Morgunblaðið - 04.07.2022, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.07.2022, Blaðsíða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2022 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Passamyndir Tímapantanir í síma 568 0150 eða á rut@rut.is Förum eftir öllum sóttvarnartilmælum Þín upplifun skiptir okkur máli Kringlan ... alltaf næg bílastæði Borðabókanir á www.finnssonbistro.is eða info@finnssonbistro.is Djúsí andasalat Frábær kostur í hádeginu Urður Egilsdóttir Tómas Arnar Þorláksson Klukkan hálfsex í gærkvöldi barst lögreglunni í Kaupmannahöfn til- kynning um að skotum hefði verið hleypt af í verslunarmiðstöðinni Field’s á Amager. 22 ára gamall danskur karlmaður skaut nokkrum skotum inni í verslunarmiðstöðinni. Stuttu síðar handtók lögreglan hann rétt fyrir utan miðstöðina. Á blaðamannafundum síðar um kvöldið tilkynnti Søren Thomassen yfirlögregluþjónn að þrír hefðu lát- ist og þrír til viðbótar væru alvar- lega særðir. Einn hinna látnu er maður á fimmtugsaldri og hinir tveir einstaklingarnir eru ung- menni. Thomassen sagði að allar upplýsingar bentu til að maðurinn hefði verið einn að verki og árásin væri rannsökuð sem hryðjuverk. Var að hjóla í átt að stöðinni Lögregla var með gríðarlega mikinn viðbúnað á svæðinu og girti af stórt svæði. Þá var einnig mikill viðbúnaður í borginni allri. Björn Bergsson var að hjóla að verslunarmiðstöðinni til þess að stunda þar líkamsrækt er árásin átti sér stað en hann býr í 300 metra fjarlægð frá henni. Hann segist hafa heyrt í sírenum er hann var að leggja af stað í átt að stöð- inni. Það hvarflaði þó ekki að Birni að um svo hræðilegan atburð hefði verið að ræða. „Þetta var nýbúið að gerast þegar ég kem að verslunar- miðstöðinni, þá sé ég fólk koma grátandi úr verslunarmiðstöðinni og ein lýsti atburðarásinni fyrir mér hágrátandi.“ Björn segir að hann hafi þá séð hátt í hundrað viðbragðsbíla á svæðinu frá lögreglu, sérsveit og fleiri viðbragðsaðilum. „Sem betur fer var ég ekki kominn inn í versl- unarmiðstöðina en ég var á leiðinni þangað. Hefði ég verið hálftíma fyrr af stað hefði ég verið inni.“ Ákvað Björn þá að halda til baka í íbúðina sína en komst að því að hún var inni á svæðinu sem lög- reglan var búin að loka af. Ákvað hann þá að yfirgefa íbúðina og koma sér út af afgirta svæðinu til að gæta fyllsta öryggis. „Það var ekkert vesen að komast út af svæð- inu en það er ekki hægt að komast aftur inn fyrir,“ segir Björn. „Öll í sjokki“ Tvær íslenskar stúlkur voru að störfum í versluninni Lindex sem er í Field’s. Að sögn Alberts Þórs Magnússonar, eiganda Lindex á Ís- landi og umboðsaðila Lindex í Dan- mörku, voru stúlkurnar ósærðar en í miklu áfalli. Verslunarstjóri búð- arinnar býr í hverfinu og gat því að sögn Alberts sótt stúlkurnar og far- ið með þær heim. „Við erum öll í sjokki og það líður öllum mjög illa yfir þessu,“ segir Albert. Sendu samúðarkveðjur Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra sendi Dönum samúðarkveðj- ur í færslu á samfélagsmiðlinum Twitter og sagði Íslendinga standa með frændum sínum í Danmörku. „Hræðilegar fréttir frá Kaup- mannahöfn í kvöld þar sem manns- líf tapast vegna óskiljanlegs og til- gangslauss ofbeldis. Danska þjóðin er í huga Íslendinga í dag. Við stöndum með ykkur,“ sagði í færslu Katrínar. Þá sendu Margrét Þórhildur Danadrottning og Friðrik krón- prins frá sér yfirlýsingu þar sem þau sendu samúðarkveðjur til fórn- arlamba, aðstandenda þeirra og allra þeirra sem urðu vitni að árás- inni. „Ástandið kallar á samheldni og umhyggju og viljum við þakka lögreglu, viðbragðsaðilum og heil- brigðisyfirvöldum fyrir skjót við- brögð og árangursríkar aðgerðir,“ sagði í yfirlýsingu konungsfjöl- skyldunnar. Stórtónleikum frestað Tónleikar breska tónlistarmanns- ins Harry Styles áttu að fara fram í gærkvöldi í Royal Arena, sem er rétt hjá Field’s, en þeim var frestað er allir gestir voru sestir, eða um 20 þúsund áhorfendur. Þó nokkrir ís- lenskir aðdáendur Styles voru á leið á tónleikana en lögregla fylgdi gest- um í neðjanjarðarlestir sem voru lokaðar öðrum farþegum á meðan. Tónleikagestum, þeim sem urðu vitni að árásinni og aðstandendum þeirra var boðið upp á áfallahjálp. Að minnsta kosti þrír látnir - Nokkrir skothvellir heyrðust - 22 ára gamall Dani handtekinn - Líklega einn að verki - Rann- sakað sem hryðjuverk - Margir Íslendingar á svæðinu - Tvær íslenskar stúlkur við störf í verslun AFP/Ólafur Steinar Gestsson Skotárás Mikill viðbúnaður var við verslunarmiðstöðina langt fram eftir kvöldi og girti lögregla af stórt svæði. Field’s er á Amager í suðausturhluta Kaup- mannahafnar en aðgerðir lögreglu tóku til allrar borgarinnar. Vitnum að árásinni og aðstandendum þeirra var boðið upp á sálfræðiaðstoð í Kastrup. AFP/Ólafur Steinar Gestsson Mannfall Þrír létust í árásinni og þrír til viðbótar særðust alvarlega. Skotárás í Kaupmannahöfn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.