Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022 08.00 Danni tígur 08.10 Litli Malabar 08.15 Danspartý 08.25 Gus, the Itsy Bitsy Knight 08.40 Monsurnar 08.50 Mæja býfluga 09.00 Tappi mús 09.10 Lína langsokkur 09.35 Angelo ræður 09.45 Mia og ég 10.05 Denver síð. risaeðlan 10.20 It’s Pony 10.40 K3 10.55 Hunter Street 11.40 Simpson-fjölskyldan 12.05 Alex from Iceland 12.15 Nágrannar 13.45 Top 20 Funniest 14.30 City Life to Country Life 15.15 Britain’s Naughtiest Nursery 16.00 Britain’s Got Talent 17.35 60 Minutes 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.45 Sportpakkinn 18.55 Ísland í dag 19.10 Ísskápastríð 19.45 Grand Designs: Sweden 20.30 The Heart Guy 21.20 Grantchester 22.05 Pandore 22.55 Two Weeks to Live 23.20 Shameless 00.15 Brave New World 01.00 Hunter Street 01.50 Simpson-fjölskyldan 02.10 City Life to Country Life ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4 . 93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 20.00 Að sunnan 1. þáttur 20.30 Að vestan 1. þáttur 21.00 Að austan 1. þáttur 21.30 Frá landsbyggðunum 17.00 Times Square Church 18.00 Tónlist 18.30 Ísrael í dag 19.30 Jesús Kristur er svarið 18.30 Vöggustofumálið (e) 19.00 Suðurnesjamagasín Víkurfrétta (e) 19.30 Útkall (e) 20.00 Matur og heimili (e) Endurt. allan sólarhr. 12:30 The Bachelor 14:00 The Block 15:00 PEN15 15:25 Top Chef 16:30 Spin City 16:55 The King of Queens 17:15 Everybody Loves Raymond 17:40 Million Little Things 18:25 Ordinary Joe 19:10 State of the Union 19:25 Ræktum garðinn 19:40 Young Rock 20:10 This Is Us 21:00 Law & Order: Special Victims Unit 21:50 Dexter: New Blood 22:50 Love Island 23:35 Pose 06.55 Morgunbæn og orð dagsins. 07.00 Fréttir. 07.03 Hringsól. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Á tónsviðinu. 09.00 Fréttir. 09.05 Svona er þetta. 10.00 Fréttir. 10.05 Veðurfregnir. 10.15 Reykjavík bernsku minnar. 11.00 Guðsþjónusta í Seyð- isfjarðarkirkju. 12.00 Hádegisútvarp. 12.10 Síðasta lag fyrir fréttir. 12.20 Hádegisfréttir. 13.00 Þarna lá ég á gólfinu heima hjá Ragnari í Smára. 14.00 Víðsjá. 15.00 Lestin. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Listahátíð í Reykjavík 2022. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Pillan. 18.50 Veðurfregnir. 19.40 Í húsi skáldsins. 20.50 Heimskviður. 21.30 Í sjónhending. 22.00 Fréttir. 22.05 Veðurfregnir. 22.10 Á reki með KK. 23.10 Frjálsar hendur. 07.15 KrakkaRÚV 08.06 Hæ Sámur 08.13 Sjóræningjarnir í næsta húsi 08.24 Eðlukrúttin 08.35 Múmínálfarnir 08.57 Hvolpasveitin 09.19 Rán – Rún 09.24 Ronja ræningjadóttir 09.48 Stuðboltarnir 10.00 Uppreisnarseggir í náttúrunni 10.55 Kaupmannahöfn – höf- uðborg Íslands 11.20 Músíkmolar 11.30 Manndómsár Mikkos – Þriðja þrautin – skíða- ganga 12.00 Feneyjatvíæringurinn 2022 12.25 Aretha Franklin: Amazing Grace 13.50 Líkamsklukkan: Hvað knýr okkur áfram? 14.45 Finnska gufubaðið 15.00 Popp- og rokksaga Íslands 16.00 HM í sundi 17.35 Meistarinn – Sven Wollter 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Stundin okkar 18.25 Basl er búskapur 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.35 Veður 19.45 Sumarlandinn 20.20 Örlæti 20.40 Íslendingar 21.25 Sæluríki 22.15 Hæglætiskona 9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán spilar góða tónlist og fer yfir valið efni úr morgun- og síðdegisþáttum K100. 13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring og besta tónlistin á sunnudegi. Þór er góður að þefa uppi það sem fjölskyldan getur gert sér til skemmt- unar á sunnudögum. 16 til 18 Tónlistinn Topp40 Ásgeir Páll Ásgeirsson fer yfir 40 vinsælustu lög landsins á eina opinbera vinsældalista Íslands sem er unninn í samstarfi við félag hljómplötuframleiðenda. Lykillinn að ham- ingjuríku og góðu hjónabandi er að kyss- ast tíu sinnum í viku, fara þrisvar sinnum á mánuði á stefnumót og segjast elska maka sinn að minnsta kosti níu sinnum í hverri viku, samkvæmt könnun á vegum OnePoll. Könnunin leiddi einnig í ljós að það væri mikilvægt að koma hvort öðru á óvart þrisvar í hverjum mánuði auk þess sem tíu djúpar samræður við makann á mánuði væru lykilatriði fyrir farsælt hjónaband. Nánar er fjallað um málið á K100.is. Lykillinn að hamingjuríku hjónabandi París. AFP. | Stafrænar myndir af marglyttum, sem bylgjast og veltast um í myrku, bleiku hafi eða tugir fiðrilda sem renna saman í eina líf- veru – margir eru þeirrar hyggju að þar liggi næstu