Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Side 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022 LESBÓK NÝTT EFNI Nú eru aðeins tveir mánuðir þangað til De- ceivers, ellefta breiðskífa Arch Enemy, lítur dagsins ljós en melódíska dauðamálmbandið frá Svíþjóð hefur ekki sent frá sér nýtt efni í fimm ár. Í samtali við málm- gagnið Blabbermouth upplýsir gítarleikarinn Michael Amott að bandið finni fyrir mikilli eftirvæntingu en það lauk nýverið við Ameríkutúr. Þvert á spár virðist Arch Enemy njóta enn meiri lýðhylli eftir að skipt var um söngkonu fyrir átta árum og hin kanadíska Alissa White-Gluz leysti hina þýsku Angelu Gossow af hólmi. Amott kveðst þó ekki búa yfir neinni leyniformúlu. „Ég segi bara eins og Elvis: Ég veit ekkert um tónlist. Ég fylgi hvorki formúlu né ákveðnu verklagi. Þarf þess ekki. Treysti bara á innblásturinn og hugmyndaflugið.“ Engin leyniformúla Alissa White- Gluz, söngkona Arch Enemy. AFP/Vivien Killilea SLAGUR Breska leikkonan Erin Doherty sem sló í gegn sem Anna prinsessa í Krúnunni segir hlut- verkið í senn hafa haft góð og slæm áhrif á feril sinn. Góð í þeim skilningi að hún hlaut mikið lof fyrir túlkun sína og áhugi almennings á Önnu jókst til mikilla muna, ef marka má leit á Google. Slæm í þeim skilningi að margir haldi nú að hún geti ekki leikið neitt annað en konungbornar forréttinda- konur. „Ég vissi að ég þyrfti að leggja tvöfalt meira á mig,“ segir hún í samtali við Independent. „Það er svo skrýtið – maður berst og berst til að byrja með fyrir hvaða verkefni sem er en um leið og maður nær í gegn hefst strax annar slagur, að sýna fólki að ég geti eitthvað annað en bara Önnu prinsessu.“ Er ekki bara Anna prinsessa Doherty er í mun að sanna fjölhæfni sína. AFP/Dominik Bindl Dickinson veit hvað hann syngur. Vill velja stað- gengil sinn STAÐGENGILL Bruce Dickinson, söngvari Iron Maiden, vill að fé- lagar hans í breska málmbandinu víki honum til hliðar, renni upp sá dagur að hann geti ekki sungið al- mennilega lengur. „Geti ég ekki sungið meira en fjögur lög á kvöldi vildi ég að strákarnir héldu áfram og að ég myndi sjálfur finna stað- gengil minn. Ég gæti svo skotið upp kollinum annað veifið en hinn söngvarinn séð um afganginn,“ segir hann í samtali við breska blaðið Daily Star. Að sögn Dick- insons er þetta engin nýlunda en The Rolling Stones hafi lengi feng- ið aðra gítarleikara til að leysa Keith Richards af, enda ráði hann ekki við heilt gigg vegna liðagigtar. F rammistaða hans er ekkert minna en stórkostleg. Hann tekur af tærri fegurð utan um hjarta og sál föður míns. Það er auð- mjúk skoðun mín að þessi frammi- staða sé fordæmalaus og LOKSINS er þetta gert af nákvæmni og virð- ingu.“ Þannig komst Lisa Marie, einka- dóttir rokkkóngsins Elvis Presleys, að orði á samfélagsmiðlinum Insta- gram eftir að hafa séð Austin Butler túlka föður sinn í flunkunýrri kvik- mynd Baz Luhrmanns, Elvis. Móðir hennar, Priscilla, tók í sama streng á Facebook: „Austin Butler, sem lék Elvis, er frábær. Um miðja mynd litum við Jerry [Schiller, náinn samstarfsmaður Elvis, sem fékk einkasýningu með henni] hvort á ann- að og sögðum: VÁ!!! Bravó fyrir hon- um ... hann vissi að hann væri að feta í stór fótspor. Ég get rétt ímyndað mér að hann hafi verið gríðarlega taugaóstyrkur.“ Betra veganesti getur bandaríski leikarinn varla fengið en myndin, sem frumsýnd var í kvikmyndahátíðinni í Cannes í lok maí, verður aðgengileg alþýðu manna í öllum betri kvik- myndahúsum, vítt og breitt um heim- inn, frá og með lokum næstu viku. Gagnrýnendur eru upp til hópa sammála mæðgunum; Butler þykir negla Elvis og margir spá honum til- nefningu til Óskarsverðlauna. „Hann fer á kostum, sérstaklega í fyrri hluta myndarinnar, með einlæg- Alveg Elvis í sinni sök Ævi rokkkóngsins Elvis Presleys er rakin í tali og tónum í kvikmyndinni Elvis, sem kemur í bíó í næstu viku. Baz Luhrmann leikstýrir og lítt þekktur leikari, Austin Butler, fer með aðalhlutverkið. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Austin Butler og Priscilla Presley á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Ekkja rokk- kóngsins sáluga er afar ánægð með frammistöðu leikarans í myndinni. AFP/Valery Hache Austin Butler er þrítugur að aldri, fæddur í ágúst 1991. Fram að þessu hefur hann einkum verið þekktur fyrir leik sinn í mynda- flokkum í sjónvarpi, svo sem Switched at Birth, The Carrie Di- aries og The Shannara Chronicles. Þá fór hann vel með hlutverk hins kaldrifjaða morðingja Tex Wat- sons í kvikmynd Quentins Tarantinos Once Upon a Time in Hollywood árið 2019 þannig að hann hefur áður spreytt sig á persónu sem í raun og sann er/ var til. Næsta verkefni Butlers á hvíta tjaldinu er vísindaskáldsagan Dune: Part Two. Kvikmyndir um ævi þekktra dægurtónlistarmanna hafa á umliðnum ár- um vakið mikla lukku og vinsældir þeirra í kjölfarið aukist, nægir þar að nefna Bo- hemian Rhapsody um Freddie Mercury og Rocketman um Elton John. Hvort Elvis fer á svipað flug á komandi vikum og mán- uðum verður að teljast frekar sennilegt. Ekki satt? Lék kaldrifjaðan morðingja Freddie Mercury DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.