Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022
MENNTUN
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.
V
erkefnið „Kveikjum neist-
ann“ snýst um að auðvelda
börnum að ná tökum á
lestri og byggist á því að stöðu-
mat, markviss þjálfun og eftir-
fylgni séu lyklar að framförum.
Gagnsemi lesturs er ótvíræð í
vestrænu samfélagi og því betri
tökum sem barn nær á lestri, því
auðveldara á það með nám, auk
þess sem lestur opnar nýja heima
fyrir einstaklinga. Skólakerfi,
sama hvar þau eru í heiminum,
leggja höfuðáherslu á að börn læri
að lesa og því má segja að það að
geta lesið sér til gagns sé lykill að
menntun og möguleikum fyrir
börn og unglinga. Því er gríðar-
lega mikilvægt að vandað sé til
verka þegar börnum er kennt að
lesa. Það, að allir nemendur fái
möguleika á að læra að lesa sér til
gagns, skiptir sköpum fyrir ein-
staklinga framtíðarinnar og einnig
þjóðfélagið allt.
Þriðjungur nær ekki
grunnfærni
Ef litið er á stöðu ungmenna á Ís-
landi, kemur í ljós að meira en
þriðjungur 15 ára nemenda nær
hvorki grunnfærni í lesskilningi né
stærðfræði. Þetta kemur fram í
skýrslu UNICEF frá árinu 2020.
Ef litið er til yngri barna, sýna töl-
ur Reykjavíkurborgar frá árinu
2019 að 39% nemenda hafa ekki
náð viðunandi lestrarfærni við lok
2. bekkjar. Þetta hlutfall var 33%
árið 2002 og því sést að staðan fer
versnandi.
En við hvað ættum við að miða í
þessari tölfræði? Fræðimenn hafa
með rannsóknum sínum ályktað að
um 2-4% barna hafi lífeðlisfræði-
legar ástæður fyrir lestrarerfið-
leikum og ættu því um 95% barna
að geta náð tökum á lestri og lesið
sér til gagns. Þetta þýðir að ríf-
lega 30% ungmenna á Íslandi eru
nemendur sem ekki geta lesið sér
til gagns en ættu að geta það ef
þau fá markvissa þjálfun og eftir-
fylgni í gegnum skólagöngu sína.
Þessi hópur nemenda, sem er allt
of stór, þarf að fá athygli þeirra
sem hafa með skólamál á Íslandi
að gera. Vonandi tekst stjórnmála-
mönnum, kennurum, skólastjórn-
endum, foreldrum og öllum sem
koma að skólagöngu barna á Ís-
landi að laga þessa stöðu á næstu
árum og áratugum.
Viðamikið verkefni í
Eyjum
Í Grunnskóla Vestmannaeyja fór
af stað þróunarverkefni haustið
2021 sem kallast „Kveikjum neist-
ann“. Eitt af markmiðum þess er
að vinna á þeirri stöðu sem áður
var lýst og fá fleiri nemendur til
að öðlast lestrarfærni og almenna
grunnfærni í skóla. Verkefnið er
viðamikið og margir koma þar að
en annar undirritaðra (Hermundur
Sigmundsson) leiðir verkefnið í
samvinnu við skólasamfélagið í
Vestmannaeyjum, Vestmanna-
eyjabæ, Háskóla Íslands, mennta-
og barnamálaráðuneytið, Bókasafn
Vestmannaeyja og Samtök at-
vinnulífsins.
Upphaf samstarfs þessara aðila
má rekja til ársins 2020. Þá hafði
annar undirritaðra (Hermundur
Sigmundsson), vegna milligöngu
Tryggva Hjaltasonar formanns
hugverkaráðs SI, samband við Ír-
isi Róbertsdóttur, bæjarstjóra
Vestmannaeyjabæjar, og skóla-
stjórnendur við Grunnskóla Vest-
mannaeyja. Eyjamönnum leist
strax vel á verkefnið og boltinn fór
að rúlla. Fljótlega kom Bókasafn
Vestmannaeyja af krafti inn í
verkefnið og nú hafa um 5000
bækur verið flokkaðar á safninu
eftir erfiðleikastigi og áhugasviði,
til að börn í Vestmannaeyjum hafi
tækifæri til að finna bækur sem
henta þeirra áhuga og færni.
