
komið til Nígeríu, enda eru þar mikl-
ar auðlindir. Þess vegna datt mér í
hug að spyrja fólk í Nígeríu út í það.
Ekki stóð á svarinu: Jú, hvíti mað-
urinn kom en fór fljótt aftur því
hann þoldi ekki hitann.“
Heiða lýsir Nígeríumönnum sem
vinnusömum og vingjarnlegum. Hún
bendir á að ýmis handtök þurfi til að
vinna verk sem vélar vinna fyrir
okkur á Vesturlöndum. Fötin eru til
dæmis þvegin í handþvotti og fleira í
þeim dúr. Gestgjafinn Ben útvegaði
sér ísskáp þegar gesturinn gerði
honum ljóst að hún þyrfti nauðsyn-
lega á köldum drykkjum að halda í
hitanum sem gat farið upp í tæplega
fjörutíu gráður. Erfitt er að treysta
á að rafmagn haldist og heimilistæki
eins og ísskápur endast illa í stopulu
rafmagni. Slík fjárfesting er því ekki
sérlega skynsamleg í Asaba.
„Rafmagnið helst í nokkra
klukkutíma á dag í besta falli. Raf-
magnsleysið hefur einnig þá þýðingu
að loftkælingin er ekki virk. Í tæp-
um fjörutíu gráðum gerir maður lítið
annað en að svitna ef engin er loft-
kælingin. En viftu gátum við notað
þegar við vildum því hana var hægt
að knýja með litla bensínknúna raf-
geyminum við húsið.“
Dýr matvara í verslunum
Matvælaverðið í Asaba kom Heiðu
einna helst á óvart. „Sérstaklega ef
maður ætlar í matvöruverslun og
borðar ekki eingöngu það sem er
selt á mörkuðum. Þá kostar það
álíka mikið og í Evrópu. Maður gef-
ur sér að ódýrt sé að lifa á þessum
slóðum en segja má að aðeins hinir
efnuðu hafi efni á að versla í mat-
vörubúðum í Asaba.
Á þessu svæði í Nígeríu minnir
maturinn að vissu leyti mikið á mat
hér á Íslandi fyrr á öldum. Mikið um
innmat, þurrkað kjöt og skreið nema
þarna er notað chili og því var mat-
urinn yfirleitt of sterkur fyrir mig.
En ég hafði mjög gaman af því að
smakka alls konar framandi ávexti.“
Heimsótti níu lönd
Á heildina litið kom Heiða við í níu
löndum en hún segir að Asafa sé
áhugaverðasti staðurinn í ljósi þess
að hún er utan alfaraleiðar ferða-
manna. Hún heimsótti alls níu lönd
en utan Evrópu fór hún einnig til
Marokkó. Heiða tók með sér bifreið
og keyrði um í Evrópu enda gerðu
áætlanir hennar upphaflega ekki ráð
fyrir því að fara til Afríku. Hún
keyrði til dæmis eftir allri Ítalíu. Bif-
reiðin fékk hvíld í München á meðan
Heiða fór til Nígeríu.
Spurð hvort hún hafi fengið þá
upplifun út úr ferðalaginu sem hún
vonaðist eftir segir hún svo vera.
„Þetta var auðvitað heilmikið ævin-
týri og á heildina litið var ferðalagið
allt öðruvísi en lagt var upp með.
Maður lendir í ýmsu en maður hefði
ekki sögu að segja ef allt myndi
ganga smurt fyrir sig. Þetta var
mikil lífsreynsla og ég sé ekki eftir
því að hafa látið verða af þessu. Ég
hafði ætlað mér að vera einnig í fríi
og slökun þetta ár en það fór ekki al-
veg þannig enda var margt mjög
stressandi í þessu ferli. Ég kom því
ekki heim úthvíld en með vitneskju
og lærdóm í farteskinu.“
Hitti brasilíska Heiðu
Lumar hún á ráðleggingum fyrir
fólk sem gælir við þá hugmynd að
leggjast í löng ferðalög?
„Ef þú ert með einhverja ákveðna
upphæð í huga til að eyða í svona
ferð þá geturðu líklega tvöfaldað
hana. Ekki ósvipað því þegar fólk
byggir hús. Við getum byrjað þar.
Sem dæmi þá keypti ég tvívegis far
frá Nígeríu eins og ég nefndi auk
þess sem bíllinn fór þrívegis á verk-
stæði í ferðinni. Það fer svolítið eftir
löndum hvort það borgar sig að vera
með bíl því vegatollarnir safnast upp
eins og á Ítalíu.
Ef ég hef lært eitthvað á ferðalög-
um mínum þá er það að heimurinn
er minni en maður heldur. Í Barse-
lóna hitti ég til dæmis ungan strák
frá Brasilíu sem heitir Heiða. Fyrir
þá sem hræðast að ferðast, og þá
sérstaklega einir, er gott að muna að
allar manneskjur eru í grunninn
eins. Vilja bara vera hamingju-
samar,“ segir Heiða Björg Ingólfs-
dóttir enn fremur.
Heiða á leið til
guðsþjónustu í
Asafa í skrúða sem
konum er gert að
klæðast í messu.
Ben fylgist með
íslenska hand-
boltalandsliðinu á
EM í Búdapest í
janúar.
Adrenlínið flæddi í
gljúfri í Marrakech.
Ljósmyndir/úr einkasafni
’
Á þessu svæði í Níg-
eríu minnir maturinn
að vissu leyti mikið á mat
hér á Íslandi fyrr á öld-
um. Mikið um innmat,
þurrkað kjöt og skreið
nema þarna er notað chili
og því var maturinn yf-
irleitt of sterkur fyrir mig.
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022
FERÐALÖG
Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is
FC 7 Premium
Þráðlaus
skúringarvél
fyrir heimili
Sumartilboð79.990 kr.