Morgunblaðið - 15.07.2022, Qupperneq 12
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2022
ER PLANIÐ SKÍTUGT?
Fáðu tilboð í s: 577 5757
GÖTUSÓPUN
ÞVOTTUR
MÁLUN
www.gamafelagid.is
15. júlí 2022
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 137.38
Sterlingspund 163.92
Kanadadalur 105.79
Dönsk króna 18.585
Norsk króna 13.502
Sænsk króna 13.045
Svissn. franki 140.71
Japanskt jen 1.002
SDR 180.3
Evra 138.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.2255
Einbýlishúsið Háahlíð 16 í Reykja-
vík hefur verið selt fyrir 275 millj-
ónir króna. Það er að líkindum eitt
hæsta verð sem greitt hefur verið
fyrir einbýlishús í Hlíðunum en
staðsetningin er einstök. Húsið er
efst uppi á hæð og frá norðurhlið
efri hæðar er útsýni yfir miðborg
Reykjavíkur og út á sundin.
Nýverið var settur upp skjöldur
við inngang hússins og er það nú
merkt sem bústaður sendiherra
Indlands á Íslandi.
Kaupendur hússins voru tvö ís-
lensk félög, Byssubrandur og
Landsá, sem íslenskir ríkisborg-
arar eru skráðir fyrir. Meðal þeirra
Vigdís Þórarinsdóttir fjárfestir.
Bendir það til að húsið sé leigt
sendiráði Indlands en húsaleigu-
samningur hefur ekki verið birtur.
Sendiráð Indlands er á Túngötu
7 en húsið er í eigu RA 5 ehf. sem er
dótturfélag Regins hf.
Selt á 275
milljónir
Morgunblaðið/Baldur
Einbýlishús Háahlíð 16 í Reykjavík.
Heildartekjur einstaklinga á Íslandi
námu 640 þúsund krónum í fyrra,
samkvæmt skattframtölum, og
hækkuðu því um 49 þúsund krónur á
milli ára. Árslaunin fóru úr 7.097
milljónum 2020 í 7.685 milljónir 2021.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í nýjum tölum Hagstofunnar.
Hækkunin milli ára er sögð 8% að
nafnvirði en tæp 4% þegar leiðrétt er
fyrir verðlagsbreytingum.
Tekjuþróunin frá árinu 2010 er
sýnd hér að ofan á verðlagi hvers
árs. Eins og sjá má hafa heildar-
tekjur nær tvöfaldast frá árinu 2010
eða farið úr 335 þúsund í 640 þúsund.
Séu heildarlaunin árið 2010 upp-
reiknuð frá og með desember það ár
yfir á verðlag í desember 2021 er
niðurstaðan 471 þúsund krónur,
samkvæmt verðlagsreiknivél Hag-
stofunnar. Mismunurinn, 136 þús-
und, samsvarar 1.632 þús. á ári sem
vitnar um bættan hag launþega.
Helmingur yfir 500 þúsundum
Hagstofa Íslands bendir á að mið-
gildi heildartekna hafi verið lægra
en meðaltal heildartekna í fyrra, eða
um sex milljónir króna á ári, en það
sýni að helmingur einstaklinga hafi
verið með heildartekjur undir 500
þúsund krónum á mánuði og helm-
ingur yfir. baldura@mbl.is
Heildartekjur
enn á uppleið
- Hafa nær tvöfaldast frá árinu 2010
Heildartekjur 2010 til 2021
Meðaltal árslauna og mánaðarlauna á verðlagi hvers árs
800
600
400
200
Heimild: Hagstofan/
skattframtöl einstaklinga
2010 2021
Þús. kr.
Mánað-
arlaunÁrslaun
2010 4.018 335
2011 4.315 360
2012 4.523 377
2013 4.781 398
2014 5.089 424
2015 5.406 451
Þús. kr.
Mánað-
arlaunÁrslaun
2016 5.909 492
2017 6.418 535
2018 6.641 553
2019 6.871 573
2020 7.097 591
2021 7.685 640
Meðaltal mánaðar-
launa, þús. kr.
