Morgunblaðið - 04.07.2022, Side 1

Morgunblaðið - 04.07.2022, Side 1
M Á N U D A G U R 4. J Ú L Í 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 154. tölublað . 110. árgangur . VILJA SPORNA VIÐ FÆKKUN BARNA Í SKÓLUM 400 ÞÁTTTAKENDUR THELMA NORÐUR- LANDAMEISTARI Á JAFNVÆGISSLÁ LANDSMÓT UNGLINGA LANDSBJARGAR 6 FIMLEIKAR 27JÓN BJARNASON 11 „Alls ekki,“ sagði landsliðskonan Guðrún Arnardóttir í Dætrum Ís- lands, vefþætti mbl.is sem fram- leiddur er af Studio M, þegar hún var spurð að því hvort hún hefði alltaf ætlað sér að verða atvinnu- kona í fótbolta. Guðrún, sem er 26 ára gömul og uppalin á Ísafirði, er samnings- bundin Rosengård í sænsku úrvals- deildinni en hún varð Svíþjóðar- meistari með liðinu á síðustu leiktíð og þá fagnaði Rosengård sigri í bikarkeppninni á yfirstandandi keppnistímabili. „Þegar ég var yngri þá pældi ég ekkert í þessu enda var ekki einu sinni meistaraflokkur á Ísafirði þegar ég var að stíga mín fyrstu skref í boltanum,“ sagði Guðrún. „Atvinnukonur í fótbolta voru ekki jafn sýnilegar þá og þær eru í dag og það var ekki fyrr en ég var búin að spila í nokkur ár með Breiðabliki sem ég fór að pæla í því að ég gæti mögulega farið eitthvað út að spila,“ sagði Guðrún meðal annars. bjarnih@mbl.is »10 Var lítið að spá í atvinnumennsku - Atvinnukonur voru ekki sýnilegar Morgunblaðið/Hallur Már Rosengård Guðrún Arnardóttir er í nærmynd í Dætrum Íslands í dag. skammt frá verslunarmiðstöðinni. Hann var með riffil ásamt öðrum vopnum. Á blaðamannafundum síðar um kvöldið greindi Søren Thomassen yfirlögregluþjónn frá því að einn hinna látnu væri karlmaður á Þrír létust og þrír til viðbótar eru alvarlega særðir eftir skotárás í verslunarmiðstöðinni Field’s í Kaupmannahöfn í gær. Lögreglu barst tilkynning klukkan hálfsex að staðartíma. Stuttu síðar handtók lögregla 22 ára gamlan Dana fimmtugsaldri og hinir tveir væru ungmenni. Meintur árásarmaður verður yfirheyrður í dag en allt bendir til þess að hann hafi verið einn að verki. Ekki er vitað um ástæðu verkn- aðarins en ekki er talið að árásin hafi verið gerð vegna kynþáttahat- urs. Thomassen sagði að atvikið væri rannsakað sem hryðjuverk. Mikill viðbúnaður lögreglu var á svæðinu og var stórt svæði girt af. AFP/Ólafur Steinar Gestsson Skotárás í Kaupmannahöfn - Þrír látnir og þrír til viðbótar alvarlega særðir - Lögregla handtók 22 ára gamlan Dana MSkotárás í Kaupmannahöfn » 13 Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Líklegt er að héraðsdómarar víki sæti og að svokallaðir setudómarar verði skipaðir í héraðsdómstól, fari Dómarafélag Íslands í mál við ríkið um meint ofgreidd laun 260 opin- berra starfsmanna yfir þriggja ára tímabil. Fordæmi er fyrir slíku frá árinu 2006 í máli héraðsdómarans Guðjóns S. Marteinssonar gegn ís- lenska ríkinu, þegar deilt var um laun dómarans. Þá viku allir dómarar Héraðsdóms Reykjavíkur sæti í mál- inu og tók forseti lagadeildar Há- skóla Íslands sæti í dómnum auk tveggja lagaprófessora úr Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Það er einhugur í stjórn Dómara- félags Íslands um að meint leiðrétt- ing á launum 260 opinberra starfs- manna, þar á meðal dómara, sé ólögmæt. Kjartan Björgvinsson, for- maður Dómarafélagsins, segir að um sé að ræða kjaraskerðingu en ekki leiðréttingu á launum. Mótlætið viðbúið Þið hafið mætt mótlæti hvað varð- ar þessa afstöðu. Hvað finnst þér um það? „Við teljum að það sé viðbúið þeg- ar við erum sett í sama hóp og kjörn- ir fulltrúar í launamálum. Þá er hættulegt að dómarar fylgi þeim hópi, því sá hópur getur illa tjáð sig um sín launamál og sá hópur er nátt- úrulega í þeirri stöðu að hann ræður ferðinni,“ segir hann og á við að Al- þingi ákveði eigin laun óbeint. „Við teljum að fjársýsla ríkisins sé ekki að fara rétt að í þessu máli,“ segir hann. Fjársýsla ríkisins tilkynnti á föstu- dag að laun 260 opinberra starfs- manna ríkisins hefðu verið ofgreidd síðastliðin þrjú ár. Fer hún fram á að starfsmennirnir, 260 talsins, endur- greiði ofgreidd laun sem þeir fengu á þriggja ára tímabilinu eða síðan lög nr. 79/2019 um kjör þjóðkjörinna manna, ráðherra og tiltekinna emb- ættismanna ríkisins tóku gildi. Komst fjársýsla ríkisins nýverið að því að allt frá gildistöku laganna hefði viðmið við framkvæmdina verið launavísitala ríkisstarfsmanna en ekki það viðmið sem tilgreint er í lög- unum, þ.e. meðaltalsbreyting reglu- legra launa ríkisstarfsmanna milli ára. Mögulegt að héraðs- dómarar víki sæti - Dómarafélagið íhugar enn málsókn vegna „ofgreiddra launa“ M „Óboðlegt“ hjá ríkinu … »4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.