Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Síða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Síða 32
SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2022 Taylor Hawkins, trymbill Foo Fighters, var rokkheimum harm- dauði enda í senn frambærilegur listamaður og vinmargur ljúf- lingur. Hann féll frá í mars langt fyrir aldur fram, nýorðinn fimmtugur. Vinir Hawkins og vandamenn munu minnast hans á tvennum tónleikum í haust, á Wembley í Lundúnum 3. sept- ember og í The Kia Forum í Los Angeles 27. sama mánaðar. Óhætt er að segja að hver stjarnan verði upp af annarri en um er að ræða bæði vini Hawkins og samstarfsmenn og átrúnaðar- goð hans gegnum tíðina. Nægir þar að nefna Brian May og Roger Taylor úr Queen, Geddy Lee og Alex Lifeson úr Rush, Josh Homme, Mark Ronson, Chrissie Hynde, Liam Gallagher, Miley Cyrus, Joan Jett, Gene Simmons úr Kiss, Nikki Sixx úr Mötley Crüe og Alanis Morrissette en Hawkins var einmitt trymbill hennar áður en hann gekk til liðs við Foo Fighters. Miðasala hófst á föstudaginn. Taylor Hawkins í Laugardalshöll- inni árið 2003. Morgunblaðið/Sverrir Minnast Hawkins heitins Poppstjarnan Miley Cyrus er í hópi þeirra lista- manna sem munu votta Hawkins virðingu sína. AFP/Michael Tran Stórskotalið mun minnast Taylors Hawk- ins á tvennum tónleikum í september. „Nú er óðum að draga úr þeirri gerfimennsku að þéra. Og auð- vitað er gáfað og menntað fólk manna vísast til þess að taka hlýtt í hönd hvers smælingja og segja: – Við erum raunverulega jafn réttháir þegnar vors þjóð- félags og umfram allt aðeins menn.“ Þannig komst Kristín Sigfús- dóttir frá Syðri-Völlum að orði í bréfi til Velvakanda í Morgun- blaðinu fyrir réttum sextíu ár- um. Tilefnið var að bílstjóri nokkur hafði skömmu áður kvartað undan því í blaðinu að fólk þúaði sig án leyfis eða að fyrra bragði. „Ja, fyrr má nú vera dóna- skapur,“ sagði Kristín. „Allur farþegahópurinn mundi þó horfa með undrun ef enginn mætti víkja frá því að þéra hvern einasta bílstjóra. Þið megið trúa því, að sú regla kemst aldrei á, því bílstjórar eru yfirleitt alveg dramblausir menn og mjög hlýlegir í við- skiptum.“ Kristín hafði heyrt það af vörum hámenntaðs manns, að þéringar hefðu upphaflega verið léleg einangrunarkennd hroka- fullra manna, sem heimtuðu múghylli með valdi. „Samskon- ar þjóðarvenja þrífst enn sums staðar og mörgum finnst gott að grípa til hennar – í ákveðnum tilgangi, í stað sannr- ar virðingar og bræðralags.“ GAMLA FRÉTTIN Þúað að fyrra bragði Áhöld voru um það árið 1962 hvort þéra ætti eða þúa leigubílstjóra. Morgunblaðið/Unnur Karen ÞRÍFARAR VIKUNNAR Tim Roth leikari Ísak Bergmann Jóhannesson knattspyrnumaður Mark Hollis söngvari

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.