Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022
08.00 Danni tígur
08.10 Litli Malabar
08.15 Danspartý
08.25 Gus, the Itsy Bitsy
Knight
08.40 Monsurnar
08.50 Mæja býfluga
09.00 Tappi mús
09.10 Lína langsokkur
09.35 Angelo ræður
09.45 Mia og ég
10.05 Denver síð. risaeðlan
10.20 It’s Pony
10.40 K3
10.55 Hunter Street
11.40 Simpson-fjölskyldan
12.05 Alex from Iceland
12.15 Nágrannar
13.45 Top 20 Funniest
14.30 City Life to Country Life
15.15 Britain’s Naughtiest
Nursery
16.00 Britain’s Got Talent
17.35 60 Minutes
18.26 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.45 Sportpakkinn
18.55 Ísland í dag
19.10 Ísskápastríð
19.45 Grand Designs: Sweden
20.30 The Heart Guy
21.20 Grantchester
22.05 Pandore
22.55 Two Weeks to Live
23.20 Shameless
00.15 Brave New World
01.00 Hunter Street
01.50 Simpson-fjölskyldan
02.10 City Life to Country Life
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 . 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Að sunnan 1. þáttur
20.30 Að vestan 1. þáttur
21.00 Að austan 1. þáttur
21.30 Frá landsbyggðunum
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
18.30 Vöggustofumálið (e)
19.00 Suðurnesjamagasín
Víkurfrétta (e)
19.30 Útkall (e)
20.00 Matur og heimili (e)
Endurt. allan sólarhr.
12:30 The Bachelor
14:00 The Block
15:00 PEN15
15:25 Top Chef
16:30 Spin City
16:55 The King of Queens
17:15 Everybody Loves
Raymond
17:40 Million Little Things
18:25 Ordinary Joe
19:10 State of the Union
19:25 Ræktum garðinn
19:40 Young Rock
20:10 This Is Us
21:00 Law & Order: Special
Victims Unit
21:50 Dexter: New Blood
22:50 Love Island
23:35 Pose
06.55 Morgunbæn og orð
dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Hringsól.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Á tónsviðinu.
09.00 Fréttir.
09.05 Svona er þetta.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Reykjavík bernsku
minnar.
11.00 Guðsþjónusta í Seyð-
isfjarðarkirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.10 Síðasta lag fyrir fréttir.
12.20 Hádegisfréttir.
13.00 Þarna lá ég á gólfinu
heima hjá Ragnari í
Smára.
14.00 Víðsjá.
15.00 Lestin.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Listahátíð í Reykjavík
2022.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Pillan.
18.50 Veðurfregnir.
19.40 Í húsi skáldsins.
20.50 Heimskviður.
21.30 Í sjónhending.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
07.15 KrakkaRÚV
08.06 Hæ Sámur
08.13 Sjóræningjarnir í næsta
húsi
08.24 Eðlukrúttin
08.35 Múmínálfarnir
08.57 Hvolpasveitin
09.19 Rán – Rún
09.24 Ronja ræningjadóttir
09.48 Stuðboltarnir
10.00 Uppreisnarseggir í
náttúrunni
10.55 Kaupmannahöfn – höf-
uðborg Íslands
11.20 Músíkmolar
11.30 Manndómsár Mikkos –
Þriðja þrautin – skíða-
ganga
12.00 Feneyjatvíæringurinn
2022
12.25 Aretha Franklin:
Amazing Grace
13.50 Líkamsklukkan: Hvað
knýr okkur áfram?
14.45 Finnska gufubaðið
15.00 Popp- og rokksaga
Íslands
16.00 HM í sundi
17.35 Meistarinn – Sven
Wollter
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 Basl er búskapur
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Sumarlandinn
20.20 Örlæti
20.40 Íslendingar
21.25 Sæluríki
22.15 Hæglætiskona
9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán
spilar góða tónlist og fer yfir valið efni úr morgun- og
síðdegisþáttum K100.
13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring
og besta tónlistin á sunnudegi. Þór er góður að þefa
uppi það sem fjölskyldan getur gert sér til skemmt-
unar á sunnudögum.
16 til 18 Tónlistinn Topp40 Ásgeir Páll Ásgeirsson
fer yfir 40 vinsælustu lög landsins á eina opinbera
vinsældalista Íslands sem er unninn í samstarfi við
félag hljómplötuframleiðenda.
Lykillinn að ham-
ingjuríku og góðu
hjónabandi er að kyss-
ast tíu sinnum í viku,
fara þrisvar sinnum á
mánuði á stefnumót og
segjast elska maka sinn
að minnsta kosti níu
sinnum í hverri viku,
samkvæmt könnun á
vegum OnePoll.
Könnunin leiddi einnig í ljós að það væri mikilvægt
að koma hvort öðru á óvart þrisvar í hverjum mánuði
auk þess sem tíu djúpar samræður við makann á
mánuði væru lykilatriði fyrir farsælt hjónaband.
Nánar er fjallað um málið á K100.is.
Lykillinn að hamingjuríku
hjónabandi
París. AFP. | Stafrænar myndir af
marglyttum, sem bylgjast og veltast
um í myrku, bleiku hafi eða tugir
fiðrilda sem renna saman í eina líf-
veru – margir eru þeirrar hyggju að
þar liggi næstu stórtíðindin í list-
heiminum.
Argentínski listamaðurinn Sofia
Crespo gerði listaverkin sem hér er
lýst, með hjálp gervigreindar. Hún
er hluti af hreyfingu listamanna, sem
setja tölvum reglur og nota algrím
eða reiknirita til að búa til ný form,
hugmyndir og mynstur.