stórtíðindin í list- heiminum. Argentínski listamaðurinn Sofia Crespo gerði listaverkin sem hér er lýst, með hjálp gervigreindar. Hún er hluti af hreyfingu listamanna, sem setja tölvum reglur og nota algrím eða reiknirita til að búa til ný form, hugmyndir og mynstur. Þessi geiri er farinn að vekja mikla athygli listaverkasafnara og verð- miðarnir á uppboðum hækka hratt. Bandaríski listamaðurinn og for- ritarinn Robbie Barrat – sem kall- aður hefur verið undrabarn og er að- eins 22 ára gamall – seldi verk sem heitir „Nude Portrait#7Frame#64“ á uppboði hjá Sotheby’s í mars fyrir 630.000 pund (102 milljónir króna) í mars. Fyrir fjórum árum seldist verkið „Edmond de Belamy“ eftir frönsku listasmiðjuna Obvious fyrir 432.500 dollara (57 milljónir króna) hjá Christie’s. Það verk var að miklu leyti byggt á algrími Barrats. Ballett manna og véla Safnarinn Jason Baily sagði við AFP að þessi gerð af list væri eins og „ballett milli manna og véla“. Vera kann að þessi listgrein hafi vart slitið barnsskónum en búist er við að miklar breytingar séu í vænd- um, því að nú er von á öflugum gervi- greindarverkfærum, sem geta á nokkrum sekúndum spýtt út mynd- um af svipuðum gæðum og ljós- myndir. Listamenn í Þýskalandi og Banda- ríkjunum ruddu brautina í tölvu- gerðri list á sjöunda áratug 20. aldar. Í eign V&A-safnsins í London eru verk frá síðustu 50 árum, þar á meðal lykilverkið „Plastik 1“ eftir þýska listamanninn Georg Nees frá 1968. Nees notaði handahófskenndan tölvubrunn til að búa til geometrískt mynstur fyrir höggmynd. Nú nota stafrænir listamenn of- urtölvur og kerfi, sem nefnast Ge- nerative Adversarial Networks (GANs) til að búa til myndir, sem eru flóknari en nokkuð sem Nees hefði getað gert sér í hugarlund. GANs eru gervigreindarforrit, sem etja kappi hvert við annað. Ann- að forritið býr til mynd samkvæmt leiðbeiningum, hitt er eins konar vaktmaður, sem metur hvort útkom- an stenst gerðar kröfur. Ef svo er ekki, er myndin send til baka til lagfæringar og fyrra forritið reynir að gera betur til að hljóta náð fyrir augum vaktmannsins. Crespo, Barrat og aðrir í þeirra hópi halda því fram að listamaðurinn sé enn miðpunkturinn í sköpuninni, þótt aðferðir þeirra séu ekki hefð- bundnar. „Þegar ég vinn svona er ég ekki að búa til mynd. Ég er að búa til kerfi sem býr til myndir,“ sagði Barrat við AFP. Barnapía tölvunnar Crespo sagði að hún teldi að gervi- greindarvélin gæti orðið sannur sam- verkamaður en í raun væri ótrúlega erfitt að láta eina línu af tölvukóða búa til viðunandi niðurstöður. Nær væri að segja að hún væri eins og barnapía tölvunnar. Tæknifyrirtækin vona að þau geti gert almenningi kleift að nota þessa tækni. Fyrirtækin Google og Open AI hafa hampað nýjum verkfærum, sem þau segja að búi yfir ljósmynda- raunsæi og gefi fólki tækifæri til að sleppa sköpunargáfunni lausri, án þess að búa yfir forritunarþekkingu. Þessi verkfæri breyta mæltu máli í myndir. Á vefsíðu Google Imagen eru alls kyns furðumyndir búnar til eftir fyr- irmælum á borð við: „Lítill kaktus með stráhatt og neon-sólgleraugu í Sahara-eyðimörkinni.“ Forsvarsmenn Open AI halda því fram að forritið Dalle-2 geti borið á borð hvaða listastefnu sem er, hvort sem það er í anda flæmsku meist- aranna eða Andys Warhols. Innreið gervigreindar hefur vakið ótta um að vélar muni taka við af mönnum í allt frá samskiptum við viðskiptavini til blaðamennsku, en listamenn líta svo á að tækniþróunin sé tækifæri frekar en ógn. Crespo hefur prófað Dalle-2 og segir að þetta sé nýtt stig í að búa til myndir en hún kjósi frekar að nota gömlu tæknina, GANs. Frekar en að ná fram nákvæmni í vinnslu verk- anna, vilji hún að hlutirnir hafi órætt útlit og séu ekki auðþekkjanlegir. Camille Lenglois starfar hjá Pom- pidou-miðstðöinni í París þar sem er að finna mesta safn samtímalistar í Evrópu. Hún gerir líka lítið úr hug- myndum um að vélar séu að leysa manninn af hólmi. Enn búi vélar hvorki yfir getu til gagnrýninnar hugsunar né sköpunargáfu. Hún bætir við: „Getan til að búa til raun- verulegar myndir skapar ekki lista- mann.“ Argentínski listamað- urinn Sofia Crespo held- ur á verki sem hún gerði með því að mata tölvu á leiðbeiningum og fela gervigreind að búa til. AFP/Patricia de Melo Moreira LISTAMENN MATA TÖLVUR TIL AÐ BÚA TIL VERK Er framtíð lista í gervigreind? www.rafkaup.is ÚRVAL ÚTILJÓSA

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.