Morgunblaðið - 15.07.2022, Side 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2022
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
Sérhæfð þjónusta fyrir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
544 5151
tímapantanir
Guðni Einarsson
Sigurður Bogi Sævarsson
Í Hafnarfirði er nú, rétt eins og á
höfuðborgarsvæðinu öllu, mikil eftir-
spurn eftir lóðum undir íbúðarhús.
Fyrirspurnir eru margar og sam-
kvæmt því þarf að halda vel á spöð-
unum í allri skipu-
lagsvinnu, sam-
kvæmt svörum
sem fengust frá
Hafnarfjarðarbæ.
Uppbygging er
til dæmis langt
komin í Skarðs-
hlíðarhverfinu og
Vallahverfið orðið
fullbyggt. Áætlað
er að á Völlumum,
í Skarðshlíð og
Hamranesi verði um 15 þúsund íbú-
ar.
Nýju hverfin rjúka upp
„Hamraneshverfið er langt á veg
komið og gengur mjög vel að byggja
þar,“ segir Valdimar Víðisson, for-
maður bæjarráðs Hafnarfjarðar og
verðandi bæjarstjóri síðar á kjör-
tímabilinu. Meðal annars er Bjarg
íbúðafélagið að byggja þar 150 íbúðir
og er áætlað að hluti af þeim verði
kominn í notkun um næstu áramót.
Nýr grunnskóli í Hamranesi er á
teikniborðinu og á hann að taka við
nemendum úr hverfinu.
„Ásland 4 er næsta íbúðasvæði
sem verður úthlutað. Þar er gert ráð
fyrir einbýlis- og parhúsum, rað-
húsum og litlum fjölbýlishúsum með
sérinngöngum og lítilli sameign.
Undirbúningsvinna stendur yfir og
ég á von á að við getum byrjað að út-
hluta þar í haust,“ segir Valdimar.
Gert er ráð fyrir að í Áslandi 4
verði um 550 íbúðir og fjöldi íbúa er
áætlaður um 1.400. Hverfið verður í
suðurhlíðum Ásfjalls og blasir því við
sólu. Áhersla verður lögð á að hverfið
tengist innbyrðis með grænum svæð-
um eða trjábeltum. Í þeim verða
göngustígar og fjöldi trjáa mun
mynda gott skjól. Hin nýja Ásvalla-
laug er ekki mjög langt frá þessu
nýja hverfi.
Vatnshlíð er nýtt hverfi sem verð-
ur byggt upp í framhaldi af Áslandi 4.
Vatnshlíðarhverfið mun liggja aust-
an við nýju Ásvallabrautina og norð-
an við Hamraneshverfið.
„Vatnshlíð er síðasta nýja bygg-
ingarlandið fyrir íbúðabyggð sem
Hafnarfjörður hefur yfir að ráða,“
segir Valdimar. „Við áætlum að
þeirri uppbyggingu verði lokið fyrir
árið 2040. Þess vegna er mjög mik-
ilvægt að svæðisskipulag höfuðborg-
arsvæðisins verði tekið upp til þess
að Hafnarfjörður fái nýtt bygging-
arland. Það þarf að gera sem allra
fyrst. Við þurfum að líta á allt höf-
uðborgarsvæðið sem eina heild.“
Mikil ásókn í iðnaðarlóðir
Mjög mikið er spurt um lóðir fyrir
atvinnustarfsemi í Hafnarfirði.
Hellnahverfið syðst í bænum er í
blómlegri uppbyggingu, að sögn
Valdimars. „Það hefur tekist ljóm-
andi vel síðustu ár að úthluta at-
vinnulóðum og fá fyrirtæki til að
byggja upp starfsemi sína hér í
Hafnarfirði,“ segir Valdimar. „Meiri-
hlutinn í bæjarstjórn hefur ákveðið
að stofna starfshóp sem fær það
verkefni að móta stefnu um atvinnu-
lóðir í bænum. Til dæmis hvers konar
starfsemi á að vera á hinum ýmsu at-
vinnusvæðum. Þessi vinna á að fara
af stað núna í haust.“
Svipur er nú að komast á upp-
byggingu á svonefndum Dvergsreit
undir Hamrinum í Hafnarfirði. Í
byggingum þar, sem nú eru í smíð-
um, verða 23 íbúðir í lágreistu fjöl-
býli, sem reiknað er með að fari í sölu
fljótlega. Fyrirtækið GG-verk byggir
á svæðinu eftir þeirri áherslu að
tengja með fallegum hætti nýja
byggð við hina eldri.
Ný hús tengd við eldri byggð
Við mótun og hönnn er leitast við
að fella húsin að aðliggjandi byggð
við Suðurgötu, Lækjargötu og
Brekkugötu viðvíkjandi stærðar-
hlutföllum, formum og efnisvali.
Deiliskipulag svæðsins hefur raunar
það inntak að endurheimta fyrra yf-
irbragð svæðsins.
Einnig liggur fyrir samþykkt
skipulag Hafnarfjarðarbæjar um
byggingar á þéttingarsvæðum í bæn-
um, hvar verða um 4.000 íbúðir þar
sem gert er ráð fyrir um 10.000 íbú-
um. Þarna eru undir svæði við Flata-
hraun, Flensborgarhöfn, á Ásvöllum,
Hjallabraut, Setberg og Suðurgötu,
svo nokkrir staðir séu nefndir.
Mikið byggt í Hafnarfirðinum
- Um 15.000 íbúar í Vallahverfi, Skarðshlíð og Hamranesi fullbyggðum - Áslandi 4 úthlutað í haust
- Vatnshlíð síðasta lausa byggingarlandið fyrir íbúðir - Mikið spurt um lóðir fyrir atvinnuhúsnæði
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Dvergsreitur Í miðbænum eru í smíðum 23 íbúðir í lágreistum fjölbýlishúsum sem taka mið af eldri byggð. Reiknað er með að þær fari fljótlega í sölu.
Skarðshlíð Þar eru einbýlishús, parhús, fjölbýlishús og
nýr skóli. Uppbygging er mjög langt komin.
Hamraneshverfi Þar byggir m.a. Bjarg íbúðafélag 150
íbúðir og verður hluti þeirra tekinn í notkun á þessu ári.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Valdimar
Víðisson
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, há-
skóla-, iðnaðar- og nýsköpun-
arráðherra, varð í hádeginu í gær
fyrst til þess að kaupa bjór beint frá
brugghúsinu Smiðjunni í Vík í Mýr-
dal. Smiðjan var fyrsta brugghús
landsins sem fékk í hendurnar leyfi
til þess að selja bjór á framleiðslu-
stað í samræmi við breytt lög um
smásölu áfengis.
„Þetta er stórmerkilegur dagur.
Það hefur verið óleyfilegt í 110 ár
að annað en ríkið geti selt almenn-
ingi áfengi og fyrir okkur er þetta
stórt skref,“ sagði Sveinn Sigurðs-
son, einn stofnenda Smiðjunnar, við
mbl.is í gær.
Áslaugu Örnu var boðið þar sem
hún var fyrst til að leggja fram
frumvarp um breytingu á smásölu
áfengis. Bjórinn sem hún keypti ber
heitið „Er of snemmt að fá sér?“
„Er of snemmt að fá sér“
- Áslaug Arna keypti fyrsta bjórinn beint af Smiðjunni í Vík
Bjór Áslaug Arna keypti í gær fyrstu bjórkippuna af eigendum Smiðjunnar
í Vík í Mýrdal, Þóreyju Richard Úlfarsdóttur og Sveini Sigurðssyni.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson