Morgunblaðið - 15.07.2022, Side 6

Morgunblaðið - 15.07.2022, Side 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2022 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Þetta er einfaldlega liður í því að tryggja enn frekar ásamt öðru að Bandaríkin séu í stakk búin til þess að standa við skuldbindingar sínar gagnvart Íslandi í samræmi við varnarsamning- inn á milli land- anna,“ segir Hjörtur J. Guð- mundsson, sagn- fræðingur og alþjóðastjórn- málafræðingur, í samtali við Morgunblaðið. Auglýsing frá Ríkiskaupum birtist í fjölmiðlum á miðvikudaginn fyrir hönd utanrík- isráðuneytisins og varnarmálasviðs Landhelgisgæslunnar þar sem vak- in var athygli á upplýsingabeiðni „í tengslum við fyrirhugað útboð á byggingu vöruhúsa fyrir bandaríska flugherinn á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli“. Hefur flugher- inn óskað eftir framlagi upp á 94 milljónir bandaríkjadala á fjárlög- um næsta árs vegna fram- kvæmdanna eða sem nemur tæp- lega 13 milljörðum íslenskra króna. Hjörtur hefur meðal annars fjallað um fyrirhugaðar fram- kvæmdir, sem á ensku kallast Deployable Air Base Systems – Fa- cilities, Equipments and Vehicles (DABS-FEV), í skrifum sínum um varnarmál, en hann sérhæfði sig meðal annars í öryggis- og varn- armálum í meistaranámi sínu í al- þjóðasamskiptum. Varanleg viðvera ekki stefnan Nokkuð hefur verið rætt um það að undanförnu í umræðum um varnarmál Íslands hvort þörf sé á varanlegri viðveru varnarliðs hér á landi, líkt og raunin var fram til ársins 2006 þegar Bandaríkjamenn lokuðu varnarstöðinni á Keflavík- urflugvelli, í ljósi stríðsins í Úkra- ínu og vaxandi hernaðarlegra um- svifa Rússa í Norður-Atlantshafi. Hjörtur segir að mikilvægt sé að opin og hreinskilin umræða eigi sér stað um öryggis- og varnarmál þjóðarinnar. Hann bendir hins veg- ar á að bæði íslenskir og bandarísk- ir forystumenn hafi ítrekað lýst því yfir að engin áform séu um var- anlega viðveru varnarliðs hér á landi. Ekki sé heldur stefnt að henni með fyrirhuguðum fram- kvæmdum. „Hins vegar liggur fyrir að Bandaríkjamenn eru samkvæmt varnarsamningnum við Ísland skuldbundnir til þess að sjá til þess að ávallt sé hér á landi nauðsyn- legur búnaður svo tryggja megi varnir þess á hverjum tíma í sam- ráði við íslensk stjórnvöld. Þar verður eðli málsins samkvæmt að horfa til allra mögulegra sviðs- mynda.“ Kæmi þannig upp sú staða á ein- hverjum tímapunkti í framtíðinni að nauðsyn væri talið á tímabundinni viðveru varnarliðs hér á landi til lengri eða skemmri tíma, til þess að tryggja öryggi Íslands, yrðu Bandaríkin vitanlega að vera undir það búin. Hjörtur bendir á að slíkar aðstæður gætu hæglega komið upp með skömmum eða jafnvel engum fyrirvara og svigrúmið til þess að bregðast við verið í samræmi við það. Búnaður verði til staðar Fyrirhuguð uppbygging snúist þannig einfaldlega um það að standa við umræddar skuldbinding- ar. Bandaríkjamenn hafi nýtt þetta úrræði víðar í heiminum þar sem ekki sé gert ráð fyrir varanlegri viðveru. Lykilatriðið sé að tryggja að nauðsynlegur búnaður, sem ann- ars tæki mikla fyrirhöfn að flytja til landsins, sé þegar til staðar í geymslum á staðnum. Meðal þess búnaðar sem gjarnan sé um að ræða séu slökkviliðsbif- reiðar, sjúkrabifreiðar, eldsneytis- bifreiðar, lyftarar og það sem nauð- synlegt sé til þess að hægt sé að koma t.a.m. upp sjúkraaðstöðu og mötuneyti. Ekki sé hins vegar um að ræða vopn eða skotfæri. Hver pakki, eða „kit“ á ensku, sé annars sniðinn út frá aðstæðum á hverjum stað. „Það má líkja þessu við mikilvægi brunahana þegar hættan á eldsvoða er annars vegar. Það er vitanlega talsvert seint í rassinn gripið að fara að koma slíkum búnaði upp þegar allt stendur í ljósum logum. Þá skiptir auðvitað öllu að geta brugðist hratt og örugglega við. Um það snúast þessar fyrirhuguðu framkvæmdir fyrst og síðast.