Þessi geiri er farinn að vekja mikla
athygli listaverkasafnara og verð-
miðarnir á uppboðum hækka hratt.
Bandaríski listamaðurinn og for-
ritarinn Robbie Barrat – sem kall-
aður hefur verið undrabarn og er að-
eins 22 ára gamall – seldi verk sem
heitir „Nude Portrait#7Frame#64“
á uppboði hjá Sotheby’s í mars fyrir
630.000 pund (102 milljónir króna) í
mars.
Fyrir fjórum árum seldist verkið
„Edmond de Belamy“ eftir frönsku
listasmiðjuna Obvious fyrir 432.500
dollara (57 milljónir króna) hjá
Christie’s. Það verk var að miklu
leyti byggt á algrími Barrats.
Ballett manna og véla
Safnarinn Jason Baily sagði við AFP
að þessi gerð af list væri eins og
„ballett milli manna og véla“.
Vera kann að þessi listgrein hafi
vart slitið barnsskónum en búist er
við að miklar breytingar séu í vænd-
um, því að nú er von á öflugum gervi-
greindarverkfærum, sem geta á
nokkrum sekúndum spýtt út mynd-
um af svipuðum gæðum og ljós-
myndir.
Listamenn í Þýskalandi og Banda-
ríkjunum ruddu brautina í tölvu-
gerðri list á sjöunda áratug 20. aldar.
Í eign V&A-safnsins í London eru
verk frá síðustu 50 árum, þar á meðal
lykilverkið „Plastik 1“ eftir þýska
listamanninn Georg Nees frá 1968.
Nees notaði handahófskenndan
tölvubrunn til að búa til geometrískt
mynstur fyrir höggmynd.
Nú nota stafrænir listamenn of-
urtölvur og kerfi, sem nefnast Ge-
nerative Adversarial Networks
(GANs) til að búa til myndir, sem eru
flóknari en nokkuð sem Nees hefði
getað gert sér í hugarlund.
GANs eru gervigreindarforrit,
sem etja kappi hvert við annað. Ann-
að forritið býr til mynd samkvæmt
leiðbeiningum, hitt er eins konar
vaktmaður, sem metur hvort útkom-
an stenst gerðar kröfur.
Ef svo er ekki, er myndin send til
baka til lagfæringar og fyrra forritið
reynir að gera betur til að hljóta náð
fyrir augum vaktmannsins.
Crespo, Barrat og aðrir í þeirra
hópi halda því fram að listamaðurinn
sé enn miðpunkturinn í sköpuninni,
þótt aðferðir þeirra séu ekki hefð-
bundnar.
„Þegar ég vinn svona er ég ekki að
búa til mynd. Ég er að búa til kerfi
sem býr til myndir,“ sagði Barrat við
AFP.
Barnapía tölvunnar
Crespo sagði að hún teldi að gervi-
greindarvélin gæti orðið sannur sam-
verkamaður en í raun væri ótrúlega
erfitt að láta eina línu af tölvukóða
búa til viðunandi niðurstöður. Nær
væri að segja að hún væri eins og
barnapía tölvunnar.
Tæknifyrirtækin vona að þau geti
gert almenningi kleift að nota þessa
tækni. Fyrirtækin Google og Open
AI hafa hampað nýjum verkfærum,
sem þau segja að búi yfir ljósmynda-
raunsæi og gefi fólki tækifæri til að
sleppa sköpunargáfunni lausri, án
þess að búa yfir forritunarþekkingu.
Þessi verkfæri breyta mæltu máli í
myndir.
Á vefsíðu Google Imagen eru alls
kyns furðumyndir búnar til eftir fyr-
irmælum á borð við: „Lítill kaktus
með stráhatt og neon-sólgleraugu í
Sahara-eyðimörkinni.“
Forsvarsmenn Open AI halda því
fram að forritið Dalle-2 geti borið á
borð hvaða listastefnu sem er, hvort
sem það er í anda flæmsku meist-
aranna eða Andys Warhols.
Innreið gervigreindar hefur vakið
ótta um að vélar muni taka við af
mönnum í allt frá samskiptum við
viðskiptavini til blaðamennsku, en
listamenn líta svo á að tækniþróunin
sé tækifæri frekar en ógn.
Crespo hefur prófað Dalle-2 og
segir að þetta sé nýtt stig í að búa til
myndir en hún kjósi frekar að nota
gömlu tæknina, GANs. Frekar en að
ná fram nákvæmni í vinnslu verk-
anna, vilji hún að hlutirnir hafi órætt
útlit og séu ekki auðþekkjanlegir.
Camille Lenglois starfar hjá Pom-
pidou-miðstðöinni í París þar sem er
að finna mesta safn samtímalistar í
Evrópu. Hún gerir líka lítið úr hug-
myndum um að vélar séu að leysa
manninn af hólmi. Enn búi vélar
hvorki yfir getu til gagnrýninnar
hugsunar né sköpunargáfu. Hún
bætir við: „Getan til að búa til raun-
verulegar myndir skapar ekki lista-
mann.“
Argentínski listamað-
urinn Sofia Crespo held-
ur á verki sem hún gerði
með því að mata tölvu á
leiðbeiningum og fela
gervigreind að búa til.
AFP/Patricia de Melo Moreira
LISTAMENN MATA TÖLVUR TIL AÐ BÚA TIL VERK
Er framtíð lista í
gervigreind?
www.rafkaup.is
ÚRVAL
ÚTILJÓSA