Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Síða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022 MENNTUN Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Fagnaðir Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. PINNAMATUR Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, klárt fyrir veisluborðið. V erkefnið „Kveikjum neist- ann“ snýst um að auðvelda börnum að ná tökum á lestri og byggist á því að stöðu- mat, markviss þjálfun og eftir- fylgni séu lyklar að framförum. Gagnsemi lesturs er ótvíræð í vestrænu samfélagi og því betri tökum sem barn nær á lestri, því auðveldara á það með nám, auk þess sem lestur opnar nýja heima fyrir einstaklinga. Skólakerfi, sama hvar þau eru í heiminum, leggja höfuðáherslu á að börn læri að lesa og því má segja að það að geta lesið sér til gagns sé lykill að menntun og möguleikum fyrir börn og unglinga. Því er gríðar- lega mikilvægt að vandað sé til verka þegar börnum er kennt að lesa. Það, að allir nemendur fái möguleika á að læra að lesa sér til gagns, skiptir sköpum fyrir ein- staklinga framtíðarinnar og einnig þjóðfélagið allt. Þriðjungur nær ekki grunnfærni Ef litið er á stöðu ungmenna á Ís- landi, kemur í ljós að meira en þriðjungur 15 ára nemenda nær hvorki grunnfærni í lesskilningi né stærðfræði. Þetta kemur fram í skýrslu UNICEF frá árinu 2020. Ef litið er til yngri barna, sýna töl- ur Reykjavíkurborgar frá árinu 2019 að 39% nemenda hafa ekki náð viðunandi lestrarfærni við lok 2. bekkjar. Þetta hlutfall var 33% árið 2002 og því sést að staðan fer versnandi. En við hvað ættum við að miða í þessari tölfræði? Fræðimenn hafa með rannsóknum sínum ályktað að um 2-4% barna hafi lífeðlisfræði- legar ástæður fyrir lestrarerfið- leikum og ættu því um 95% barna að geta náð tökum á lestri og lesið sér til gagns. Þetta þýðir að ríf- lega 30% ungmenna á Íslandi eru nemendur sem ekki geta lesið sér til gagns en ættu að geta það ef þau fá markvissa þjálfun og eftir- fylgni í gegnum skólagöngu sína. Þessi hópur nemenda, sem er allt of stór, þarf að fá athygli þeirra sem hafa með skólamál á Íslandi að gera. Vonandi tekst stjórnmála- mönnum, kennurum, skólastjórn- endum, foreldrum og öllum sem koma að skólagöngu barna á Ís- landi að laga þessa stöðu á næstu árum og áratugum. Viðamikið verkefni í Eyjum Í Grunnskóla Vestmannaeyja fór af stað þróunarverkefni haustið 2021 sem kallast „Kveikjum neist- ann“. Eitt af markmiðum þess er að vinna á þeirri stöðu sem áður var lýst og fá fleiri nemendur til að öðlast lestrarfærni og almenna grunnfærni í skóla. Verkefnið er viðamikið og margir koma þar að en annar undirritaðra (Hermundur Sigmundsson) leiðir verkefnið í samvinnu við skólasamfélagið í Vestmannaeyjum, Vestmanna- eyjabæ, Háskóla Íslands, mennta- og barnamálaráðuneytið, Bókasafn Vestmannaeyja og Samtök at- vinnulífsins. Upphaf samstarfs þessara aðila má rekja til ársins 2020. Þá hafði annar undirritaðra (Hermundur Sigmundsson), vegna milligöngu Tryggva Hjaltasonar formanns hugverkaráðs SI, samband við Ír- isi Róbertsdóttur, bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar, og skóla- stjórnendur við Grunnskóla Vest- mannaeyja. Eyjamönnum leist strax vel á verkefnið og boltinn fór að rúlla. Fljótlega kom Bókasafn Vestmannaeyja af krafti inn í verkefnið og nú hafa um 5000 bækur verið flokkaðar