Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Qupperneq 32
SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2022
Taylor Hawkins, trymbill Foo Fighters, var rokkheimum harm-
dauði enda í senn frambærilegur listamaður og vinmargur ljúf-
lingur. Hann féll frá í mars langt fyrir aldur fram, nýorðinn
fimmtugur. Vinir Hawkins og vandamenn munu minnast hans á
tvennum tónleikum í haust, á Wembley í Lundúnum 3. sept-
ember og í The Kia Forum í Los Angeles 27. sama mánaðar.
Óhætt er að segja að hver stjarnan verði upp af annarri en um
er að ræða bæði vini Hawkins og samstarfsmenn og átrúnaðar-
goð hans gegnum tíðina. Nægir þar að nefna Brian May og
Roger Taylor úr Queen, Geddy Lee og Alex Lifeson úr Rush,
Josh Homme, Mark Ronson, Chrissie Hynde, Liam Gallagher,
Miley Cyrus, Joan Jett, Gene Simmons úr Kiss, Nikki Sixx úr
Mötley Crüe og Alanis Morrissette en Hawkins var einmitt
trymbill hennar áður en hann gekk til liðs við Foo Fighters.
Miðasala hófst á föstudaginn.
Taylor Hawkins í
Laugardalshöll-
inni árið 2003.
Morgunblaðið/Sverrir
Minnast Hawkins heitins
Poppstjarnan Miley Cyrus er í hópi þeirra lista-
manna sem munu votta Hawkins virðingu sína.
AFP/Michael Tran
Stórskotalið mun minnast Taylors Hawk-
ins á tvennum tónleikum í september.
„Nú er óðum að draga úr þeirri
gerfimennsku að þéra. Og auð-
vitað er gáfað og menntað fólk
manna vísast til þess að taka
hlýtt í hönd hvers smælingja og
segja: – Við erum raunverulega
jafn réttháir þegnar vors þjóð-
félags og umfram allt aðeins
menn.“
Þannig komst Kristín Sigfús-
dóttir frá Syðri-Völlum að orði í
bréfi til Velvakanda í Morgun-
blaðinu fyrir réttum sextíu ár-
um. Tilefnið var að bílstjóri
nokkur hafði skömmu áður
kvartað undan því í blaðinu að
fólk þúaði sig án leyfis eða að
fyrra bragði.
„Ja, fyrr má nú vera dóna-
skapur,“ sagði Kristín. „Allur
farþegahópurinn mundi þó
horfa með undrun ef enginn
mætti víkja frá því að þéra
hvern einasta bílstjóra. Þið
megið trúa því, að sú regla
kemst aldrei á, því bílstjórar
eru yfirleitt alveg dramblausir
menn og mjög hlýlegir í við-
skiptum.“
Kristín hafði heyrt það af
vörum hámenntaðs manns, að
þéringar hefðu upphaflega verið
léleg einangrunarkennd hroka-
fullra manna, sem heimtuðu
múghylli með valdi. „Samskon-
ar þjóðarvenja þrífst enn sums
staðar og mörgum finnst gott
að grípa til hennar – í
ákveðnum tilgangi, í stað sannr-
ar virðingar og bræðralags.“
GAMLA FRÉTTIN
Þúað að
fyrra bragði
Áhöld voru um það árið 1962 hvort þéra ætti eða þúa leigubílstjóra.
Morgunblaðið/Unnur Karen
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Tim Roth
leikari
Ísak Bergmann Jóhannesson
knattspyrnumaður
Mark Hollis
söngvari