Morgunblaðið - 15.07.2022, Page 11
BAKSVIÐ
Tómas Arnar Þorláksson
tomasarnar@mbl.is
„Þetta var draumur sem breyttist
fljótt í martröð,“ segir erlendi starfs-
maðurinn, sem vann mánaðarlanga
vinnu fyrir Hótel Jazz í Reykja-
nesbæ án þess að fá greidd nein laun,
í samtali við Morgunblaðið. Hann
segist hafa unnið myrkranna á milli
og í kjölfarið verið kastað út á göt-
una.
Maðurinn hefur sterkan grun um
að fleiri starfsmenn hjá hótelinu séu í
svipaðri ef ekki verri stöðu en hann
og bætir við að hann hafi orðið var
við fólk á hótelinu sem hann grunar
að fái ekki greidd laun. Starfsmað-
urinn er breskur karlmaður á
miðjum aldri. Hann er fyrrverandi
atvinnumaður í golfi og var áður trú-
lofaður íslenskri konu. Hann sagði
sögu sína í samtali við Morgunblaðið,
en vildi að svo stöddu ekki koma
fram undir nafni.
Svik eftir 20 ára vináttu
Maðurinn segist vera í algjöru
áfalli eftir liðna atburði. Hann hafi
aldrei búist við því að dvöl sín á Ís-
landi myndi enda svona.
Breski maðurinn og rekstraraðili
Hótel Jazz voru ágætir vinir áður og
kynntust í Danmörku fyrir 20 árum.
Hafði breski maðurinn beðið eftir að
geta komið til Íslands til þess að
vinna og hefja nýtt líf. Segist hann
hafa haft samband við rekstraraðila
hótelsins sem bauðst til að borga flug
fyrir hann til Íslands. Þegar hann var
kominn til Íslands krafðist hann þess
að fá samning til að skrifa undir en
rekstraraðilinn hunsaði fyrirspurnir
hans ítrekað.
Upphaflega átti breski maðurinn
að vinna sem rekstrarstjóri veitinga-
staðarins á Hótel Kirkjufelli, sem hét
áður Hótel Framnes í Grundarfirði,
en var tilkynnt með stuttum fyrir-
vara að það væri búið að færa hann í
almenn störf á Hótel Jazz. Hótel
Framnes komst í fréttir árið 2016
fyrir sambærilegt mál.
Að sögn mannsins vann hann
stanslaust á Hótel Jazz. „Ég vann frá
átta um morguninn langt fram á
kvöld og vann alla daga mánaðarins
fyrir utan einn dag. Ég tók á móti
gestum, sá um morgunmatinn, þreif
herbergi og fleira.“
Hann segir að ef miðað sé við lág-
markskjör skuldi hótelið honum
minnst 830 þúsund krónur fyrir
vinnu sína en hann hafi ekki séð einn
eyri.
Rekstraraðili hótelsins útbjó aldr-
ei samning, tilkynnti honum ekki
hversu mikið hann myndi fá greitt og
kom sér undan öllum spurningum,
skilaboðum og símtölum breska
mannsins varðandi kjaramál.
Hótaði honum lífláti
Eftir mánuð af vinnu krafðist
breski maðurinn þess að fá eitthvað
greitt frá hótelinu en það skilaði eng-
um árangri þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir. „Þá sendi hann einhvern
mann til mín með umslag með 23
þúsund krónum í og kreditkorti,“ seg-
ir maðurinn sem segist ekki hafa þor-
að að nota kortið til að byrja með því
hann var hræddur um að það væru
brögð í tafli. „Ég vildi ekki nota kortið
því þá gat hann farið til lögreglunnar
og sagt að ég hefði stolið því.“
Að hans sögn braut rekstraraðili
hótelsins hvert loforðið á fætur öðru.
Þessi svik náðu hápunkti í byrjun júlí
þegar rekstraraðilinn tilkynnti starfs-
manninum að það væri búið að leigja
út herbergið sem hann dvaldi í.
„Hann sagði við mig að ég þyrfti að
pakka öllu dótinu mínu á stundinni og
koma mér út.“
Í kjölfarið sótti rekstraraðilinn
manninn á hótelið. „Þá sagði ég að
hann yrði að borga mér en hann
reyndi alltaf að breyta um umræðu-
efni. Síðan spurði hann mig hvort ég
gæti þá ekki farið aftur til Englands.“
Bretinn segir að hann hafi neitað
að fara í flug og þá hafi rekstrarað-
ilinn snöggreiðst og sakað Bretann
um fleipur. „Hann öskraði á mig: „Þú
sem átt að vera vinur minn, ég drep
þig!““
Eftir morðhótunina tilkynnti
rekstraraðilinn honum að það væri
ekki til neitt herbergi fyrir hann til
að gista í og sagðist ætla að reyna að
koma honum inn á herbergi á spítala
sem hann hafði sjálfur dvalið á fyrir
nokkru. Breski maðurinn lét ekki
bjóða sér það. Neyddist hann í kjöl-
farið til að gista á gistiheimili í
miðbæ Reykjavíkur sem hann
greiddi fyrir úr eigin vasa. Eftir það
hafði rekstraraðilinn engin sam-
skipti við Bretann fyrir utan að
reyna aftur að koma honum í flug til
Englands.