Reynslan eftir fyrsta
veturinn
Nú hefur fyrsti nemendahópur
verkefnisins lokið 1. bekk en
höfuðáhersla þennan veturinn var
lögð á lestrarfærni nemenda. Unn-
ið var markvisst með kennurum,
foreldrum og skólastjórnendum í
Vestmannaeyjum að því að nem-
endur næðu grunnfærni í lestri
eftir veturinn. Í verkefninu er
stuðst við bókstaf-hljóða-lestrar-
kennsluaðferðina (LESTU), frá
eind til heildar, ásamt markvissri
þjálfun og eftirfylgni í skólanum.
Þá er skipulagi skóladags nem-
enda breytt, þar sem m.a. hreyf-
ing, fyrri hluta skóladagsins, er
fastur liður á hverjum degi hjá
nemendum (72 viðbótartímar í
hreyfingu yfir allt skólaárið) og
eftir hádegi fá nemendur svokall-
aðan þjálfunartíma. Þar fá nem-
endur áskoranir í lestri og stærð-
fræði miðað við færni sína. Þannig
byggir hver og einn nemandi ofan
á sína stöðu á hverjum tíma. Til
viðbótar, í tengslum við breytt
skipulag skóladagsins, má nefna
ástríðutímana sem eru eftir hádegi
þrisvar sinnum í viku. Þar hafa
nemendur val um að læra smíði,
myndlist, textílmennt, heimilis-
fræði eða tónlist. Fleiri greinar
bætast við ástríðutímana á kom-
andi árum og er ætlunin að nem-
endur finni sína ástríðu í einhverri
grein og fá þá tækifæri til að
dýpka sig í henni í skólanum.
Niðurstöður vetrarins, hvað lest-
ur nemenda varðar, eru mjög já-
kvæðar. Nemendur voru prófaðir í
lestri og náðu allir nemendur við
lok 1. bekkjar (alls 49 nemendur)
að lesa einstök orð, sem þýðir að
þeir brutu lestrarkóðann eins og
við köllum það. 96% nemenda gátu
lesið setningar og 88% gátu lesið
samfelldan texta. Norsk saman-
burðarrannsókn á 1. bekk sýndi að
73% nemenda gátu lesið einstök
orð við lok 1. bekkjar. Eftir að
nemendurnir í Vestmannaeyjum
hafa lokið 2. bekk verða saman-
burðarhópar prófaðir á Íslandi.
Byggt á vísindum og
kenningum
Aðferðir sem notaðar eru í verk-
efninu byggjast á mjög sterkum
vísindum og kenningum sem hafa
verið rannsakaðar í áratugi, m.a af
undirrituðum (Hermundi Sig-
mundssyni). Á næstunni verður
þessum kenningum gerð skil í
greinaskrifum, m.a. hér í Morgun-
blaðinu.
Eftir fyrsta vetur verkefnisins
finnur skólasamfélagið í Vest-
mannaeyjum fyrir því að nálgunin
sem stuðst er við í „Kveikjum
neistann“ hefur skapað ánægð
börn, ánægða kennara, ánægða
foreldra og mikil ánægja er í sam-
félaginu með verkefnið. Við hlökk-
um svo sannarlega til næsta vetr-
ar. Þá verður nemendum og
foreldrum nemenda í 2. bekk
áfram fylgt eftir með nálgun
„Kveikjum neistann“ verkefnisins
ásamt því að nýr 1. bekkur mun
nota aðferðirnar.
Lestur lykill að menntun og möguleikum
Vísindi og samfélag
Hermundur Sigmundsson
hermundur@hi.is
Einar Gunnarsson
Morgunblaðið/Eggert
’
Eftir fyrsta vetur
verkefnisins finnur
skólasamfélagið í Vest-
mannaeyjum fyrir því að
nálgunin sem stuðst er
við í „Kveikjum neistann“
hefur skapað ánægð börn,
ánægða kennara, ánægða
foreldra og mikil ánægja
er í samfélaginu með
verkefnið.
Hermundur er prófessor í lífeðlislegri
sálfræði við NTNU í Þrándheimi og
prófessor við Rannsóknarsetur um
menntun og hugarfar, MVS, Háskóla Ís-
lands. Einar er aðstoðarskólastjóri
Grunnskóla Vestmannaeyja.