Morgunblaðið - 04.07.2022, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.07.2022, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Öllum ber að fara að lög- um og flest- um þykir það sjálf- sagt enda eru lögin eitt helsta límið sem heldur þjóðfélaginu saman. Þessi löghlýðni á við um ein- staklinga og líka svokallaða lög- aðila, enginn er undanskilinn og allir eru jafnir fyrir lögunum. En það hlýtur þó jafnvel að hvíla sérstök skylda á fyrir- tækjum og stofnunum í eigu rík- isins, þeim ber væntanlega enn frekar en öðrum að gæta sín í umgengni sinni við lögin. Um slík fyrirbæri gilda sérstök lög og meðal slíkra laga eru þau sem nefnd eru Lög um Rík- isútvarpið, fjölmiðil í almanna- þágu, hvorki meira né minna. Engin önnur ríkisstofnun er skreytt með slíkri yfirlýsingu, að hún sé „í almannaþágu“ þó að aðrar séu vitaskuld einnig ætl- aðar í almannaþágu. En um Ríkisútvarpið er gefin sérstök yfirlýsing um þetta í heiti lag- anna sem um það gilda, þannig að það hlýtur að þurfa að gæta alveg sérstaklega að sér, meðal annars í því sem snýr að um- gengni við lögin. En gerir Ríkis- útvarpið það? Gætir stofnunin sín sérstaklega að fara að lög- um? Ekkert bendir til að svo sé, nema síður sé. Ríkisútvarpið hefur um ára- bil og ítrekað orðið uppvíst að því að brjóta gegn þeim lögum sem um það gilda. Um þetta hefur verið fjallað áður hér á þessum vettvangi, meðal annars fyrir rúmu ári, og þar sagði: „Í gær birti Fjölmiðlanefnd ákvörðun nr. 1/2021 með þeirri „niðurstöðu að Ríkisútvarpið ohf. hafi brotið gegn 5. mgr. 41. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 með birtingu auglýsinga í tengslum við Krakkafréttir, sjónvarpsþátt sem er ætlaður börnum yngri en 12 ára og er sýndur á RÚV.“ Þetta brot, líkt og sum önnur, virðist stafa af því að Ríkis- útvarpið telur sjálfsagt að það dansi almennt á mörkum hins löglega, sé sífellt að láta reyna á mörkin í stað þess að taka þá af- stöðu að vera örugglega réttum megin laganna, eins og sjálfsagt er að krefjast af opinberri stofnun sem árlega fær millj- arða króna frá skattgreið- endum. Önnur nýleg dæmi um brot Ríkisútvarpsins tengd auglýs- ingum og kostun eru þegar Fjölmiðlanefnd komst að þeirri niðurstöðu að Ríkisútvarpinu hefði verið óheimilt að fá kostun á sjónvarpsþátt og sömuleiðis að því hefði verið óheimilt að rjúfa þátt með auglýsingum. Enn fremur hefur Fjölmiðla- nefnd komist að þeirri niður- stöðu að Ríkisútvarpið hafi brotið gegn lögum um hámarks- magn auglýsinga á hverri klukkustund. Loks má nefna – og er þetta þó fjarri því tæmandi upp- talning – að Ríkis- útvarpið var sektað vegna „ófullnægj- andi birtingar gjaldskrár fyrir auglýsingar og kostanir í tengslum við heimsmeistaramót karla í knattspyrnu, HM 2018 á RÚV“. Síðastnefnda brotið var mjög alvarlegt gagnvart öðrum á markaðnum þó að það hljómi sakleysislega í niðurstöðu Fjöl- miðlanefndar. Þá var sektin sem Ríkisúvarpinu var gert að greiða smávægileg miðað við tjónið sem stofnunin olli öðrum á markaðnum og miðað við þann ávinning sem hún hafði af lög- brotinu. Þetta er raunar gegn- umgangandi með þær sektir sem lagðar eru á stofnunina, þær eru það lágar að þær hafa engin áhrif á brotaviljann.“ Frá því þetta var skrifað hef- ur Ríkisútvarpið haldið upp- teknum hætti. Það beitir sér af hörku í samkeppninni á auglýs- ingamarkaði eins og sést til dæmis á því að auglýsinga- tekjur þess jukust um fjórðung á milli ára. Þær aðferðir sem Ríkisútvarpið beitir í þeirri samkeppni eru óeðlilegar og í engu samræmi við yfirburða- stöðu þess í skjóli margra millj- arða króna ríkisstuðnings, en þær eru þó líklega að mestu réttum megin laganna. En Ríkisútvarpið hefur líka haldið áfram að brjóta gegn lög- unum sem um það gilda og verið sektað fyrir að minnsta kosti tvö slík tilvik á síðustu mán- uðum. Í október síðastliðnum var Ríkisútvarpið sektað fyrir að hafa brotið „gegn 5. mgr. 41. gr. laga um fjölmiðla með birt- ingu auglýsinga beint á undan dagskrárliðnum Sögur – verð- launahátíð barnanna,“ og í lið- inni viku var stofnunin sektuð fyrir að brjóta „gegn 2. mgr. 7. gr. laga um Ríkisútvarpið nr. 23/2013 með kostun á þáttunum Tónaflóð“. Það hlýtur eitthvað að vera að hjá ríkisstofnun sem árum saman hegðar sér með þeim hætti sem Ríkisútvarpið gerir. Það leynir sér ekki að mikið vantar upp á viljann til að fara að lögum og almennt að gæta hófs í umgengni sinni á mark- aði. Engu breytir hverjir valdir eru til forystu stofnunarinnar og þá hlýtur vandinn að liggja í þeirri menningu sem ríkir innan hennar og því viðhorfi sem þar er að finna um stöðu stofnunar- innar. Þar hlýtur almennt við- horf að vera að stofnunin sé í raun hafin yfir lög. Þetta er við- horf sem ekki virðist unnt að laga með minniháttar aðgerðum og þá er ekkert annað eftir en að gera grundvallarbreytingar á starfseminni og fjármögnun hennar, eða hreinlega að leggja stofnunina niður. Ríkisútvarpið telur sig hafið yfir lög. Á því verður að taka} Virðingarleysi við lögin N ú styttist óðum í að stelpurnar okkar spili sinn fyrsta leik á Evrópumóti kvenna í knatt- spyrnu sem fram fer í Bret- landi. Í tilefni af þátttöku Ís- lands á mótinu skipuleggur menningar- og viðskiptaráðuneytið og mennta- og barna- málaráðuneytið lestrarhvatningarherferðina Tími til að lesa sem ætluð er fyrir lesendur á grunnskólaaldri í sumar. Hvatningin er skemmtileg og innblásin af þátttöku stelpnanna okkar á EM. Að þessu sinni snýst lestrarhvatningin um bæði lestur og sköpun. Börn og foreldrar gera með sér samning um ákveðinn mínútufjölda í lestri fyrir hvern leik og hvert mark sem stelpurnar okkar skora á EM. Þá geta krakkar einnig tekið þátt í að skapa og skrifa sögu til þess að senda inn – en sagan þarf að innihalda bolta. Nánari upp- lýsingar er að finna á vefsíðunni www.timitiladlesa.is. Mikilvægi lesturs og lesskilnings er ótvírætt. Við höf- um lagt á það ríka áherslu síðustu ár að bæta læsi, ekki síst hjá börnunum okkar. Orðaforði og lesskilningur eykst með auknum lestri og því er ómetanlegt fyrir börn að lesa, taka glósur og spyrja út í orð sem þau þekkja ekki. Orðaforði barna skiptir miklu máli fyrir vellíðan og árangur í skóla og býr þau undir virka þátttöku í sam- félaginu. Með aukinni menntun eykst sam- keppnishæfni þjóðarinnar og geta hennar til að standa undir eigin velferð. Sumarið er tími samverunnar, útivistar og leikja en það er mikilvægt að minna á lest- urinn líka. Það er staðreynd að ef barn les ekkert yfir sumartímann getur orðið allt að þriggja mánaða afturför á lestrarfærni þess í sumarfríinu. Góðu fréttirnar eru þó að það þarf ekki mikið til að börn viðhaldi færninni eða taki jafnvel framförum. Rannsóknir sýna að til þess að koma í veg fyrir þessa afturför dugar að lesa aðeins 4-5 bækur yfir sumarið eða lesa að jafnaði tvisvar til þrisvar í viku í um það bil 15 mínútur í senn. Tími til að lesa er ein leið til þess að hvetja börn til lesturs en gleymum því ekki að bestu fyrirmyndir barnanna þegar kemur að lestri eru foreldarnir. Það er vænlegra til árangurs ef fleiri taka sér bók í hönd á heimilinu en börnin. Sem fyrr læra þau það sem fyrir þeim er haft og þess vegna þurfum við öll að muna eftir því að lesa líka. Setjum lesturinn á dag- skrá í sumar, samhliða því að hvetja stelpurnar okkar áfram í Bretlandi með ráðum og dáð. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Tími til að lesa! Höfundur er menningarráðherra og varaformaður Fram- sóknar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is F yrir helgi sögðu danskir fjölmiðlar af nýfenginni niðurstöðu svokallaðrar minkanefndar danskra stjórnvalda, „Minkkommissionen“. Fjallaði skýrsla nefndarinnar um afdrifaríka fyrirskipun forsætisráð- herrans Mette Frederiksen er lét þau boð út ganga á blaðamanna- fundi 4. nóvember 2020 að alla minka á dönskum minkabúum skyldi aflífa. Brást Frederiksen með þessu við þeim tíðindum að nýtt og skætt afbrigði kórónuveirunnar, sem þá geisaði hve gerst, hefði stungið sér niður í 200 minkabúum landsins og var óttast að veiran smitaðist