Mögulega tilkynnt sem mansal
Segist hann varla eiga nægan pen-
ing eftir til þess að greiða fyrir mat
og að hann hafi þurft að selja tölu-
vert af eigum sínum til að lifa af. „Ég
kom til þess að vinna mikið en þetta
hefur verið algjör martröð. Hann
eyðilagði draum minn, þetta var
draumur sem breyttist fljótt í mar-
tröð,“ segir viðmælandi blaðsins.
Guðbjörg Kristmundsdóttir, for-
maður Verkalýðs- og sjómanna-
félags Keflavíkur, segir við Morgun-
blaðið að hún hafi náð í rekstraraðila
Hótel Jazz eftir linnulausar tilraunir.
„Ég var búin að hringja í hann og
senda honum svona 20 tölvupósta.“
Hún segir málið því komið í farveg
hjá verkalýðsfélaginu en ef ekkert
gerist verði málið tilkynnt lögregl-
unni sem mögulegt mansal.
Að mati breska mannsins er hann
líklega ekki eini starfsmaðurinn til
að vera notaður á þennan máta.
Hann segir að á tíma sínum hjá hót-
elinu hafi hann orðið var við fjölda
fólks sem kom og fór og var að hans
mati líklegast annaðhvort að vinna
launalaust fyrir hótelkeðjuna eða
aðra staði. „Það er mansalsfnykur af
þessu öllu saman. Mig grunar að
hann borgi flug fyrir fólk og flytji
það til landsins til þess að vinna. Ég
veit að það eru hjón á hótelinu í
Grundarfirði sem þrífa öll 29 her-
bergin og útbúa síðan kvöldmat fyrir
alla gestina,“ segir Bretinn.
Hann grunar að margir hafi að-
eins fengið greitt með hlutum sem
rekstraraðilinn keypti í nafni hótels-
ins. Hann segir rekstraraðilann
þekkja „hættulegt fólk“ og því hafi
hann tekið hótanir hans um líflát
mjög alvarlega.
Bretinn biðlar því til verkalýðs-
félaganna og lögreglunnar að hafa
hraðar hendur svo hann geti fengið
greitt og komið sér í kjölfarið heim
til Englands. Að hans sögn þurfa
stjórnvöld að grípa tafarlaust til að-
gerða til að koma í veg fyrir að svona
starfsemi fái að viðgangast.
Ítrekar hann mikilvægi þess að
aðrir lendi ekki í því sama og hann
hefur þurft að ganga í gegnum.
„Upphaflega vildi ég bara fá borgað
en núna er þetta stærra en það,
stærra en ég. Þetta má ekki koma
fyrir aftur, það verður að loka þessu
hóteli,“ segir Bretinn, sem reynir
núna allt sem hann getur til að
greiða úr lífi sínu. Segist vera aura-
laus, heimilislaus og fastur á Íslandi.
Draumur varð fljótt að martröð
- Erlendi starfsmaðurinn á Hótel Jazz segir sögu sína - Segir mikilvægt að stjórnvöld komi í veg
fyrir starfsemi sem þessa - Málið verður tilkynnt sem mögulegt mansal ef maðurinn fær ekki greitt
Hótel Jazz Hótelið í Reykjanesbæ þar sem maðurinn vann myrkranna á milli áður en honum var sagt að taka pok-
ann sinn. Var hann þá settur á götuna án launa og án þess að hafa í nein hús að venda. Maðurinn segist vera í áfalli.
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2022
NÝTT ÚTLIT – SÖMU HREINU GÆÐIN
Grétar Gústavsson, meistari í bif-
vélavirkjun, og Karl Friðriksson,
framkvæmdastjóri Framtíðarset-
urs Íslands, hófu á miðvikudag ferð
sína um Vestfjarðahringinn á
tveimur traktorum. Er þetta gert
til að klára hringferð þeirra um
landið á sömu traktorum.
Þeir tóku hringinn í kringum Ís-
land árið 2015, að Vestfjörðum und-
anskildum, til styrktar forvarn-
arverkefni Barnaheilla gegn
einelti.
Aftur er ekið til styrktar verk-
efnisins sem heitir Vinátta að þessu
sinni en þeir félagarnir hafa verið
vinir í um sextíu ár.
Þeir héldu af stað frá Staðar-
skála sl. miðvikudag og keyra frá
Hamri til Ögurs í Ísafjarðardjúpi í
dag. Þeir munu síðan klára hring-
inn, sem spannar 950 kílómetra, 20.
júlí á Hvanneyri. Verkefnið er hægt
að styrkja á vefsíðu Barnaheilla eða
með því að senda SMS-skilaboðin
Barnaheill í síma 1900.
Traktor Grétar Gústavsson og Karl Friðriksson með Massey Ferguson 35X
af árgerð 1963. Sami traktor og í sveit þeirra á Valdarási í Fitjardal.
Klára hringferð um
landið á traktorum
- 60 ára vinátta og styrkja Barnaheill
Ljósmynd/Barnaheill