“ „Má líkja þessu við brunahana“ - Ríkiskaup auglýsa fyrirhugað útboð á byggingu vöruhúsa fyrir bandaríska flugherinn á öryggis- svæðinu á Keflavíkurflugvelli - Alþjóðastjórnmálafræðingur kallar eftir opinni umræðu um varnarmál Morgunblaðið/Árni Sæberg Risar Tvær þyrlur af gerðinni Sikorsky CH-53E Super Stallion sáu um að flytja bandaríska landgönguliða til og frá landinu á heræfingu sem haldin var árið 2018. Síðan þá hafa margar heræfingar verið haldnar hér á landi. Hjörtur J. Guðmundsson Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Sólheimar eru vagga lífrænnar ræktunar og brautryðjendur á því sviði. Þeir hafa verið það í 92 ár og verða hér eftir sem hingað til. Það hefur aldrei verið í myndinni að hætta lífrænni framleiðslu hér á Sól- heimum,“ segir Kristín Björg Al- bertsdóttir, fram- kvæmdastjóri Sólheima í Grímsnesi. Guðmund Ár- mann Pétursson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Sólheima, skrif- aði aðsenda grein sem birtist í Morgunblaðinu 13. júlí. Þar segir hann að Sólheimar séu að hætta líf- rænni ræktun og bætir við: „Rækt- un getur ekki talist lífræn nema vottuð sé.“ Þess má geta að Guð- mundur situr í stjórn Vottunarstof- unnar Túns. Kristín telur að tilefni greinar Guðmundar sé að aðalfundur Sól- heima samþykkti í vor að heimila notkun á svokölluðum sveppamassa til áburðar. „Sveppamassi er íslensk fram- leiðsla. Þetta er lífrænn áburður sem er framleiddur úr hænsnaskít og mómold. Vottunarstofan Tún hef- ur ekki viðurkennt þennan áburð. Því munum við fara úr vottunarferli Túns,“ segir Kristín. Hún segir að margir framleiðendur lífrænna mat- væla séu hættir viðskiptum við Tún. Þörf fyrir meiri áburð „Þessi sveppamassi var notaður hér á Sólheimum alveg til 2015 þeg- ar hann féll ekki að skilyrðum Vott- unarstofunnar Túns. Við sáum okk- ur knúin til að nota meiri áburð til að auka framleiðsluna. Notkun sveppa- massa hefur gefist vel í ræktun og því var ákveðið að hefja aftur notkun hans. Þetta verður eftir sem áður líf- ræn framleiðsla,“ segir Kristín. Notkun sveppamassans er ekki haf- in á Sólheimum og því eru allar vörur frá þeim enn vottaðar af Túni. Á Sólheimum eru aðallega rækt- aðar nokkrar tegundir af tómötum en einnig paprikur, eggaldin, agúrk- ur og fleira. Vörurnar eru seldar í nokkrum versl- unum Bónuss á Suð- vesturlandi og einnig í verslunum Samkaupa og Fjarðarkaupum. Ræktun á á vínberj- um og jarðarberjum er að hefjast. Auk þess eru ræktaðir garðávextir sem eru notaðir í mötu- neyti Sólheima. Áfram lífræn ræktun á Sólheimum - Aðalfundur samþykkti að nota aftur sveppamassa til áburðar líkt og lengi var gert á Sólheimum - Lífrænn áburður en ekki vottaður - Því mun framleiðslan ekki lengur fá vottun frá vottunarstofu Ljósmynd/solheimar.is Sólheimar Á Sólheimum er vagga lífrænnar ræktunar og ræktuð eggaldin, tómatar, agúrkur og fleira. „Ef svepparotmassi er byggður á hráefnum sem eru leyfileg samkvæmt reglugerðum þá er heimilt að nota hann við lífræna ræktun,“ segir Gunnar Á. Gunn- arsson, framkvæmdastjóri Vott- unarstofunnar Túns. „Ef hann inniheldur hins vegar hráefni úr starfsemi sem ekki er heimilt að nota þá er ekki unnt að nota hann.“ Gunnar segir að það hafi ekki verið rannsakað alveg upp á síð- kastið hvað er í rotmassanum. Hann segir að hluti af hráefni sem er notað til að búa til þenn- an annars ágæta svepparot- massa komi frá stórbúum í kjúklingaframleiðslu þar sem þéttleiki fugla er umfram evr- ópsk viðmið um lífræna fram- leiðslu. Gunnar segir það vera tilgreint í reglugerðum hvaða hráefni og áburðarefni má nota við framleiðslu á lífrænum áburði, þar á meðal efni frá hefðbundnum bú- skap. „En innihalds- efnin mega ekki vera frá verk- smiðjubúskap. Við förum bara eftir Evrópureglugerð- um,“ segir Gunnar. Ekki er sama hvaðan inni- haldið kemur VOTTUNARSTOFAN TÚN Gunnar Á. Gunnarsson Kristín Björg Albertsdóttir Morgunblaðið/RAX Grímsnes Fallegt á Sólheimum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.