Morgunblaðið - 04.07.2022, Side 29
DAGMÁL
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Það var ekki alltaf augljóst að Sal-
óme Katrín Magnúsdóttir yrði tón-
listarkona. Hún var vissulega í kór á
Ísafirði sem barn, Perlukórnum
svokallaða, og sótti píanó- og dans-
tíma í Listaskóla Rögnvaldar Ólafs-
sonar en var að eigin sögn nokkuð
treg til að sinna tónlistinni í æsku.
„Svo þegar ég var 17 ára þá sagði
mamma mín: „Jæja, Salóme, nú
ferð þú að læra söng,“ og ég var
bara: „Mmm, ég held ekki.“ Þá
hafði ég ekkert verið að syngja síð-
an ég var barn. Vinkona hennar var
að kenna og þær fengu þá hugmynd
að það væri gott fyrir mig að fara í
söngnám. Og ég gerði það. Mjög
hlýðin.“
„Það kom ekkert hljóð“
Söngtímarnir gengu svolítið brös-
uglega til að byrja með.
„Fyrstu fimm söngtímana söng
ég ekki neitt, við spjölluðum bara.
Ég þorði það bara ekki, það kom
ekkert hljóð. Ætli það hafi ekki ver-
ið í fimmta tímanum eða eitthvað,
þá gekk eitthvað upp. Þá kom ein-
hver tónn. Og síðan þá hef ég bara
verið mjög mikið að syngja.
Það er mjög mikil gróska á Ísa-
firði, mjög mikið um að vera og mik-
ið af skapandi fólki. Þannig að ég er
mjög heppin að vera þaðan og verð
alltaf mjög þakklát kennurunum
mínum,“ segir Salóme.
„Ég hafði alltaf mjög mikinn
áhuga á tónlist. Bara frá því ég var
mjög lítil. Ég var alltaf að hlusta.
Átti svona iPod Classic, algjörir
hlunkar. Hann var alveg stútfullur
af tónlist.
Þannig að ég átti mér algjörlega
drauma um að semja tónlist. En það
gerðist kannski fyrir alvöru að ég
fór að syngja og spila á sama tíma,
þá hef ég verið bara 21 eða 22 ára.
Þannig að það er ekkert svo langt
síðan. Það tók mig mjög langan
tíma að ná að samhæfa þetta, að
syngja og spila á sama tíma. En svo
gekk það bara upp og núna er ég
alltaf að gera það.“
Nú er það að koma fram á sviði
og syngja fyrir framan áhorfendur
sá hluti þess að vera tónlistarkona
sem Salóme nýtur hvað mest. „Mér
finnst eiginlega allt hitt erfitt.“
Hræðist sjóinn og elskar hann
Salóme gaf út sína fyrstu plötu,
stuttskífuna Water, fyrir tveimur
árum. Hún var gefin út í Covid og
segist Salóme hafa setið eftir með
svolítið „tómt hjarta“ vegna þess að
hún hafi ekki getað haldið útgáfu-
tónleika eða hitt fólk á þessum tíma.
En platan hlaut góðar viðtökur og
Salóme hlaut meðal annars
Kraumsverðlaunin fyrir verkið.
Hún semur textana sína sjálf og
spurð út í umfjöllunarefni plötunnar
segir hún: „Þetta er allt mjög til-
finningadrifið. Titillag plötunnar,
„Water“, fjallar um tilfinningar og
ég set þær í samhengi við náttúruna
og hvernig tilfinningarnar togast á
innra með okkur alveg eins og
tunglið togar í sjóinn. Og um hvern-
ig sjórinn getur gefið en líka tekið.“
Vatn er Salóme afar hugleikið. „Á
Ísafirði var sjórinn bara í bakgarð-
inum og ég eyddi ótrúlega miklum
tíma við sjóinn. Hann er það sem ég
hræðist hvað mest í lífinu en elska
líka mest. Eins og Þales sagði: „Allt
er vatn.““
Næsta stóra verkefnið sem
Salóme tók sér fyrir hendur var
samstarfsverkefni þriggja tónlistar-
kvenna. Hún gaf út plötuna While
We Wait ásamt tónlistarkonunum
Rakel og Zaar, Rakel Sigurðar-
dóttur og hinni dönsku Söru Flindt.