frá minkunum yfir í mannfólk. Niðurstaða nefndarinnar er hins vegar að tilskipunin, sem leiddi til þess að líklega á sautjándu millj- ón minka var sálgað, hafi verið „verulega afvegaleiðandi“ auk þess sem engin heimild reyndist í dönsk- um lögum fyrir svo umfangsmikilli aðgerð. Leggur minkanefndin það til grundvallar í skýrslu sinni að ráðherra hafi ekki verið kunnugt um þennan skort á lagaheimild og ekki áttað sig á honum fyrr en mörgum dögum síðar. Tók ekki afstöðu til lögbrots „Er það því niðurstaða nefnd- arinnar að yfirlýsing Mette Freder- iksen á blaðamannafundinum 4. nóvember 2020 hafi hlutlægt séð verið verulega afvegaleiðandi en huglægt hafi henni ekki verið það ljóst né þar verið um ásetning að ræða. Í ljósi þessa tekur nefndin ekki afstöðu til þess hvort um stór- kostlegt gáleysi hafi verið að ræða,“ segir í niðurstöðukafla skýrslunnar. Kveður nefndin þar með ekki upp úr með hvort Frederiksen hafi gerst sek um brot á góðri ráðs- mennsku, það er að segja gegn lög- um sem mæla fyrir um ráðherra- ábyrgð á embættisverkum. Reynist svo vera má sækja Frederiksen til saka fyrir Landsdómi Danmerkur en áður þyrfti þingið að samþykkja að rannsókn fari fram sem ákvarð- ar hvort um slíkt brot sé að ræða. Ekki er talið líklegt að þingið blási til þeirrar rannsóknar eftir að stuðningsflokkar dönsku rík- isstjórnarinnar, Sósíalíski vinstri- flokkurinn og Radikale venstre, lýstu því yfir á laugardaginn að þeir styddu ekkert það ferli sem verða mætti til þess að Lands- dómur kæmi saman vegna minka- málsins. Þykir þar með útilokað að meirihluti fengist í þinginu fyrir landsdómsrannsókn en hins vegar lét Sofie Carsten Nielsen, leiðtogi Radikale venstre, þau orð falla að flokkur hennar krefðist þess að danska ríkisstjórnin efni til þing- kosninga að loknum sumarfríum, í seinasta lagi þingsetningardaginn 4. október. Muni flokkurinn að öðrum kosti leggja fram vantrauststillögu gegn stjórninni. Bar af sér sakir Í skýrslu minkanefndarinnar, sem er 1.700 blaðsíðna löng, fá tíu háttsettir embættismenn þungar ávirðingar vegna minkamálsins. Þrátt fyrir að Frederiksen hafi beð- ist formlega afsökunar á þætti sín- um í málinu sýknaði hún sjálfa sig á blaðamannafundi sem hún hélt á föstudag við fimmta ráðherra dönsku ríkisstjórnarinnar með svo- felldum orðum: „Ég legg áherslu á að nefndin staðfestir það sem ég hef sjálf hald- ið fram allan tímann, nefnilega það að mér sem forsætisráðherra hafi ekki verið kunnugt um að laga- heimild skorti fyrir fjöldaaflífun. Ég hef staðið við mína skyldu gagnvart sannleikanum og ásetn- ingur minn var í engu að lýsa ein- hverju yfir sem rangt reyndist.“ Náði ríkisstjórn Danmerkur samkomulagi í þinginu í byrjun árs í fyrra um að greiða minkabændum 18,7 milljarða danskra króna, að núvirði tæplega 349 milljarða ís- lenskra, í bætur fyrir þær búsifjar sem þeir máttu þola en danskur minkaiðnaður hafði um árabil verið í fremstu röð í heiminum áður en áfallið reið yfir í nóvember 2020. Krafa um kosningar eftir minkaskýrslu Ekki dugði minna en leyniþjónusta danska hersins eftir að lögregla gafst upp á að kalla fram förguð SMS-skilaboð síðla árs í fyrra. Mat minkanefndin það sem afgerandi þátt í rannsókn sinni að SMS-skeyti, sem farið höfðu á milli forsætisráðherra og nánustu samstarfsmanna hennar, yrðu dregin fram í dags- ljósið. Taldi nefndin skilaboðin geta varpað ljósi á raun- verulega vitneskju þeirra sem ákvarðanir tóku um minkaslátrunina árið áður og lögðu tæknimenn lög- reglu nótt við dag til að endurheimta þessi gögn af símakortum, án árangurs. Þetta tókst loks í janúar í ár en áður hafði Frederiksen forsætisráð- herra fengið að svara fyrir eyðingu skilaboðanna fyrir þingnefnd. FÖRGUÐ SMS VANDFUNDIN Í SÍMA RÁÐHERRANS Mette Frederiksen Herinn fenginn í málið AFP/Ritzau/Scanpix/Mads Claus Rasmussen Svört skýrsla Minkanefndin danska leggur skýrslu sína um stórfellt minkadráp vegna kórónuveirunnar árið 2020 fram í þinginu á fimmtudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.