á safninu eftir erfiðleikastigi og áhugasviði, til að börn í Vestmannaeyjum hafi tækifæri til að finna bækur sem henta þeirra áhuga og færni. Reynslan eftir fyrsta veturinn Nú hefur fyrsti nemendahópur verkefnisins lokið 1. bekk en höfuðáhersla þennan veturinn var lögð á lestrarfærni nemenda. Unn- ið var markvisst með kennurum, foreldrum og skólastjórnendum í Vestmannaeyjum að því að nem- endur næðu grunnfærni í lestri eftir veturinn. Í verkefninu er stuðst við bókstaf-hljóða-lestrar- kennsluaðferðina (LESTU), frá eind til heildar, ásamt markvissri þjálfun og eftirfylgni í skólanum. Þá er skipulagi skóladags nem- enda breytt, þar sem m.a. hreyf- ing, fyrri hluta skóladagsins, er fastur liður á hverjum degi hjá nemendum (72 viðbótartímar í hreyfingu yfir allt skólaárið) og eftir hádegi fá nemendur svokall- aðan þjálfunartíma. Þar fá nem- endur áskoranir í lestri og stærð- fræði miðað við færni sína. Þannig byggir hver og einn nemandi ofan á sína stöðu á hverjum tíma. Til viðbótar, í tengslum við breytt skipulag skóladagsins, má nefna ástríðutímana sem eru eftir hádegi þrisvar sinnum í viku. Þar hafa nemendur val um að læra smíði, myndlist, textílmennt, heimilis- fræði eða tónlist. Fleiri greinar bætast við ástríðutímana á kom- andi árum og er ætlunin að nem- endur finni sína ástríðu í einhverri grein og fá þá tækifæri til að dýpka sig í henni í skólanum. Niðurstöður vetrarins, hvað lest- ur nemenda varðar, eru mjög já- kvæðar. Nemendur voru prófaðir í lestri og náðu allir nemendur við lok 1. bekkjar (alls 49 nemendur) að lesa einstök orð, sem þýðir að þeir brutu lestrarkóðann eins og við köllum það. 96% nemenda gátu lesið setningar og 88% gátu lesið samfelldan texta. Norsk saman- burðarrannsókn á 1. bekk sýndi að 73% nemenda gátu lesið einstök orð við lok 1. bekkjar. Eftir að nemendurnir í Vestmannaeyjum hafa lokið 2. bekk verða saman- burðarhópar prófaðir á Íslandi. Byggt á vísindum og kenningum Aðferðir sem notaðar eru í verk- efninu byggjast á mjög sterkum vísindum og kenningum sem hafa verið rannsakaðar í áratugi, m.a af undirrituðum (Hermundi Sig- mundssyni). Á næstunni verður þessum kenningum gerð skil í greinaskrifum, m.a. hér í Morgun- blaðinu. Eftir fyrsta vetur verkefnisins finnur skólasamfélagið í Vest- mannaeyjum fyrir því að nálgunin sem stuðst er við í „Kveikjum neistann“ hefur skapað ánægð börn, ánægða kennara, ánægða foreldra og mikil ánægja er í sam- félaginu með verkefnið. Við hlökk- um svo sannarlega til næsta vetr- ar. Þá verður nemendum og foreldrum nemenda í 2. bekk áfram fylgt eftir með nálgun „Kveikjum neistann“ verkefnisins ásamt því að nýr 1. bekkur mun nota aðferðirnar. Lestur lykill að menntun og möguleikum Vísindi og samfélag Hermundur Sigmundsson hermundur@hi.is Einar Gunnarsson Morgunblaðið/Eggert ’ Eftir fyrsta vetur verkefnisins finnur skólasamfélagið í Vest- mannaeyjum fyrir því að nálgunin sem stuðst er við í „Kveikjum neistann“ hefur skapað ánægð börn, ánægða kennara, ánægða foreldra og mikil ánægja er í samfélaginu með verkefnið. Hermundur er prófessor í lífeðlislegri sálfræði við NTNU í Þrándheimi og prófessor við Rannsóknarsetur um menntun og hugarfar, MVS, Háskóla Ís- lands. Einar er aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Vestmannaeyja.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.