335
640
að auka framboð lóða fyrir frístunda-
hús innan jarðarinnar til viðbótar við
þau sem hafa þegar verið skilgreind
og er það gert til að svara mikilli
eftirspurn eftir lóðum á þessu svæði,
sem er í nálægð við höfuðborgar-
svæðið, og einnig til að styrkja betur
þá þjónustu sem er í uppbyggingu
innan jarðarinnar. Miðað er við að
koma fyrir allt að 25 lóðum á nýju
svæði,“ segir þar orðrétt.
Horfa til haustsins
Þá kemur fram að leitað verði um-
sagnar hjá Skipulagsstofnun, Heil-
brigðiseftirliti Kjósarhrepps, Minja-
stofnun Íslands, Umhverfisstofnun,
Vegagerðinni og Skógrækt ríkisins.
Jafnframt er lögð fram tímaáætl-
un og er síðasti áfangi hennar að
senda tillögur til Skipulagsstofnunar
í október sem hafi þá allt að þrjár
vikur til að afgreiða málið. Að því
loknu geti breytingin tekið gildi með
auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Gangi það eftir gæti sala lóða haf-
ist öðrum hvorum megin við áramót.
Feðgin eiga saman landið
Flúðir ehf. er landeigandi en það
er í jafnri eigu mæðginina Önnu
Skúladóttur og Skúla Mogensen.
Skúli hefur undirbúið opnun sjó-
baða í Hvammsvík undir merkjum
félagsins Hvammsvík sjóböð ehf. og
verða þau opnuð formlega nú um
helgina, laugardaginn 16. júlí.
Sjóböðin verða opin daglega frá
klukkan 11 til 22 og er 12 ára aldurs-
takmark.
Skúli undirbýr 25 lóðir til
viðbótar í Hvammsvík
- 30 lóðir seldust upp á mettíma í fyrrahaust - Sjóböðin verða opnuð um helgina
Ljósmynd/Hvammsvík sjóböð ehf.
Sjóböðin í Hvammsvík Laugarnar eru við fjöruna. Gegnumstreymi hreinsar þær á tveggja til þriggja tíma fresti.
Ljósmynd/Hvammsvík sjóböð ehf.
Náttúrulegt 90 gráða heitu
borholuvatni er blandað við sjóinn.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Landeigendur í Hvammsvík í Kjós-
arhreppi hafa lagt fram verkefnis-
lýsingu sem felur í sér fjölgun lóða á
svæðinu. Nánar tiltekið er miðað við
að koma fyrir allt
að 25 lóðum.
Skipulags-
svæðið er í landi
Hvamms og
Hvammsvíkur í
Hvalfirði og varð-
ar lýsingin fyrir-
hugaða stækkun
á svæði undir frí-
stundabyggð.
Kallar það á
breytingar á aðalskipulagi.
Samkvæmt upplýsingum frá Kjós-
arhreppi er málið á byrjunarstigi og
aðeins búið að auglýsa svokallaða
verkefnislýsingu vegna fyrirhugaðra
breytinga. Landeigendum og ráð-
gjöfum þeirra hafi verið kynntar
þær umsagnir og athugasemdir sem
bárust vegna verkefnislýsingarinnar
og hafi þær til hliðsjónar í skipulags-
vinnunni sem fram undan er.
Á borð Skipulagsstofnunar
Í framhaldinu eigi sveitarstjórn
eftir að kynna skipulagstillögurnar
þegar þær liggja fyrir og senda
Skipulagsstofnun til athugunar áður
en formlegt auglýsingarferli hefst.
Landeigendur auglýstu í septem-
ber sl. 30 lóðir til sölu í Hvammsvík
sem voru samþykktar með breyt-
ingu á deiliskipulagi í lok árs 2021.
Þær seldust upp á mettíma líkt og
rifjað er upp í skipulagslýsingunni.
„Markmið fyrirhugaðra breytinga
á aðalskipulagi og deiliskipulagi er
Skúli
Mogensen