Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022
LESBÓK
NÝTT EFNI Nú eru aðeins tveir mánuðir þangað til De-
ceivers, ellefta breiðskífa Arch Enemy, lítur dagsins ljós
en melódíska dauðamálmbandið frá Svíþjóð hefur ekki
sent frá sér nýtt efni í fimm ár. Í samtali við málm-
gagnið Blabbermouth upplýsir gítarleikarinn Michael
Amott að bandið finni fyrir mikilli eftirvæntingu en það
lauk nýverið við Ameríkutúr. Þvert á spár virðist Arch
Enemy njóta enn meiri lýðhylli eftir að skipt var um
söngkonu fyrir átta árum og hin kanadíska Alissa
White-Gluz leysti hina þýsku Angelu Gossow af hólmi.
Amott kveðst þó ekki búa yfir neinni leyniformúlu. „Ég
segi bara eins og Elvis: Ég veit ekkert um tónlist. Ég
fylgi hvorki formúlu né ákveðnu verklagi. Þarf þess
ekki. Treysti bara á innblásturinn og hugmyndaflugið.“
Engin leyniformúla
Alissa White-
Gluz, söngkona
Arch Enemy.
AFP/Vivien Killilea
SLAGUR Breska leikkonan Erin Doherty sem sló í
gegn sem Anna prinsessa í Krúnunni segir hlut-
verkið í senn hafa haft góð og slæm áhrif á feril
sinn. Góð í þeim skilningi að hún hlaut mikið lof
fyrir túlkun sína og áhugi almennings á Önnu jókst
til mikilla muna, ef marka má leit á Google. Slæm í
þeim skilningi að margir haldi nú að hún geti ekki
leikið neitt annað en konungbornar forréttinda-
konur. „Ég vissi að ég þyrfti að leggja tvöfalt meira
á mig,“ segir hún í samtali við Independent. „Það er
svo skrýtið – maður berst og berst til að byrja með
fyrir hvaða verkefni sem er en um leið og maður
nær í gegn hefst strax annar slagur, að sýna fólki
að ég geti eitthvað annað en bara Önnu prinsessu.“
Er ekki bara Anna prinsessa
Doherty er í mun að sanna fjölhæfni sína.
AFP/Dominik Bindl
Dickinson veit hvað hann syngur.
Vill velja stað-
gengil sinn
STAÐGENGILL Bruce Dickinson,
söngvari Iron Maiden, vill að fé-
lagar hans í breska málmbandinu
víki honum til hliðar, renni upp sá
dagur að hann geti ekki sungið al-
mennilega lengur. „Geti ég ekki
sungið meira en fjögur lög á kvöldi
vildi ég að strákarnir héldu áfram
og að ég myndi sjálfur finna stað-
gengil minn. Ég gæti svo skotið upp
kollinum annað veifið en hinn
söngvarinn séð um afganginn,“
segir hann í samtali við breska
blaðið Daily Star. Að sögn Dick-
insons er þetta engin nýlunda en
The Rolling Stones hafi lengi feng-
ið aðra gítarleikara til að leysa
Keith Richards af, enda ráði hann
ekki við heilt gigg vegna liðagigtar.
F
rammistaða hans er ekkert
minna en stórkostleg. Hann
tekur af tærri fegurð utan um
hjarta og sál föður míns. Það er auð-
mjúk skoðun mín að þessi frammi-
staða sé fordæmalaus og LOKSINS
er þetta gert af nákvæmni og virð-
ingu.“
Þannig komst Lisa Marie, einka-
dóttir rokkkóngsins Elvis Presleys,
að orði á samfélagsmiðlinum Insta-
gram eftir að hafa séð Austin Butler
túlka föður sinn í flunkunýrri kvik-
mynd Baz Luhrmanns, Elvis.
Móðir hennar, Priscilla, tók í sama
streng á Facebook: „Austin Butler,
sem lék Elvis, er frábær. Um miðja
mynd litum við Jerry [Schiller, náinn
samstarfsmaður Elvis, sem fékk
einkasýningu með henni] hvort á ann-
að og sögðum: VÁ!!! Bravó fyrir hon-
um ... hann vissi að hann væri að feta í
stór fótspor. Ég get rétt ímyndað
mér að hann hafi verið gríðarlega
taugaóstyrkur.“
Betra veganesti getur bandaríski
leikarinn varla fengið en myndin, sem
frumsýnd var í kvikmyndahátíðinni í
Cannes í lok maí, verður aðgengileg
alþýðu manna í öllum betri kvik-
myndahúsum, vítt og breitt um heim-
inn, frá og með lokum næstu viku.
Gagnrýnendur eru upp til hópa
sammála mæðgunum; Butler þykir
negla Elvis og margir spá honum til-
nefningu til Óskarsverðlauna.
„Hann fer á kostum, sérstaklega í
fyrri hluta myndarinnar, með einlæg-
Alveg Elvis
í sinni sök
Ævi rokkkóngsins Elvis Presleys er rakin í tali og
tónum í kvikmyndinni Elvis, sem kemur í bíó í
næstu viku. Baz Luhrmann leikstýrir og lítt þekktur
leikari, Austin Butler, fer með aðalhlutverkið.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Austin Butler og Priscilla Presley á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Ekkja rokk-
kóngsins sáluga er afar ánægð með frammistöðu leikarans í myndinni.
AFP/Valery Hache
Austin Butler er þrítugur að aldri, fæddur í ágúst 1991. Fram að
þessu hefur hann einkum verið þekktur fyrir leik sinn í mynda-
flokkum í sjónvarpi, svo sem Switched at Birth, The Carrie Di-
aries og The Shannara Chronicles. Þá fór hann vel
með hlutverk hins kaldrifjaða morðingja Tex Wat-
sons í kvikmynd Quentins Tarantinos Once Upon a
Time in Hollywood árið 2019 þannig að hann hefur
áður spreytt sig á persónu sem í raun og sann er/
var til. Næsta verkefni Butlers á hvíta tjaldinu
er vísindaskáldsagan Dune: Part Two.
Kvikmyndir um ævi þekktra
dægurtónlistarmanna hafa á umliðnum ár-
um vakið mikla lukku og vinsældir þeirra í
kjölfarið aukist, nægir þar að nefna Bo-
hemian Rhapsody um Freddie Mercury og
Rocketman um Elton John. Hvort Elvis fer
á svipað flug á komandi vikum og mán-
uðum verður að teljast frekar sennilegt.
Ekki satt?
Lék kaldrifjaðan morðingja
Freddie
Mercury
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ
Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum.