Morgunblaðið - 15.07.2022, Page 22

Morgunblaðið - 15.07.2022, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2022 Raðauglýsingar Tilkynningar Aðalskipulag Dalabyggðar 2020-2032 Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 10. mars 2022 að auglýsa tillögu að Aðalskipu- lagi Dalabyggðar 2020-2032 ásamt umhverfismats- skýrslu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Tillagan er aðgengileg á heimasíðu Dalabyggð og Skipulagsstofnunar frá og með 15. júlí 2022 til 26. ágúst 2022. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 26. ágúst 2022. Athugasemdum skal vinsamlegast skilað á netfang embættis skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins: skipulag@dalir.is fyrir 26. ágúst 2022. Virðingarfyllst, Arwa Alfadhli Skipulagsfulltrúi Dalabyggðar. Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Gönguhópur með göngustjóra kl. 10. Handavinna kl. 12.30-16. Spurningakeppni kl. 14. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir vel- komnir. Sími: 411-2600. Boðinn Fimmtudagur: Bridge og Kanasta kl. 13. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:30-15:40. Föndurhornið kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Dansleikfimi með Auði Hörpu kl. 12:50-13:20. Myndlistarhópur Selmu kl. 13-15:30. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 DANSLEIKFIMI MEÐ AUÐI HÖRPU FELLUR NIÐUR Í DAG VEGNA JARÐARFARAR. Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8:30, heitt á könnunni. Bútasaumur kl.13-16. Allir velkomnir. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Handavinna - opin vinnustofa 9-16. Vatnstlitun kl. 13:30. Hádegismatur kl. 11:30 – 12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Borgum Fimmtudagur: Styrktar og jafnvægisleikfimi í Borgum kl. 10. Sumarskák kl. 12. Útipútt við Eirborgir kl. 13. Opið frá kl. 8 til 15. og heitt á könnunni frá kl. 8:30. Hittumst í sumarskapi, gleðin býr í Borgum. Samfélagshúsið Vitatorgi Heitt á könnunni - Opin handverksstofa 9-12 - Kvikmyndasýning í setustofu kl. 12.45-14.30. Prjónakaffið á sínum stað kl. 13-16 & svo er síðdegiskaffi kl.14.30-15.30. Allar nánari upplýsingar í síma 411 9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar :) Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í Sundlaug Seltjarnarnes kl. 7:10. Kaffi í króknum frá kl. 9. Jóga/leikfimi í salnum kl. 11. Bingó í salnum á Skólabraut kl. 13:30. Spjaldið kostar 250 kr. Vatnsleikfimi í Sundlaug Seltjarnarnes kl. 18:30. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Ford Transit Custom stuttir 2017 eknir um 90 þús km. Eigum tvo útlitsgallaða bíla á lágu verði á aðeins 2.490.000 án vsk. Fínir í akstri og koma vörunum milli staða þó þeir vinni enga fegurð- arsamkeppni. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 10–18 virka daga. Vantar þig fagmann? FINNA.is Elsku amma mín. Mig langaði bara til að þakka þér fyrir æðisleg æskuár hjá þér og afa í sveitinni. Þar áttum við margar góðar stundir og er ég þakklát fyrir að hafa fengið að vera hjá þér. Í kringum þig var allt svo bjart, þú varst með mikið tóneyra, spilaðir mikið tónlist fyrir okkur barnabörnin, ýmist á gítar og píanó eða plöt- ur með klassískri tónlist. Þú hafðir auga með okkur þegar við lékum okkur frjáls í sveit- inni. Þú kenndir mér að gera sultu úr berjunum í garðinum og saft úr rabarbaranum. Þú leyfðir mér að taka þátt í elda- mennskunni með þér og treyst- ir mér til að baka ýmislegt bakkelsi. Þú kenndir mér nöfn- in á blómunum úti og kenndir mér umburðarlyndi gagnvart dýrunum í sveitinni. Þú tókst alltaf vel á móti okkur barna- börnunum og er mér það minn- isstætt þegar við frændsystk- inin komum ísköld inn úr skautaferð, þá gerðirðu oft heitt kakó fyrir okkur. Vertu sæl amma mín, ég mun aldrei gleyma þér. Elínborg Dagný Lýðsdóttir. Við fráfall Ellu í Litlu-Sand- vík hefur verið settur viss enda- punktur við afskaplega ánægju- legt tímabil í lífi mínu. Góður vinskapur var á milli foreldra minna og Ellu og Palla í Litlu- Sandvík, þar sem móðir mín hafði verið samtíða þeim í Menntaskólanum á Laugar- vatni. Í krafti þessa vinskapar við þau Ellu og Palla var ung- um manninum komið í sveit hjá þeim í byrjun níunda áratugar 20. aldar og þar lærði ég að vinna. Dvöl mín í Litlu-Sandvík var upphafið að áratuga langri vin- áttu við þau og annað heima- fólk. Strax frá fyrsta degi mætti ég mikilli hlýju frá Ellu og Palla sem kenndu mér rétt handtök smátt og smátt. Ellu lá ekki hátt rómur en hún kom sínu til skila á rólegan og hóg- væran hátt. Hún tók grútskít- ugar buxurnar mínar þegar þær Elínborg Guðmundsdóttir ✝ Elínborg Guð- mundsdóttir fæddist 28. maí 1937. Hún lést 30. júní 2022. Útför hennar fór fram 13. júlí 2022 voru nánast farnar að standa sjálfar og lagði hreinar á rúmið. Tímabært að skipta um bux- ur. Þó að Palli hafi að mestu séð um verkstjórnina úti við, þá kom Ella sterk inn þegar þurfti að sinna kindunum eða hest- unum, en hún var mjög natin við skepnur. Eft- irminnilegar eru ferðirnar með Ellu út á tún á kvöldin í sauð- burðinum, þegar vorstillurnar, eða rigningin, réðu ríkjum í Flóanum, að huga að nýbærum, merkja lömbin og gefa þeim skitupillur. Einstaka sinnum æstust leikar ef einhver vanda- mál voru í uppsiglingu en ný- bærurnar voru oft ekkert á því að láta ná sér. Ella lagði allt sitt í þetta, hljóp um öll tún á eftir þeim og gafst ekki upp fyrr en búið var að króa þær af. Ein- hverju sinni endaði Ella með eina nýbæruna í fanginu eftir að sú síðarnefnda hafði ákveðið að hefja sig til flugs þegar allar aðrar leiðir voru lokaðar. Sú fór ekki lengra. Þegar búið var draga hana ofan af Ellu stóð hún upp skellihlæjandi yfir þessari uppákomu. Mér var það fljótt ljóst að Litla-Sandvík var menningar- heimili. Ella var tónelsk, spilaði á píanó, söng í kór og var vel lesin en Palli menntaður sagn- fræðingur og mikill grúskari. Bækur voru í öllum herbergj- um, uppi um alla veggi, háa- loftið var eins og bókasafn og tónlist aldrei langt undan. Mér fannst áhugavert að þau létu nokkuð að sér kveða í norrænu samstarfi og ræktuðu samband við Sama í Lapplandi ef ég man rétt. Gestakomur til þeirra voru tíðar og oft var kátt á hjalla í kvistinum eða í eldhúsinu þegar erlenda eða innlenda gesti bar að garði. Eftir að reglulegri dvöl minni hjá Ellu og Palla lauk, þá var ég heimagangur í Litlu-Sandvík mörg ár á eftir annaðhvort bara í heimsókn, taka þátt í slætti, sauðburði, réttum eða bara hlaupa undir bagga ef á þurfti að halda. Með Ellu er gengin væn og góð kona sem mér hefur alltaf verið sérstaklega hlýtt til. Færi ég þeim systkinum, Siggu, Al- dísi, Lýð, Gumma og fjölskyld- um þeirra mínar innilegustu samúðarkveðjur. Bjarki Sverrisson. ✝ Guðmundur Óskar Skarp- héðinsson fæddist 22.3. 1944. Hann lést 2. júlí síðast- liðinn. Foreldrar hans voru þau Skarp- héðinn Kristjón Óskarsson (1922- 1998 af Pálsætt undan Jökli) og Unnur Guðjóns- dóttir (1922-2006 af Deild- artunguætt). Systur hans eru Ólafía, f. 1947, Elsa, f. 1950 og og Kristbjörn Óskar, f. 29.3. 1974. Ekkja Guðmundar er Cris- anta D. Skarphéðinsson, f. 13. desember 1957. Guðmundur á fjölda afkomenda, bæði frá sonum sínum og fósturbörnum til lengri og skemmri tíma. Guðmundur vann við ýmis störf til sjós og lands, hann var lærður matsveinn og vann lengstum við það fag. Hann var lengi búsettur í Suður- nesjabæ og bjó síðustu árin norður á Blönduósi. Guð- mundur var fyrr á árum landskunnur fyrir dulargáfu sína, en á síðustu áratugum bagaði heilsuleysi hann mjög. Sálumessa hans verður sungin í Landakotskirkju í dag, 15. júlí 2022, kl. 10 ár- degis. Lovísa Ósk, f. 1960. Guðmundur var margkvæntur, en með fyrstu konu sinni, Þóru Stef- ánsdóttur, f. 1943, átti hann soninn Stefán Ólaf, f. 28.2. 1968. Önnur kona Guðmundar var Jóhanna Dóra Þorgilsdóttir djákni (1945- 2022) og eignuðust þau tvo syni: Unnar Gils, f. 7.7. 1970 Í dag verður frændi minn Guð- mundur Óskar borinn til grafar. Það fyrsta sem ég man eftir hon- um var þegar fjölskylda hans flutti í hús við götuna okkar. Faðir hans Skarphéðinn var föðurbróðir minn. Það voru eðlilega mikil sam- skipti milli bræðrabarnanna. Jól, afmæli og smáhátíðir. Í febrúar 1962 birtist grein um Guðmund í vikublaðinu Fálkanum – Sautján ára íslenskur huglækn- ir. Varð þá Guðmundur lands- þekktur á örskotsstund. Það er spurning hvort það hafi verið hollt og gott fyrir svo ungan mann. Miðilsfundir voru haldnir á heimili okkar, foreldrar mínir voru mjög áhugasamir um þessi mál. Náttúrulega áttum við börnin að vera óvitandi um þetta, við átt- um að vera sofandi. Létum við því ekkert í ljós um vitneskju okkar, annars hefðum við ekkert fengið að vita. Þetta var spennandi. Sögur voru sagðar um gáfur Guðmundar, ég man eftir einni: Bóndi í Hvalfirði sem Guðmundur hafði verið í sveit hjá sagðist hafa verið viðstaddur jarðarför afa okkar og sá Guðmund hlæja við. Hafi hann þá spurt Guðmund, eft- ir á, hvers vegna hann hafi hlegið? Guðmundur hafi þá svarað að hann hafi séð afa okkar sitja klof- vega á kistunni glottandi. Auðvitað voru jólaboðin og fjöl- skyldusamankomur litaðar af alls- konar tilraunum með skyggnigáfu frænda míns, hlutskyggni, fylgjur og álfa. Á þrítugsaldri fór ég að æfa yoga, var frændi minn mjög áhugasamur um þá sýslu mína. Fórum við saman á ýmsa fundi og ræddum margt um trúna. Nú kveður hann okkur hérnamegin, forvitnin um hinumegin fær svöl- un. Ættum við ekki að segja: til hamingju? Oddur Guðmundsson. Guðmundur Óskar Skarphéðinsson Í dag kveðjum við góðan vin og yndislega sam- starfskonu hana Guðrúnu Birnu. Guðrún Birna hóf störf í Hörðuvallaskóla haustið 2017. Þar kenndi hún heimilisfræði allt þar til hún fór í fæðingarorlof vorið 2020. Hún hafði mikinn metnað fyrir starfi sínu, var mjög skipulögð og vissi alveg hvernig hún vildi hafa hlutina. Það var alveg einstakt að sjá hvað allt var skipulagt, snyrtilegt og hreint í stofunni hennar. Hún var afar góður kennari, hafði ein- staklega góða nærveru og náði vel til nemenda sinna sem marg- ir spyrja reglulega eftir henni. Í starfsmannahópnum bar ekki mikið á Guðrúnu Birnu, hún var hæglát og hafði sig ekki í frammi. Hún anaði ekki að neinu en þegar hún ákvað eitthvað var hún fylgin sér. Guðrún Birna var einstaklega vönduð, ákveðin, hlý og umhyggjusöm. Við sem vor- um svo lánsöm að kynnast henni vitum hversu heilsteypt og traust hún var. Samstarfsfólk hennar í list- og verkgreinateyminu minnist glettninnar í augunum þegar spjallað var í kaffitímum eða grínast á teymisfundum. Guðrún Birna var góður félagi og smærri hópi naut hún sín vel, hafði Guðrún Birna Árnadóttir ✝ Guðrún Birna Árnadóttir fæddist 17. október 1986. Hún lést 1. júlí 2022. Útför hennar fór fram 13. júlí 2022. margt til málanna að leggja og það var gott að eiga við hana uppbyggilegar samræður um allt sem laut að starf- inu. Það var ein- staklega þægilegt að leita til hennar, alltaf jákvæð og styðjandi. Guðrún Birna var enn í fæðingar- orlofinu þegar hún veiktist. Í því erfiða ferli sást vel hvern mann hún hafði að geyma. Hún tók hverri raun með einstöku jafn- aðargeði. Alltaf þegar maður heyrði í henni var hún bjartsýn og tókst á við hvert áfallið af öðru með ró og yfirvegun. En ör- lögum sínum fær enginn ráðið og nú hefur hún verið hrifin á brott svo allt of fljótt. Það er þungbært fyrir okkur öll að kveðja elsku Guðrúnu Birnu. Hugur okkar er hjá eig- inmanni hennar og ungum son- um missir þeirra er mikill. Fyrir hönd allra í Hörðuvalla- skóla, Þórunn Jónasdóttir. Vertu sæll um alla eilífð, elskulega góða barn. Þó að stöðugt þig við grátum þreytt og mædd um lífsins hjarn eigum við í huga hrelldum helga von og bjarta þrá að eiga vísa endurfundi aftur þig að mega sjá. (Guðrún Jóhannsdóttir) Ástarkveðja, Bryndís Rut. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.