Þær kalla plötuna splittskífu enda
skiptu þær henni á milli sín. Hver
þeirra á tvö lög á plötunni auk þess
sem þær sömdu titillagið saman.
„Þetta hefur verið ótrúlega mikið
ævintýri. Við spiluðum á Ísafirði,
Akureyri og í Fríkirkjunni og svo
erum við að fara til Danmerkur í
tónleikaferðalag.“
Eins og að reka fyrirtæki
„Það er svo gott að geta verið að
vinna saman, sérstaklega þegar
maður er ekki í hljómsveit, að fá
tækifæri til þess að vinna með öðr-
um svona náið,“ segir Salóme. Það
sé öðruvísi að gefa plötu út einn.
„Þegar maður er að gefa út svona
plötu þá er svolítið eins og maður sé
með fyrirtæki. Maður þarf að vera
listrænn stjórnandi, sjá um bók-
haldið, þarf að passa að allt stemmi,
markaðsstjóri, ljósmyndari, bara
allt sem hugsast getur. Ég var samt
svo heppin að vera með ótrúlega
gott bakland og það voru allir rosa
mikið með mér í liði svo ég var
kannski ekkert alveg ein. En
kjarnaábyrgðin fellur alltaf á mig.
Þannig að það gat verið svolítið ein-
manalegt. Líka ef maður er svona
nett stressuð týpa eins og ég, þá er
auðvelt að finnast maður bara vera
alveg í ruglinu. En ég held að þetta
hafi gengið alveg ágætlega,“ segir
tónlistarkonan.
„Eitt sem fólk veit ekki þegar
maður er að gefa út svona plötu er
hvað maður þarf að senda ótrúlega
mikið af tölvupóstum. Þannig að ég
segi bara: best að byrja að æfa sig
ef þú ætlar að verða tónlistar-
maður.“
Salóme hefur unnið með fleiri
tónlistarmönnum, til dæmis K.Óla,
auk þess sem hún hefur verið að
prófa sig áfram með nýrri hljóm-
sveit.
„Í þeim hring sem ég er í er mjög
góður andi. Það er mjög gaman að
vinna saman og fólk er mjög opið
fyrir því. Og ég held að tónlistar-
senan sé mjög mikið að blómstra
núna og eftir Covid eru allir bara að
taka af skarið. Það er bara svo ótrú-
lega mikið af fólki sem er að gera
magnaða hluti. Og ég hlakka til að
vera hluti af þessu og fyljast með
þessu í framtíðinni. “
Spurð út í framtíðarmarkmið seg-
ir Salóme að sig hafi lengi dreymt
um að búa til tónlist fyrir dansverk.
„Mér þykir mjög vænt um þá list og
ég myndi vilja taka þátt í henni. Svo
langar mig bara að halda áfram að
spila og semja og fylgja hjartanu.
Kannski endar maður á að gera
eitthvað allt annað, en alla vega tón-
list í bili.“
Salóme Katrín var gestur Dag-
mála, frétta- og dægurmálaþáttar
Morgunblaðsins, sem aðgengilegur
er áskrifendum á vefnum mbl.is.
„Ótrúlega mikið ævintýri“
- Salóme Katrín hlýddi móður sinni og fór í söngtíma þegar hún var 17 og hefur verið að syngja og
spila síðan - Gaf út plötuna Water fyrir tveimur árum og splittskífuna While We Wait fyrr á árinu
Morgunblaðið/Kristófer Liljar
Samvinna „Það er svo gott að geta verið að vinna saman, sérstaklega þegar maður er ekki í hljómsveit, að fá tæki-
færi til þess að vinna með öðrum svona náið,“ segir Salóme sem gaf út plötu ásamt tónlistarkonunum Rakel og Zaar.
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
96%
Empire
The Playlist BBC The sun
Total FilmRogerEbert.com
79%
82%
HJÖRTUR JÓHANN JÓNSSON ALDÍS AMAH HAMILTON AHD TAMIMI GUÐJÓN DAVÍÐ KARLSSON
LÍSA PÁLSDÓTTIR HARALD G. HARALDS KATRÍN HALLDÓRA SIGURÐARDÓTTIR
“THE BEST MOVIE OF THE YEAR” “AN EPIC ADVENTURE”
“A CROWD-PLEASEING BLAST” “THE MOVIE EVENT OF THE YEAR”
“A MOVIE LIGHT YEARS AHEAD OF IT´S TIME”
100%